Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 56
40 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Yesmine Olson og Kristjana Thors Brynjólfsdóttir hafa verið valdar til að taka þátt í keppninni Fitness Woman – World Champ- ionships Finals 2005. Keppnin er haldin ár hvert og verður að þessu sinni í Malasíu dagana 29. til 31. júlí. Aðeins sextán konur taka þátt í keppninni og er þetta því mikill heiður fyrir stúlkurnar. „Fulltrúi keppninnar sá mig dansa á Akureyri og bauð mér að taka þátt,“ segir Yesmine. „Hún var reyndar búin að hringja nokkrum sinnum og tókst loks að sannfæra mig um að koma því ég var eiginlega hætt í fitness,“ seg- ir hún og ákvað bara að slá til. Kristjana var svo valin úr stórum hópi umsækjenda. Yesmine segir keppnina ekki byggja á mjög stæltum líkama heldur kvenlegum línum, fegurð og dansi. Mikil áhersla er lögð á dansinn og undanfarin ár hefur nokkuð verið um að fimleikakon- ur taki þátt. „Ég er engin fim- leikakona en umsjónarmenn keppninnar vildu einmitt fá nýja stefnu í dansinu. Við Kristjana komum inn með meira fönk og kraft í dansinn.“ Kristjana segir þær stöllur hafa þurft að hafna verkefnum til að undirbúa sig fyrir keppnina. „Við erum samt búnar að fá góðan stuðning, meðal annars frá Trim- formi Berglindar og Henson sem hefur sérsaumað á okkur búning- ana,“ segir Kristjana. Stúlkurnar verða í tvær vikur í Asíu þar sem þær ferðast um og upplifa ævintýri. „Keppnin er hluti af tveggja vikna alþjóðlegri ráðstefnu um hreysti og við för- um út í boði samtakanna. Það er þó skilyrði að vera ekki í öðrum fitness-samtökum þegar tekið er þátt í keppninni,“ segir Yesmine. Tíu stúlkur komast í úrslit í keppninni og verður þeim sjón- varpað á íþróttastöðinni Eurosport. Keppnin hefur lengi verið eitt vinsælasta sjónvarps- efnið á þeirri stöð og nú er bara að vona að stúlkurnar komist í úrslit- in svo hægt verði að fylgjast með gengi þeirra í sjónvarpinu. ■ Undirbúningur Máls og menning- ar vegna útgáfu sjöttu Harry Pott- er bókarinnar er í fullum gangi. Bókarinnar hefur verið beðið með gríðarlegri eftirvæntingu en tvö ár eru síðan fimmta bókin kom út. Þrjár bókabúðir munu vera með viðhafnaropnun á föstudagskvöld klukkan eina mínútu yfir tólf en það eru Mál og menning, Lauga- vegi; Penninn Eymundsson, Aust- urstræti og Penninn Bókval á Ak- ureyri. „Það er bara allt að verða brjál- að,“ segir Óttar Proppé deildar- stjóri erlendra bóka hjá Máli og menningu. „Mestu lætin eru búin að vera þau að tryggja að bækurn- ar komi til landsins og það hefur tekist. Fyrstu eintökin er læst í geymslu hér á landinu og enginn má opna kassana fyrr en seint á föstudagskvöld.“ Fjölmargir Harry Potter-aðdá- endur eru á Íslandi og er búið að taka frá bækur. „Ég hef ekki ná- kvæma tölu yfir pantanirnar en þær skipta hundruðum. Það er alltaf svona ákveðin festival- stemmning í kringum útgáfu Harry Potter bókanna og mikil spenna í loftinu.“ Þegar síðasta Harry Potter bók- in kom út voru duglegustu aðdá- endurnir búnir að bíða í hálfan sól- arhring. Óttar segir reynsluna sýna að mikið líf og fjör myndist í röðinni en eitthvert húllumhæ verði á vegum bókabúðanna til að stytta viðskiptavinunum stundir. „Við ætlum að vera með létta skemmtun og hressingu á meðan fólk bíður eftir því að búðirnar opni.“ Starfsmenn Máls og menning- ar hafa einnig séð um að skreyta verslunina í anda Harry Potter. „Það eru gallharðir aðdáendur að vinna hérna hjá okkur og við höf- um gefið þeim þónokkurt sjálf- stæði í útfærslum sínum á skreyt- ingum,“ segir Óttar. Búðirnar verða allar þrjár opn- ar svo lengi sem fólk streymir að og ættu því allir að taka föstu- dagskvöldið frá til að geta nælt sér í eintak af eftirsóttustu bókYESMINE OG KRISTJANA Verða í flottum búningum sem þær hönnuðu sjálfar með góðri hjálp frá Jenný í Henson. Yesmine og Kristjana á heims- meistaramót í fitness-fegur› FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Harry Potter kemur á morgun ÓTTAR PROPPÉ Sjötta bókin um Harry Potter, Harry Potter and the Half-Blood Prince, á að vera sú næstsíðasta en það er aldrei að vita nema J. K. Rowling detti einhver fleiri ævintýri í hug fyrir litla galdrastrákinn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.