Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 62

Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 62
46 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Lárétt: 1 kraft, 5 gott eðli, 6 endalok, 7 öfug röð, 8 grænmeti, 9 sigti, 10 hæð, 12 lín, 13 svækja, 15 samhljóðar, 16 lengra frá, 18 skítur. Lóðrétt: 1 lystugur maður, 2 tímabils, 3 tveir eins, 4 valdamikill, 6 drepur, 8 glöð, 11 útfall elds, 14 hátterni, 17 sólguð. Lausn. 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 Miðasala í Skífunni, á event.is og í 575-1522 „Vertíðinni er að ljúka, við hætt- um á toppnum,“ segir Gísli Ein- arsson, umsjónarmaður sjón- varpsþáttarins Út og suður sem er í öðru sæti á eftir fréttum RÚV samkvæmt könnun IMG Gallup á sjónvarpsáhorfi í júní. „Ég er virkilega þakklátur Ís- lendingum fyrir að fylgjast með þessu, þó ég taki þetta ekki til mín því viðmælendurnir eru auðvitað í aðalhlutverki,“ segir Gísli. Síðasti þátturinn verður sýndur á sunnudag en hann var tekinn upp í vikunni. „Ég held að ég hafi aldrei gert neitt skemmtilegra. Þetta var virki- lega gott tækifæri til að kynnast landinu upp á nýtt,“ segir Gísli. Hann tekur vel í að endurtaka leikinn næsta sumar en segir að ekkert hafi verið ákveðið um framhald á þættinum. „Að minnsta kosti er enginn skortur á skemmtilegu fólki í landinu.“ Umsjónarmaður Út og suður vill ekki gera upp á milli þáttanna. „Allir sem við höfum spjallað við hafa verið áhugaverðir hver á sinn hátt, við höfum skemmt okkur konunglega yfir þessu,“ segir Gísli. ■ Gísli hættir á toppnum [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Um 39 þúsund Einar Hákonarson Hálfdán Mörður Gunnarsson FRÉTTIR AF FÓLKI AÐ MÍNU SKAPI BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON LEIKSTJÓRI OG LEIKARI TÓNLISTIN Núna er ég náttúrlega að hlusta á tónlistina úr Örlagaeggjunum sem þeir Höskuldur Ólafsson og Pétur Benediktsson sömdu. Almennt eltist ég ekki við neinar sérstakar tónlistarstefnur en fíla alltaf pottþéttar melódíur og dramatísk lög. BÓKIN Ég les nokkuð mikið og uppá- haldsbókin mín er tvímælalaust Kara- mazov-bræðurnir eftir Dostojevskíj. Hún er stærsta afrek mannsandans, stærri en þegar maðurinn fór til tunglsins. BÍÓMYNDIN Það eru svo margar bíó- myndir sem mér finnst eftirtektarverðar. Fyrst get ég nefnt The World According to Garp með Robin Williams frá 1982 og svo finnst mér Seven líka góð. Þær eru báðar vel sagðar. Svo finnst mér flestar Mike Leigh-myndir æðislegar og allar myndir leikstjórans Jean-Pierre Jeunet eru frábærar. Pedro Almodóvar stendur líka alltaf fyrir sínu. BORGIN Ég bjó í eitt ár í Barcelona og það er góð borg bæði hlý og vinaleg. Mér finnst Berlín líka sérstaklega skemmtileg því hún er svo krafmikil. BÚÐIN Bónus. Hún er í uppáhaldi því hún er alltaf ódýrust. Hvað fatnað varð- ar þá er ég ekki duglegur að kaupa mér föt en þegar ég geri það þá fer ég oft- ast í Outlet. VERKEFNIÐ Leikritið Örlagaeggin er verkefni mitt þessa dagana. Það er verið að sýna það í Borgarleikhúsinu í allt sumar en þetta er ógeðslega fynd- inn harmsöngleikur með vísindatryllis- ívafi. Frábærir leikarar og tónlistarmenn taka þátt í sýningunni og efnið á vel við nú á tímum. Ef fólk langar að skemmta sér í sumar þá ætti það að fara á Ör- lagaeggin því þar skín sólin – annað en utandyra. Örlagaeggin, Karamazov-bræ›urnir og Barcelona ...fær Hallbjörn Hjartarsson, kúreki í Kántríbæ, sem fékk styrk frá Menningarsjóði Höfða- hrepps til að gera við sendinn í Skagafirði. Lifi kántríið. HRÓSIÐ GÍSLI EINARSSON „Í hverri viku fæ ég annað hvort hringingar eða tölvupóst með áhugaverðum ábendingum um fólk til að tala við,“ segir Gísli, um það hvernig hann finnur viðmælendur sína sem þykja stór- skemmtilegir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N K AR LS SO N Lárétt: 1mátt,5art, 6ko,7ts,8kál,9sáld,10 ás,12tau,13kóf, 15rg,16utar, 18saur. Lóðrétt: 1mathákur, 2árs,3tt,4voldugur, 6kál- ar, 8kát,11sót,14fas,17ra. » FA S T U R » PUNKTUR Gísli Örn Garðarsson vakti at- hygli út fyrir landsteinana fyrir nýstárlega leikstjórn á verkinu Rómeó og Júlía. Hann leggur nú land undir fót með verkið Woyzeck eftir George Buchner í farteskinu. „Við frumsýnum Woyzeck í Borgarleikhúsinu í september en sýnum svo í þrjár vikur í Barbican-leikhúsinu í London í október,“ segir Gísli Örn en októbermánuður í Bar- bican-leikhúsinu er tileinkaður Ungum snillingum. „Hugmynd- in að baki Ungum snillingum er að setja upp verk eftir leikskáld sem þau skrifuðu áður en þau náðu 26 ára aldri,“ segir Gísli en Barbican-leikhúsið hafði sam- band við Gísla til að fá hann til að leikstýra Woyzeck. George Buchner skrifaði verkið Woyzeck aðeins 23 ára gamall en lést áður en hann náði að ljúka leikritinu. „Það er það sem gerir verkefnið sérstaklega spennandi. Leikritið fannst í brotum og áskorun fyrir okkur er að raða senunum upp í skyn- samlega röð og ljúka við sköp- unarverkið. Ég hef enn mikinn áhuga á sirkusforminu og um þessar mundir erum við að prófa okkur áfram uppi í Borg- arleikhúsi og leita að rétta tón- inum.“ Til að tryggja að rétti tóninn verði örugglega sleginn hefur Gísli Örn haft samband við tón- listarmanninn Nick Cave. „Nick Cave semur leikhúsvæna tónlist með fallegum textum. Hann var einfaldlega sá tónlistarmaður sem mér datt fyrst í hug þegar ég skoðaði verkið svo ég tékkaði bara á honum,“ segir Gísli en þetta mun vera í fyrsta sinn sem Nick Cave semur tónlist sér- staklega fyrir leikhús. „Ég sendi umboðsmanni hans tölvupóst og sagði honum frá hugmyndinni í mjög stuttu máli. Í bréfinu spurði ég einfaldlega hvort Nick Cave hefði áhuga á að vinna í leikhúsi og hann hringdi sjálfur í mig til baka tveimur dögum síðar. Þá spjölluðum við heil- mikið saman og hann virtist þekkja söguna þar sem hann hafði séð þýska kvikmynd upp úr verkinu.“ Ekki spillti heldur fyrir að Nick Cave hafði heyrt góðs orðstírs Vesturportsins getið. „Það gaf mér greiðari aðgang að honum að hann hafði heyrt um Rómeó og Júlíu sýninguna. Í síð- ustu viku fór ég svo til Brighton að hitta hann og þá ákváðum við að kýla á þetta. Hann er því bara byrjaður að vinna að verkinu eins og við.“ Gísli Örn segist ekki ætla að taka að sér aðalhlutverkið í sýn- ingunni að þessu sinni. „Þótt hlutverkaskipan liggi ekki end- anlega fyrir get ég gefið upp að í uppfærslunni verð ég að mestu leyti að vinna með fólki sem ég hef unnið með áður, nema kannski Nick Cave,“ bætir Gísli sposkur við. „Við erum að vinna saman í fyrsta skipti en vonandi ekki það síðasta.“ thorakaritas@frettabladid.is GÍSLI ÖRN GARÐARSSON: FRÆGÐ RÓMEÓS RYÐUR HONUM NÝJAR BRAUTIR Finnur hinn hreina tón með Nick Cave VINNA AÐ SAMA VERKI Nick Cave og Gísli Örn Garðarsson vinna nú saman að upp- setningu á Woyseck etir George Buchner. SAMSETT MYND Dr. Gunni hefur verið í föstuhlutastarfi hjá DV síðustu mán- uði en hefur nú að mestu dregið sig í hlé og situr sveitt- ur við vinnu heima hjá sér og undirbýr næstu umferð af hin- um geysivin- sæla spurn- ingaþætti Popppunkti sem Skjár einn sýnir í haust. Aðdá- endur Gunna þurfa ekki að örvænta þar sem hann „skrifar eitthvað lítil- ræði fyrir DV áfram, pistla og svona eitthvað,“ eins og hann orðar það á bloggsíðu sinni. Hópur fólks sem stundar það aðsleikja sólina á Kanaríeyjum og kallar sig einfaldlega Kanarí- eyjaflakkara ætlar að halda árlega samkomu sína í Árnesi um helgina. Fjörið byrjar á föstu- daginn þegar svæðið opnar og síðan tekur við þéttskipuð. Kanaríeyjaflakkar- arnir sjá sjálfir um öll skemmti- atriði og er ekk- ert að vanbúnaði í þeim efnum þar sem fjöldi stuðkarla- og kerlinga eru meðlimir í félagsskapnum og þannig hefur sjálfur Árni Johnsen kvöldskemmtun laugardagsins klukkan 20.00 þegar hann mætir, vopnaður kassagítarnum, og stýrir fjöldasöng af sinni alkunnu snilld. Það þarf svo enginn að óttast að botninn detti úr stuðinu þegar þing- maðurinn fyrrverandi leggur frá sér gítarinn þar sem þá tekur Geir- mundur Valtýsson, sólbrúnn og sællegur, við keflinu og ætlar að trylla lýðinn með hljómsveit sinni. Þeir sem þekkja stuðið á Kanarí og afrekaskrá Geirmundar efast ekki um það eitt augna- blik að dansinn duni langt fram eft- ir nóttu. Árni og Geirmundur tróðu einnig upp hjá Kanaríeyjaflökkur- unum í fyrra og stóðu sig svo vel að engin ástæða þótti til annars en að fá kappana til að endurtaka leik- inn. Það verður einnig slegið upp harmonikuballi á samkomunni og dregið verður í happadrætti þar sem helstu vinningar eru ferðir til Kanarí og Færeyja.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.