Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 57

Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 57
STYRKJUM BÖRNIN OKKAR D-vítamínbætt mjólk bætir úr brýnni þörf D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í vexti og þroska barna. Það tryggir góða nýtingu á kalki sem er mikilvægasta byggingarefni tanna og beina. Rannsóknir benda til að stór hluti íslenskra barna fái alltof lítið D-vítamín. MS leggur áherslu á að hafa á boðstólum mjólkurvörur sem uppfylla þörfina fyrir holla og næringarríka fæðu á öllum aldursskeiðum. Dreitill er D-vítamínbætt léttmjólk sem er sérstaklega ætluð börnum. Með því að drekka tvö glös af Dreitli daglega fá börnin okkar allt að helminginn af ráðlögðum dagskammti D-vítamíns. Dreitill var settur á markað fyrir fjórum árum eftir að Manneldisráð óskaði eftir að léttmjólk væri D-vítamínbætt. Dreitill er seldur á sama verði og Léttmjólk. Morgunblaðið, þriðjudaginn 12. júlí 2005 Stoðmjólk er sérstaklega ætluð börnum frá sex mánaða til tveggja ára aldurs. Henni er ætlað að tryggja að öll þau næringar- og bætiefni sem börnin þarfnast séu til staðar í daglegu fæði þeirra og að þau nýtist jafnframt betur úr fæðunni. Stoðmjólk var þróuð að beiðni og í samvinnu við starfshóp á vegum Manneldisráðs, Landlæknisembættisins og fleiri aðila. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 3 8 7 2 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.