Fréttablaðið - 16.07.2005, Síða 18
Low & Bonar
kaupir
Low & Bonar, sem Atorka Group á
um fimmtungshlut í, hefur keypt
fyrirtækið Xirion. Kaupverðið er
13,6 milljónir evra
eða rúmlega millj-
arður. Xirion var
stofnað árið 2000
og er leiðandi fram-
leiðandi á garni í
gervigrasteppi.
Heildareignir
fyrirtækisins í lok
maí námu tæpum
600 milljónum
króna. Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans segir að búist sé við
nokkrum tekjuvexti á árinu og hafi
félagið einnig verið að fjárfesta
nokkuð til að styðja við frekari vöxt.
Óendurskoðuð afkoma af gervi-
grashluta félagsins fyrstu fimm
mánuði ársins sýnir að sölutekjur
námu 360 milljónum króna og
rekstrarhagnaður nam tæpum 60
milljónum króna. -dh
Varfærinn forstjóri
Jónas Fr. Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins frá og með næsta mánudegi, 18. júlí.
Stofnunin hefur verið höfuðlaus eftir að Páll Gunnar
Pálsson fór til Samkeppniseftirlitsins fyrir skemmstu.
Líklegt er að Jónas verði meira áberandi í starfi sínu
en Páll í kjölfar þess að 1. júlí síðastliðinn
varð eftirlitinu heimilt að greina frá ein-
stökum athugunum sem það stendur
fyrir. Þeir sem þekkja Jónas vita þó að
hann er varfærinn maður og stígur vænt-
anlega varlega til jarðar í þeim efnum á
meðan starfsreglur eftirlitsins eru í mót-
un. Jónas lauk embættisprófi í lögfræði
frá Háskóla Íslands, LLM-prófi frá háskól-
anum í Cambridge og MBA-prófi frá Vler-
ick Leuven Gent Management School í Belgíu. Þá
hefur hann lokið prófi í verðbréfamiðlun. Jónas hefur
meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri innra
markaðssviðs Eftirlitstofnunar EFTA í Brussel og af og
til hrellt íslensk stjórnvöld í því starfi.
Milljón í Kína
Athyglisvert er að rýna í nýjar tölur Seðlabankans
um fjárfestingu Íslendinga erlendis og útlendinga
hérlendis. Íslendingar eiga nú tæpa 54 milljarða
króna í Lúxemborg, líklega undir merkjum ýmissa
eignarhaldsfélaga og á bankareikningum. Var
gríðarleg aukning milli ár-
anna 2003 og 2004 hvað
varðar útstreymi peninga til
Lúxemborgar. Árið 1999
voru einungis 3,5 milljarðar
geymdir í þeirri ágætu
borg. Annars eiga Ís-
lendingar eignir í Evrópu
að andvirði 228 millj-
arðar króna, í Ameríku
nema þær sextán milljörðum, tæpum ellefu í
Asíu og minna annars staðar. Samkvæmt Seðla-
bankanum er bein fjármunaeign Íslendinga í Kína
ein milljón. Ekki þykir það mikið í efnahagsstór-
veldinu.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.178,25
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 139
Velta: 747 milljónir
+0,19%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Eitt af stærstu fyrirtækjum
heims, General Electric Co. jók
hagnað sinn á öðrum ársfjórð-
ungi um 24 prósent.
Oracle hefur keypt hugbúnað-
arfyrirtækið ProfitLogic, sem
smíðar greiningarbúnað fyrir smá-
sölugeirann.
Útibúi endurskoðunarfyrirtæk-
isins KPMG í Noregi er skylt að
greiða um 6,5 milljarða íslenskra
króna, í skaðabætur vegna van-
rækslu við endurskoðun á bók-
haldi fjársöfnunarfyrirtækisins
Credit Finance, sem varð gjald-
þrota árið 2002.
Greining Íslandsbanka spáir
því að vísitala neysluverðs lækki
um 0,2 prósent milli júlí og ágúst.
18 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,10 +0,24% ... Bakkavör
38,30 +0,00%... Burðarás 15,90 +0,00%... FL Group 14,55 -0,69% ...
Flaga 4,73 +0,00% ...Grandi 8,30 -0,60 ... Íslandsbanki 13,55 +0,37% ...
Jarðboranir 21,70 +0,46% ... KB banki 546 +0,00% ... Kögun 58,80
+0,51% ... Landsbankinn 17,30 +0,58% ... Marel 58,2 +0,00% ... SÍF
4,82 +0,00 ...Straumur 12,20 +0,00% ... Össur 79,00 +1,28%
Össur +1,28%
Burðarás +0,63%
Landsbankinn +0,58%
Siminn -7,22%
FL Group -0,69%
Grandi -0,60%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Forstjóri Íbúðalánasjóðs er
ekki á móti því að sjóðnum
verði heimilt að veita lán til
endurfjármögnunar. Þing-
maður telur að sjóðurinn sé
einmitt að því um þessar
mundir í gegnum banka-
kerfið.
Deilt er um hvort þeir lánasamn-
ingar sem Íbúðalánasjóður hefur
gert við banka og sparisjóði, og
þeir nota síðan til íbúðarlána í ýms-
um myndum, séu í samræmi við fé-
lagslegt hlutverk sjóðsins. Íbúða-
lánasjóður hefur sjálfur ekki heim-
ild til að lána til endurfjármögnun-
ar. Það eru fyrst og fremst spari-
sjóðirnir sem hafa gert slíka samn-
inga við Íbúðalánasjóð.
Pétur H. Blöndal alþingismaður
telur að sjóðurinn sé kominn langt
út fyrir hlutverk sitt með þessum
samningum og finnst skrýtið að
Íbúðalánasjóður, sem er félagsleg-
ur sjóður – stofnaður og rekinn af
ríkinu, skuli vera með dularfulla
leynisamninga við banka og spari-
sjóði.
Hann gagnrýnir að Íbúðalána-
sjóður fjármagni útlán banka og
sparisjóða til almennings þar sem
ekki er gerð krafa um að lánið
renni til húsbygginga eða hús-
kaupa heldur til neyslu, til dæmis
kaupa á hlutabréfum og utanlands-
ferðum. Það geti ekki verið í sam-
ræmi við stefnu sjóðsins.
„Það er dálítið ankannalegt ef
almenningur getur fengið hærri
lán, en hámarkslán Íbúðalánasjóðs
kveða á um, sem sjóðurinn fjár-
magnar líka.“
Guðmundur Bjarnason, for-
stjóri Íbúðalánasjóðs, segir að
sjóðurinn telji sig vera að fara
eftir lögum með lánveitingum til
banka og sparisjóða. Hafi lög-
fræðiálit verið unnið fyrir sjóðinn
sem staðfesti það auk þess sem fé-
lagsmálaráðuneytið álíti að sjóð-
urinn fari eftir þeim reglum sem
honum eru settar. Sjóðurinn telur
sig vera með trygg útlán en ber þó
alla áhættu ef þau tapast. Stofnun-
in er ekki í óskastöðu en hún hafi
þurft að laga sig að þeim aðstæð-
um sem komu upp þegar bankarn-
ir komu inn af fullum krafti á
íbúðalánamarkaðinn til að endur-
fjármagna.
„Það væri breyting á hlutverki
sjóðsins ef honum væri veitt
heimild til slíkra lánveitinga. Ég
er ekki á móti því ef stjórnvöld
telja það vera skynsamlegra en
það sem við erum að gera.“
Guðmundur segir að Íbúða-
lánasjóði hafi verið gert kleift að
hækka hámarkslán sín nokkuð á
síðasta ári en þau eru um sextán
milljónir í dag.
„Það er á vettvangi stjórnmál-
anna að ákveða og kanna hvort
hækka skuli þessa upphæð eða
skipta markaðnum með öðrum
hætti. Hvar annars er hægt að
varðveita þetta fé og hvar annars
fæst betri ávöxtun sem jafnframt
tryggir stöðu sjóðsins til lengri
tíma? Ég þigg allar ábendingar.“
eggert@frettabladid.is
Deilt um markmið Íbúðalánasjóðs
Bein fjárfesting Íslendinga er-
lendis er talin vera um 30 pró-
sent af innlendri landsfram-
leiðslu í árslok 2004. Þetta
kemur fram í bráðabirgðatölum
Seðlabanki Íslands um beina
fjárfestingu Íslendinga erlendis
og um beina fjárfestingu er-
lendra aðila á Íslandi árið 2004.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans kemur fram að
bein fjárfesting samanstandi af
hreinum hlutabréfaviðskiptum
eða kaupum að frádreginni sölu,
endurfjárfestingu og lánavið-
skiptum milli fjárfesta og dótt-
urfyrirtækja. -dh
Gestamóttaka
á Nesjavölllum
og Hellisheiði
Orkuveitan starfrækir gestamóttöku
á Nesjavöllum (Nesjavallavirkjun)
og í Skíðaskálanum í Hveradölum
(fyrirhuguð Hellisheiðarvirkjun).
Gestamóttaka er opin
á báðum stöðum
mánudaga-laugardaga kl. 9-17
og sunnudaga kl. 13-18.
Allar nánari upplýsingar
í síma 516 6000 og á www.or.is
Aðgangur er ókeypis.
OPIÐ
UM HELGINA
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
2
87
51
06
/2
00
5
Auknar erlendar fjárfestingar
FRÁ TÍSKUSÝNINGU MOSAIC FAS-
HIONS Erlendar fjárfestingar nema þriðj-
ungi af landsframleiðslu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
.S
.
STYRMIR ÞÓR
BRAGASON
forstjóri Atorku
UMDEILD LÁNASTOFNUN Íbúðalánasjóður hefur gert lánasamninga við banka og
sparisjóði sem þeir nota til að lána til íbúðakaupa eða endurfjármögnunar. Þingmaður
telur sjóðinn fara út fyrir sitt starfssvið sem þessum lánum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
Netbankinn var með hæstu ávöxtun
á verðtryggðum lífeyrissparnaðar-
reikningum á fyrstu sex mánuðum
ársins samkvæmt úttekt Morgun-
blaðsins. Nafnávöxtun á innláns-
reikningum Netbankans var 9,06
prósent. Ávöxtun af sams konar
reikningum hjá viðskiptabönkunum
var rúmu einu prósentustigi lægri.
Íslandsbanki var næstur Net-
bankanum en lífeyrisreikningur
bankans gaf 7,99 prósenta ávöxtun.
Netbankinn var jafnframt með
hæstu ávöxtun allra banka og spari-
sjóða á óverðtryggðum og verð-
tryggðum innlánsreikningum. - eþa
ÁVÖXTUN Netbankinn sýndi hæsta ávöxt-
un banka og sparisjóða á verðtryggðum og
óverðtryggðum innlánsreikningum, þar á
meðal á verðtryggðum lífeyrissparnaðar-
reikningum.
Besta ávöxtunin hjá Net-
bankanum