Fréttablaðið - 16.07.2005, Page 10
Deilt á n‡tt lei›akerfi Strætó
Strætisvagnar höfu›borgarsvæ›isins hefja a› aka eftir n‡ju lei›akerfi næsta laugardag. Nú er unni› a›
flví a› a› kynna breytingarnar fyrir notendum og ö›rum sem hafa áhuga. Deilt hefur veri› á n‡ja kerfi›
úr ‡msum áttum.
Strætóleiðum höfuðborgarsvæð-
isins verður eftir viku fækkað
niður í nítján vegna gjörbreytinga
á leiðakerfi. Meginbreytingin
með nýja leiðakerfinu er að
lengra verður á milli biðstöðva en
á móti kemur að vagnarnir ganga
hraðar og tíðar og því ætti fólk að
geta komist hraðar á milli staða.
Ásgeir Eiríksson forstjóri
Strætó bs. sagði á blaðamanna-
fundi þar sem leiðakerfið var
kynnt að með nýja leiðakerfinu
væri orðið til skilvirkt kerfi al-
menningssamgangna fyrir allt
höfuðborgarsvæðið og að strætó
yrði með því raunhæfari val-
kostur en áður. Björk Vilhelms-
dóttir borgarfulltrúi og stjórnar-
formaður Strætó bs. sagði á sama
fundi að markmiðið með hinu nýja
leiðakerfi væri að þjóna betur
þörfum fólks í umferðinni en
hingað til hefur verið gert.
Nú þegar hafa þó heyrst gagn-
rýnisraddir úr ýmsum áttum þar
sem deilt er á leiðakerfið og það
sagt óhentugt fyrir börn, gamal-
menni og þá sem erfitt eiga með
að ganga langar leiðir. Sumir hafa
meira að segja fullyrt að líklega
fækki farþegum með breyting-
unum ef eitthvað er.
Vill hægfara breytingar en
ekki byltingu
Kjartan Magnússon borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir
erlenda sérfræðinga sem hann
hefur talað við hafa varað við því
að skipt sé um kerfi fyrir heila
borg á einni nóttu. Hann segir að
Sjálfstæðismönnum hefði betur
hugnast ef leiðakerfinu hefði
verið breytt í skrefum, þróað í
fyrirfram ákveðna átt. Einnig set-
ur Kjartan fyrirvara við að mið-
stöð nýja leiðakerfisins sé á
Hlemmi í miðborginni, þeim borg-
arhluta þar sem umferðartafir
eru mestar fyrir og að betra hefði
verið ef miðstöðinni hefði verið
valinn staður nær umferðarlegri
miðju höfuðborgarsvæðisins, svo
sem við gatnamót Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar þaðan
sem hægt er að aka að hans sögn í
öll hverfi Reykjavíkur á innan við
tíu mínútum. Kjartan telur hættu
á að viðskiptavinum Strætó fækki
við breytingarnar.
Vagnstjórar óánægðir með
vaktafyrirkomulag
Valdimar Jónsson fulltrúi
starfsmanna Strætó bs. hefur sagt
að þar á bæ séu menn ekki sáttir
og þyki hafa skort á samráð við
breytingarnar. Hann tekur fram
að ekki sé það leiðakerfið sem
slíkt sem trufli starfsmenn enda
eigi þeir ekki að ráða því hvernig
það er heldur sé það breytingar á
vaktafyrirkomulagi sem valdi
þeim áhyggjum. Samkvæmt hinu
nýja fyrirkomulagi vinna bílstjór-
ar almennt lengri vaktir í einu en
fá í staðinn lengra frí á milli
vakta. Segir Valdimar þessa
breytingu gera vagnstjórum erf-
iðara fyrir með að vinna auka-
vinnu. Einnig hafi vagnstjórar
kvartað undan því að nýja leiðar-
kerfið hafi ekki verið kynnt fyrir
þeim sem skildi.
Ekki tekið tillit til barna og gam-
almenna
Félag eldri borgara hefur lýst
yfir óánægju sinni með leiðakerf-
ið þar sem eldri borgarar þurfi að
ganga lengri leiðir til að komast í
vagnana. Einnig þykir verra að
sett séu upp biðskýli í skiptistöðv-
ar þar sem eldri borgarar eiga
margir erfitt með að bíða
lengi utandyra, sér-
staklega á veturna.
Björn Finnsson, um-
sjónarmaður frí-
stundaheimilis í Breið-
holti, segir nýja leið-
akerfið heldur ekki
taka nægilegt tillit til
barna, vont sé að
þurfa að fara yfir stór-
ar umferðaræðar með
barnahópa auk þess
sem helsta útivistar-
svæði borgarinnar í Laug-
ardal liggur verr við nýja leiðar-
kerfinu en hinu gamla.
oddur@frettabladid.is
10 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Um þessar mundir eru tíu ár liðin frá því að
fjöldamorðin í Srebrenica áttu sér stað, en í
þeim voru um átta þúsund karlmenn drepnir
af her Bosníu-Serba.
Hver var aðdragandinn?
Eftir að borgarastyrjöld braust út í fyrrum ríkj-
um Júgóslavíu varð borgin Srebrenica eitt af
fáum svæðum í austurhluta Bosníu sem
Serbar stjórnuðu ekki. Hún var gerð að hlut-
lausu svæði og sex hundruð hollenskum frið-
argæsluliðum falið að tryggja öryggi borgar-
anna. Her múslima í borginni afvopnaðist
hins vegar ekki að fullu og réðst hann
stundum að næturlagi á þorp Bosníu-Serba.
Þær árásir notuðu herir Serba sem átyllu til
að hernema borgina.
Hvernig fóru fjöldamorðin fram?
Eftir hernámið skildu Serbar konur, börn og
gamalmenni frá karlmönnunum. Flestir þeirra,
alls um 12.500, ákváðu að reyna að brjóta sér
leið yfir á yfirráðasvæði Bosníu-múslima, en
her Serba sat fyrir þeim og stráfelldi þá á
flóttanum. Aðeins um fimm þúsund mann-
anna komust á leiðarenda, en aðrir féllu á
leiðinni eða voru teknir til fanga og líflátnir.
Karlmenn sem eftir urðu í borginni voru
einnig teknir af lífi.
Líkfundir og refsingar
Nú, um tíu árum síðar, hafa fjöldamorðin al-
mennt verið viðurkennd og margir helstu
skipuleggjenda þeirra hafa verið dæmdir af
stríðsglæpadómstólnum fyrir þjóðarmorð, en
netið er að þrengjast um aðra. Lík stórs hluta
fórnarlambanna hafa fundist þó ekki hafi
tekist að bera kennsl á þau öll. Enn er verið
að grafa upp lík úr fjöldagröfum á svæðinu.
Þeir sem lifðu af hafa minnst morðanna með
ýmsum hætti á síðustu dögum.
Tíu ár li›in frá vo›averkum Serba
FBL GREINING: FJÖLDAMORÐIN Í SREBRENICA
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
Ökumenn teknir fyrir hraðakstur í umferðarátaki lögreglunnar.
ÍMYND PÓLLANDS Bozena Szwarc er
ekki hjúkrunarkona í raun og veru heldur
fyrirsæta. Myndum af henni verður dreift
um Evrópu til að bæta ímynd Póllands og
eyða ranghugmyndum um að landsmenn
séu eingöngu ódýrt vinnuafl.
M
YN
D
/A
P
GRÁTIÐ YFIR LÍKAMSLEIFUM Þessi mynd var
tekin nú um helgina en þá fór formleg útför 613
fórnarlamba fram rétt utan við Srebrenica.
ODDUR ÁSTRÁÐSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
NÝTT LEIÐAKERFI
STRÆTISVAGNA
1
.
V
IK
A
2
.
V
IK
A
247 202