Fréttablaðið - 16.07.2005, Page 16
16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Sóknarpresturinn í Garðabæ
hefur staðið í ströngu að undan-
förnu. Í Garðasókn í Garðabæ
hafa staðið deilur milli séra Hans
Markúsar Hafsteinssonar og
meirihluta sóknarnefndarinnar. Á
dögunum héldu stuðningsmenn
og velunnarar Hans Markúsar
fund þar sem fjallað var um þá
stöðu sem upp var komin,
meðal annars í ljósi þess að
áfrýjunarnefnd þjóðkirkj-
unnar kvað upp úrskurð
um að Hans Markús
skyldi fluttur til í
starfi. Málin hafa vak-
ið mikla athygli en
minna hefur borið á
persónu Hans Markús-
ar sem hans nánustu
segja vera hæglátan
mann sem forðist
helst kastljós fjöl-
miðla og opinbera um-
fjöllun.
Hans Markús fæddist
í Reykjavík í september
1951. Fyrstu fimm ár æv-
innar bjó hann í vesturbænum
í Reykjavík en flutti svo til
Njarðvíkur og hóf skólagöngu
sína í Keflavík. Hann er talinn
góður og mikill námsmaður enda
hefur hann komið víða við í
námi.
Hann lauk prófi í rafvirkjun
frá Iðnskólanum í Reykjavík
1973 og öðlaðist síðar meistara-
réttindi í sömu grein. Eftir það
nám lá leið hans þó í störf fyr-
ir hinn almenna borgarara og
hóf hann störf hjá lögreglunni
í Reykjavík. Þar starfaði hann
sleitulaust til ársins 1997 eða
þar til hann var vígður til
prests í Garðasókn. Hann út-
skrifaðist úr Lögregluskóla
ríkisins árið 1976 og var skip-
aður lögregluþjónn í Reykja-
vík sama ár.
Í lögreglunni líkaði Hans
Markúsi vel að starfa. Hans
nánustu lýsa því að hann sé
gæddur miklum kærleika og
umhyggju fyrir fólki og hafi
starfið átt vel við hann enda sé
hann bæði raungóður og vinnu-
samur maður. Það mun vera
vegna þeirrar gleði og sorgar sem
lögreglumaðurinn Hans Markús
upplifði og sá sem hann ákvað að
söðla um. Hann hóf nám í guð-
fræði í Há-
skóla Íslands og útskrif-
aðist sem guðfræðingur árið
1997.
Hvar sem komið er niður á störf
og persónu Hans Markúsar ber öll-
um saman um þá hlýju og alúð sem
hann gefur frá sér. Einn samferð-
armaður hans segir að hann gleymi
oft sjálfum sér þar sem hagur og
velferð annarra sé honum svo kær.
Hann er sagður næmur á tilfinn-
ingar fólks og geta ekki gantast
með það sem miður fer hjá öðr-
um. Dugnaður hans endur-
speglast í því sem hann hef-
ur tekið sér fyrir hendur
og hann fer þangað sem
hann ætlar sér. Prests-
starfið sé honum dýr-
mætt, því þar nái hann
tengslum við fólkið sem
á hug hans og tíma allan.
Hans Markús kynntist
núverandi eiginkonu
sinni, Jónínu Sigþrúði
S i g u r ð a r d ó t t u r
lögregluvarðstjóra,
fyrst á unglingsárum en
ástir tókust með þeim
þegar þau störfuðu sam-
an hjá lögreglunni og gift-
ust þau 1981. Hans Markús
á tvö börn af fyrra hjóna-
bandi og Jónína eitt, en
saman eiga þau eitt barn.
Hans Markús er mikill
námsmaður eins og áður var
sagt og hefur hann enn gaman af
því að læra og nema. Þykir hon-
um skemmtilegast að læra
tungumál en af öðrum áhuga-
málum má helst nefna að hann
leikur golf í góðra vina hópi.
Nánir samstarfsmenn hans í
gegnum tíðina bera honum all-
ir vel söguna og segja hann
bæði traustan vin og
skemmtilegan félaga.
Aldrei hafi staðið á því að
hann komi vinum til að-
stoðar þegar illa stendur
á. Atburðir líðandi
stundar séu honum
verkefni sem leysist á
þann hátt sem hann
helst kýs sjálfur. Hans
Markús hefur náð að tengja
saman rétta póla sem rafvirki
og hefur nú það starf með hönd-
um að ná tengingu milli manna og
guðs. Svo verður það áfram, segja
samferðarmenn. ■
MAÐUR VIKUNNAR
Klerkur í klípu
HANS MARKÚS HAFSTEINSSON
SÓKNARPRESTUR Í GARÐABÆ
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
–
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Ég er Reykjavíkurlistamaður og
stoltur af því. Ég á góða vini í röðum
Vinstri-grænna, Samfylkingarinnar
og Framsóknarflokksins en ÉG er
Reykjavíkurlistamaður númer eitt.
Ég kynntist því vel innan Röskvu í
Háskólanum hvernig félagshyggju-
fólk getur unnið saman sem ein
heild þótt það sé skráð í mismun-
andi stjórnmálaflokka eða engan.
Með stofnun Reykjavíkurlistans
árið 1994 varð draumurinn um sam-
henta sveit félagshyggjufólks að
veruleika í Reykjavík. Þarna var
fólk úr ýmsum áttum en það sam-
einaðist um sterka réttlætiskennd,
vilja til að bæta sitt samfélag og
leysa málin þvert á flokkslínur. Ég
lagði glaður mitt lóð á vogarskál-
arnar 1994 og aftur 2002 þegar
sjálfstæðismenn háðu sína kosn-
ingabaráttu á Geldinganesi.
Nú líður enn að kosningum og
koma þá fram raddir um að flokk-
arnir sem mynda Reykjavíkurlist-
ann ættu að bjóða fram sér. Þetta
eru skiljanlegar vangaveltur hjá
fólki sem vill sjá veg síns flokks
sem mestan. Lausnin er hins vegar
ekki skynsamleg. Sérframboð Sam-
fylkingar, Vinstri grænna og Fram-
sóknarflokks hjálpar aðeins einum
flokki – Sjálfstæðisflokknum. Ef
Reykjavíkurlistinn býður ekki fram
sameinaður næsta vor snýst kosn-
ingabaráttan aðallega um sundur-
lyndi flokkanna sem að honum
standa en önnur kosningamál falla í
skuggann. Það mun aftur hafa af-
drifarík áhrif á tilraunir til að
mynda nýja ríkisstjórn félags-
hyggjuflokka eftir þingkosningar
2007. Og það veit almættið að þessi
þjóð á skilið nýja ríkisstjórn.
Einu sinni var málum svo háttað
í borg Sjálfstæðisflokksins að
venjulegt vinnandi fólk fékk ekki
leikskólapláss fyrir börn sín. Pláss-
in voru frátekin fyrir námsmenn og
einstæða foreldra. Og svo líklega
nokkra félaga í Sjálfstæðisflokkn-
um. Í það minnsta var dag einn
hringt í móður mína frá leikskólan-
um Tjarnarborg og henni tjáð að
eldri bróðir minn væri kominn með
leikskólapláss. Fagnaðarlátum
linnti þó fljótt því bróðir minn var á
þessum tíma orðinn síðhærður ung-
lingur með yfirvaraskegg og ekki
jafn áfjáður og fyrrum í að komast
á leikskóla. Forgangsröðun sjálf-
stæðismanna leyfði ekki að börn
vinnandi fólks kæmust á leikskóla,
a.m.k. ekki meðan þau væru börn.
Peningum borgarinnar var eytt í að
byggja Ráðhús og Perlu sem fóru
óralangt fram úr kostnaðaráætl-
unum.
Reykjavíkurlistinn gerði bylt-
ingu í leikskólamálum að megin-
stefnumáli sínu og gjörbreytti að-
stöðu barna og vinnandi fólks. Nú
þykir sjálfsagt að öll 2-5 ára börn
eigi kost á leikskólaplássi. Þetta af-
rek Reykjavíkurlistans er eitt mik-
ilvægasta framlag stjórnmála-
hreyfingar til jafnréttismála á Ís-
landi.
Hlutverki Reykjavíkurlistans er
hvergi nærri lokið. Eftir straum-
hvörf í leikskólamálum, sögulega
leiðréttingu á kjörum kennara og
kraftmikla uppbyggingu í orkumál-
um bíður borgaryfirvalda nú tæki-
færi til að frelsa Vatnsmýrina úr
viðjum Reykjavíkurflugvallar og
reisa glæsilega byggð í hjarta
Reykjavíkur. Þar tekur enginn ann-
ar en Reykjavíkurlistinn af skarið.
Sjálfstæðisflokkurinn er bundinn af
yfirlýsingum samgönguráðherra
síns um að flugvöllurinn skuli vera
um kyrrt og mun trauðla snupra
sinn ráðherra nema frjósi í helvíti.
Ég trúi því að Reykjavíkurlistinn
nái breiðri samstöðu um að nýta
Vatnsmýrina undir fólk en ekki
flugvélar. Á meðan leitar Sjálfstæð-
isflokkurinn langt yfir skammt og
talar um eyðieyjar og fjarlæga
framtíð.
Ég vil að lokum skora á félaga
mína í Reykjavíkurlistanum að rifja
upp gömlu samstöðuna og leggja
drög að nýrri stórsókn í þágu Reyk-
víkinga. Áfram Reykjavíkurlistinn!
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 156. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2005
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
l lí l i
Bls. 50
Heimtar kjú
kling
og koníak á
Íslandi
Bls. 30-31
DJAMMDROTTNING Í BORGARSTJÓRASTÓL
MYRTUR Í SUÐUR-AFRÍKU Orðin leið áað vera
leikkona
Sveitastrákurinn sem varð heimsborgari
Bls. 53
Bls. 22-23
Steinunn Valdís Óskarsdóttir kann að meta lífið í Reykjavík. Hún
elskar borgina á daginn og ekki síður um nætur þegar Reykjavík
breytist í einhverja mestu gleðiborg Evrópu. Þá kann borgar-
stjórinn vel við sig og er oftar en ekki í essinu sínu. Hún hefur trú á
borginni sinni, sjálfri sér og framtíð R-listans.
Bls. 12
Féll fyrir
Alexíu í
viðtali
GuðmundurSteingrímsson
ástfanginn
Bls. 32-33
TvíburarAldrei einmana
NÍNA & GÍSLI: Fullkomin
fyrir
hvort annað
ll i
i
Bls. 38
BÆJARINS BESTU HÚS... Allt um glæsilegar risavillur þeirra nýríku sem eru ekkert að spara Bls. 16-19
Ég elska
Reykjavík
að næturlagi
Saga Gísla
Þorkelssonar
Ævintýramaður
sem flutti til
Suður-Afríku
þar sem hann
var myrtur
SKÚLI HELGASON
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
BORGARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
Áfram Reykjavíkurlistinn!