Fréttablaðið - 16.07.2005, Side 2
2 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Árekstur strætisvagns og rútu við Landakotskirkju:
Erlendir fer›amenn fluttir á sjúkrahús
SLYS Tveir erlendir ferðamenn
voru fluttir með sjúkrabifreið á
slysadeild eftir að strætisvagni
var ekið inn í hlið rútu við Landa-
kotskirkju um hádegisbil í gær. Þá
flutti lögregla þrjá til viðbótar
undir læknishendur eftir árekstur-
inn. Enginn hinna slösuðu hlaut al-
varleg meiðsl.
Stór hópur bandaríska ferða-
manna var í rútunni en fáir farþeg-
ar voru í strætisvagninum. Matthí-
as Jóhannsson, bílstjóri rútunnar,
segir farþegum hafa orðið nokkuð
hverft við áreksturinn. „Þetta er
fullorðið fólk og þau urðu talsvert
skelkuð,“ segir Matthías.
Þeir ferðamenn sem Frétta-
blaðið ræddi við á slysstað í gær
báru sig þó nokkuð vel en þeir
höfðu sloppið frá árekstrinum
með skrámur. „Þetta gerðist allt
svo hratt að maður hafði varla
tíma til þess að vera óttasleginn,“
sagði Rob Stull en hann hafði orð á
því hversu fljótt og vel hefði
gengið að fá lögreglu og sjúkralið
á staðinn.
Báðar bifreiðarnar eru talsvert
illa farnar eftir áreksturinn en
strætisvagninn var ökufær og var
ekið af vettvangi. - ht
Eftirlitsstofnun EFTA þrýstir á íslensk stjórnvöld:
ESA vill a›ger›ir
vegna Rússafisks
EFTIRLIT Eftirlitsstofnun EFTA,
ESA, hefur farið þess á leit að
íslensk og norsk stjórnvöld
tryggi að ekki verði fluttur
Rússafiskur til landa á evrópska
efnahagssvæðinu frá rúss-
neskum fyrirtækjum sem ekki
hafa fengið löggildingu Evrópu-
sambandsins.
Samkvæmt reglum Evrópu-
sambandsins má aðeins flytja
inn frosinn fisk frá rússneskum
fyrirtækjum sem hafa vottun
upp á að þau uppfylli gæðakröf-
ur sambandsins. Ber stjórnvöld-
um að tryggja að ekki verði
fluttur inn fiskur frá öðrum
fyrirtækjum til sölu í ríkjum
Evrópusambandsins.
„Fyrir nokkrum árum var
talsvert um slíkar sendingar en
það hefur dregið úr því síðustu
ár,“ segir Ketil Rykhus, sem fer
með eftirlit með fiski, um stöð-
una á Íslandi. Enn er þó ekki
búið að taka alveg fyrir þetta og
leitar Eftirlitsstofnunin því
eftir viðbrögðum íslenskra og
norskra stjórnvalda. „Ég er viss
um að við eigum eftir að eiga
einhvers konar viðræður við ís-
lensk stjórnvöld áður en frest-
urinn rennur út,“ segir Rykhus.
„Við höfum gefið Íslandi loka-
frest til að svara, vegna sumar-
fríanna er hann þrír mánuðir.“
Bregðist íslensk stjórnvöld ekki
við getur Eftirlitsstofnunin
vísað málinu til Evrópudóm-
stólsins. -bþg
Áframhaldandi ódæði:
Níu manns
voru felldir
KENÍA Stjórnvöld í Kenía hafa sent
2.000 hermenn til norðurhluta
landsins til að hafa upp á þeim
sem frömdu fjöldamorð í bænum
Turbi á þriðjudaginn. 76 biðu
bana, þar af 22 börn.
Deilur ættbálkanna Borana og
Gabra eru undirrót voðaverkanna
en menn úr fyrrnefnda ætt-
bálknum eru sagðir bera á þeim
ábyrgð. Í hefndarskyni réðust
nokkrir Gabra-menn á bíl Bor-
ana-manna í gær, rifu farþegana
út og hjuggu þá í spað með
sveðjum.
6.000 manns hafa flúið frá
Turbi til nágrannaborgarinnar
Marsabit. -shg
RÁÐHERRAR Í AICHI Halldór Ásgrímsson
og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir voru
viðstödd Íslandsdaginn á Expo 2005
heimssýningunni í Japan í gær.
Íslandsdagur á Expo 2005:
Vel heppna› í
alla sta›i
EXPO Íslandsdagurinn á Expo 2005
heimssýningunni sem haldin er í
Aichi-héraðinu í Japan var í gær
og tókst dagskráin í alla staði
mjög vel að sögn Kristínar Ingv-
arsdóttur sem starfar fyrir Norð-
urlöndin á heimssýningunni.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra voru gestir Íslandsdagsins
ásamt fjölda listamanna. Meðal
þeirra sem komu fram voru Ragn-
hildur Gísladóttir og Sigtryggur
Baldursson sem léku tónlist jap-
anska tónlistarmannsins Stomu
Yamashta með fulltingi Skólakórs
Kársness og Skálholtskirkjukórs,
kvartett Sigurðar Flosasonar lék
djasstónlist, Caput-hópurinn
klassíska tónlist og Barði í Bang
Gang steig svo á svið. - oá
Héraðsdómur Reykjaness:
Kínverskt par
í fangelsi
DÓMSMÁL Kínverskt par var í gær
dæmt til 45 daga fangelsisvistar
fyrir að villa á sér heimildir við
vegabréfsskoðun í Leifsstöð.
Fólkið kom hingað frá Þýska-
landi á leið til Bandaríkjanna.
Höfðu þau meðferðis japönsk
vegabréf en við nánari skoðun
kom í ljós að parið var af kín-
versku bergi brotið. Var þriðji
maður með þeim í för sem lög-
regla hefur grunaðan um að
reyna að smygla fólkinu en
dæmt verður í máli hans innan
tíðar. -aöe
Fjármálaeftirlitið:
N‡r forstjóri
rá›inn
Jónas Fr. Jónsson tekur við starfi
forstjóra Fjármálaeftirlitsins en
staðan var auglýst til umsóknar
eftir að fyrrverandi forstjóri,
Páll Gunnar Pálsson, tók við
starfi forstjóra Samkeppniseftir-
litsins.
Jónas hefur mikla reynslu af
alþjóðlegu markaðsstarfi sem
framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs Eftirlitsstofnunar EFTA í
Belgíu. Þá hefur hann og lög-
fræðimenntun og MBA-gráðu að
auki. -aöe
SPURNING DAGSINS
Eggert ertu or›inn
hjólbeinóttur?
„Nei. Ég er hoj og slank.“
Eggert Skúlason hefur nú lokið hringferð sinni á
hjóli um landið til styrktar samtökunum Hjarta-
heill. Eggert hefur á leið sinni misst allnokkur kíló
og safnað tæpum sjö milljónum króna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR
ÁREKSTUR VIÐ LANDAKOT Glerbrot dreifð-
ust yfir götuna þegar strætisvagn og rúta
full af erlendum ferðamönnum lentu í
árekstri um hádegisbilið í gær.
Dánartí›nin óvenju
há í byrjun ársins
Marktæk fjölgun var› á dau›sföllum í byrjun ársins. fietta ger›ist á sama tíma
og inflúensufaraldur geisa›i og er tali› a› hann hafi valdi› aukningunni.
Faraldurinn var erfi›ari vi›ureignar nú en sí›ustu ár.
M
YN
D
/K
R
IS
TÍ
N
I
N
G
VA
R
SD
Ó
TT
IR
Héraðsdómur Reykjaness:
Slapp vi›
sviptingu
DÓMSMÁL Tæplega fertugur karl-
maður fékk vægari dóm fyrir
Héraðsdómi Reykjaness en til
stóð vegna hraðaksturs þar sem
hámarkshraði á umræddum vegi
var hækkaður nýlega.
Fann dómurinn manninn sekan
um að hafa ekið á 125 kílómetra
hraða um Hafnarfjarðarveg í júlí
á síðasta ári en þar sem hámarks-
hraða á þeim vegi var breytt úr 70
í 80 kílómetra hraða í millitíðinni
féll ákæruvaldið frá kröfu um
sviptingu ökuréttar og refsing
lækkaði fyrir vikið. Var honum
gert að greiða 40 þúsund krónur í
sekt. -aöe
BRETLAND
FRJÁLSLYNDIR VINNA AUKA-
KOSNINGAR Aukakosningar voru
haldnar í Cheadle-kjördæmi í
Manchester í vikunni um þing-
sæti frjálslynda demókratans
Patsy Calton sem lést skömmu
eftir kosningarnar í vor. Frjáls-
lyndir héldu sæti sínu því Mark
Hunter, frambjóðandi þeirra,
fékk flest atkvæði. Íhaldsmenn
fengu næstflest atkvæði en fram-
bjóðandi Verkamannaflokksins
varð í þriðja sæti.
LÍBANON
UTANÞINGSSTJÓRN Í BÍGERÐ
Fouad Siniora, sem nú fer með
stjórnarmyndunarumboðið í Lí-
banon, segist ætla að skipa rík-
isstjórn sína sérfræðingum sem
hvorki eiga sæti á líbanska
þinginu né eru félagar í stjórn-
málaflokkum. Siniora kemur úr
hópi andstæðinga Sýrlands-
stjórnar en hann er sagður
reiða sig á stuðning Michel
Aoun og flokks sjía sem er
hlynntur stjórninni í Damaskus.
HEILSA Dánartíðni á landinu fór
upp fyrir eðlilegt viðmiðunarbil í
febrúar á sama tíma og inflúensu-
faraldurinn var í hámarki. Þetta
kemur fram í Farsóttafréttum,
gefnum út af Landlæknisembætt-
inu.
Ef miðað er við meðaltal ár-
anna 2000 til 2004 látast yfirleitt
rétt um 35 Íslendingar í viku
hverri, þó sínu fleiri yfir vetrar-
mánuðina. Haldið er utan um
þetta meðaltal til að geta greint ef
umtalsverð frávik verða frá eðli-
legri dánartíðni. Eðlilegt er að
sveifla sé í
dánartíðninni
og þá er miðað
við 95 pró-
senta viðmið-
unarbil. Sam-
kvæmt því er
það innan eðli-
legra marka ef
á milli um 25
og 54 látast á
einni viku í
febrúar. Tvær vikur í febrúar-
mánuði síðastliðnum fóru þó upp
fyrir þetta viðmiðunarbil þegar
yfir 110 manns létust samtals. Þó
það fari ekki mikið yfir það sem
talið er eðlilegt frávik þá eru það
umtalsvert fleiri en meðaltal síð-
ustu fimm ára.
Á sama tíma og dánartíðnin fór
upp fyrir viðmiðunarbilið var in-
flúensufaraldurinn í hámarki og í
Farsóttafréttum segir að trúlega
hafi hún átt sinn þátt í hærri dán-
artíðni. Þó hefur enn ekki verið
rannsakað í þaula hvort svo sé en
það verður gert í kjölfar mark-
tækrar aukningar á dánartíðni.
Guðrún Sigmundsdóttir, yfir-
læknir á sóttvarnarsviði hjá
Landlæknisembættinu, segir
aukninguna vissulega marktæka
og að líklega sé inflúensunni um
að kenna. Aðspurð hvort inflú-
ensubóluefni geti hafa verið gall-
að og því valdið þessari miklu
aukningu segir Guðrún að svo sé
ekki, enda hefði það þá verið
komið í ljós. Hins vegar segir
hún að fólk taki misvel við bólu-
efninu og veiti það um 70 pró-
sentum þeirra sem það fá full-
komna vörn, aðrir geti veikst en
bóluefnið eigi að draga úr flensu-
einkennum. Líklega hafi því
ástæðan verið eðlilegar sveiflur í
útbreiðslu inflúensunnar og því
hversu alvarleg hún er enda hafi
faraldurinn í vetur skorið sig úr
árunum þar á undan þar sem vel
tókst að halda henni í skefjum.
oddur@frettabladid.is
BÓLUSETNING Inflúensufaraldurinn reyndist skæður síðasta vetur þrátt fyrir umfangsmikla
bólusetningu.
GUÐRÚN
SIGMUNDSDÓTTIR