Fréttablaðið - 16.07.2005, Page 20
„Þetta er umhverfi sem hefur
breyst gríðarlega hratt og gerir
starfið miklu víðara og meira
spennandi. Þegar ég var að byrja
töldu flestir að endurskoðendur
ynnu bara við að gera skattfram-
töl en nú tel ég að fólk geri sér
grein fyrir að endurskoðendur
standi fyrir gerð reikningsskila
og vinni fyrir fyrirtæki á markaði
og slíkt,“ segir Sigurður B. Arn-
þórsson formaður Félags lög-
giltra endurskoðenda sem er sjö-
tíu ára í dag. Ekki verður haldið
sérstaklega upp á afmælið heldur
stefnt að veglegri veislu þegar fé-
lagið verður 75 ára.
Sigurður hefur verið viðloð-
andi endurskoðun í rúm 20 ár en á
þeim tíma hefur stéttin þrefald-
ast. Mikil bylting hefur átt sér
stað síðustu ár að sögn Sigurðar.
„Endurskoðunarfyrirtækin hafa
verið að fara úr einyrkjabúskap
yfir í stór endurskoðunarfyrir-
tæki. Þegar ég var að byrja voru
stóru fyrirtækin með um 20
manns en nú eru tvö, þrjú félög
með um eða vel yfir hundrað
starfsmenn,“ segir Sigurður en
gífurleg alþjóðavæðing hefur orð-
ið í starfi endurskoðenda með til-
heyrandi innleiðingu á reglugerð-
um Evrópusambandsins.
„Í kjölfarið á þessu öllu saman
hafa menntun og kröfur aukist. Í
haust bjóða bæði Háskóli Íslands
og Háskóli Reykjavíkur upp á
mastersnám í reikningshaldi og
endurskoðun í fyrsta sinn,“ segir
Sigurður sem telur það til marks
um að endurskoðun geti varla
talist leiðinlegt starf.
Sigurður hlær þegar hann er
spurður hvað honum finnist um
brandara um leiðinlega endur-
skoðendur. „Við sitjum ekki
lengur með lítið sætt fjölskyldu-
fyrirtæki þar sem enginn veltir
því fyrir sér hvernig ársreikn-
ingurinn lítur út nema skatturinn.
Þetta hefur breytt ímynd end-
urskoðenda,“ segir Sigurður sem
finnst vinnan skemmtileg. „Ég
hefði ekki getað valið betur.“ Þá
telur Sigurður að endurskoðendur
séu skemmtilegt fólk enda sé fé-
lagsstarfið innan félagsins öflugt.
Til að mynda stefni hundrað end-
urskoðendur ásamt mökum á ráð-
stefnu í september og ekki ólík-
legt að mikil endurskoðuð gleði
ríki í herbúðum þeirra. ■
20 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
CELIA CRUZ (1924-2003)
lést þennan dag.
FÉLAG LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA ER SJÖTÍU ÁRA:
Endurskoðun er fjöl-
breytt og skemmtileg
„Ég þríf alltaf áður en ræstingarkonan
kemur. Annars finn ég ekki neitt þegar ég
kem heim.“
Celia Cruz var ein vinsælasta kúbverska söngkona tuttugustu aldar.
Hún bjó í Bandaríkjunum og gerði 22 gullplötur á ævinni.
timamot@frettabladid.is
JAR‹ARFARIR
13.30 Júlíus Unnar Jóakimsson, Tún-
götu 16, Grenivík, verður jarð-
sunginn frá Grenivíkurkirkju.
14.00 Ásta Einarsdóttir, frá Reykjadal,
verður jarðsungin frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum.
14.00 Gunnhildur Nikulásdóttir,
Sundabúð, áður Hamrahlíð 9,
Vopnafirði, verður jarðsungin frá
Vopnafjarðarkirkju.
14.00 Kristmundur Jóhannesson,
bóndi að Giljalandi, Haukadal,
Dalasýslu, verður jarðsunginn frá
Stóra-Vatnshornskirkju.
Þennan dag árið 1918 var Nikulás Romanov annar,
síðasti keisari Rússlands, og fjölskylda hans tekin af
lífi af bolsévikum. Þar með leið undir lok þriggja
alda valdatími Romanov-ættarinnar í Rússlandi.
Nikulás var krýndur árið 1896 en var neyddur til að
segja af sér árið 1917. Hann ásamt fjölskyldu sinni
fór í útlegð í Síberíu. Í nóvember árið 1917 komust
Bolsévikar undir stjórn Vladimírs Lenín til valda í
Rússlandi og stefndu á að gera Rússland að
kommúnistaríki.
Í apríl árið 1918 var Romanov-fjölskyldan flutt til
Jekaterínborgar í Úralfjöllum en borgarastyrjöld
braust út í júní.
Síðla nætur hinn 16. júlí var Nikulási, Alexöndru
eiginkonu hans og börnum þeirra fimm ásamt
þjónustufólki skipað niður í kjallara hússins. Þar var
þeim raðað í tvær raðir og sagt að taka ætti af
þeim ljósmynd.
Allt í einu réð-
ust fjölmargir
vopnaðir menn
inn í herbergið
og hófu skot-
hríð að fjöl-
skyldunni. Þau
sem ekki voru
látin eftir kúlna-
regnið voru
stungin til bana.
Bein keisarafjölskyldunnar voru grafin úr jörðu árið
1991 og staðfest að hér væri um að ræða Roma-
nov-fjölskylduna. Krónprinsinn og ein dóttirin voru
þó ekki þar á meðal sem jók enn á þann orðróm
að Anastasía, yngsta dóttir keisarans, hefði lifað af.
16. JÚLÍ 1918
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1627 Sjóræningjar frá Alsír koma
til Vestmannaeyja, drepa
34 Eyjabúa og taka 242
með sér.
1917 Tundurskeyti frá þýskum
kafbáti hæfir flutninga-
skipið Vestu. Skipið sekkur
á einni mínútu og fimm
menn farast. Tuttugu
komust í skipsbát og ná
landi í Færeyjum.
1955 Eisenhower, forseti Banda-
ríkjanna, kemur í stutta
heimsókn til Íslands.
1969 Geimfarið Apollo 11 leggur
af stað til tunglsins.
1999 John F. Kennedy yngri og
eiginkona hans láta lífið
þegar flugvél þeirra hrapar
í Atlantshafið.
1999 Hæstiréttur sýknar Kio
Briggs af ákæru um að
hafa smyglað e-töflum til
landsins.
Romanov-fjölskyldan tekin af lífi
FORMAÐUR Sigurður B. Arnþórsson segir gífurlegar breytingar hafa orðið á starfi endur-
skoðenda síðustu tíu ár sem einkennist af mikilli alþjóðavæðingu.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
Hlynur Sigtryggsson
fyrrverandi veðurstofustjóri, lést aðfaranótt 14. júlí.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
22. júlí kl. 11 f.h.
Ragnheiður Hlynsdóttir
Georg A. Bjarnason
Hlynur Georgsson
Sóley Soffía Georgsdóttir
Þröstur Sigtryggsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ásta Kristín Erlingsdóttir
grasalæknir,
lést þann 8. júlí síðastliðinn. Útför hennar verður frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 19. júlí kl. 11.
Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartaheill og minningar-
sjóð Landspítalans.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð
við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og
ömmu,
Bergþóru G. Jónsdóttur
Hjálmholti 9, Reykjavík.
Hrafnkell Björnsson Dagbjört Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Hrafnkelsson Kristín María Guðjónsdóttir
Björn Hrafnkelsson
Viðar Hrafnkelsson
„Það verður grillævintýri með
rauðvínskút,“ segir Hafliði Magn-
ússon, rithöfundur frá Bíldudal,
sem heldur upp á sjötugsafmæli
sitt og tvíburasystur sinnar, Guð-
laugar Magnúsdóttur, í dag. „Ég
held að þetta sé í fyrsta sinn sem
við höldum upp á stórafmæli sam-
an en hún flutti snemma til
Reykjavíkur,“ segir Hafliði sem
gerðist mikilvirkur í leikfélags-
málum á Bíldudal í fjölda ára. Þar
skrifaði hann handrit og leik-
stýrði. Hafliði segir mikla
grínista búa þarna fyrir austan og
hafi honum meðal annars verið
gefin nektardansmær í fimmtugs-
afmælisgjöf. „Ég á þetta á mynd-
bandi þar sem ég dansa við hana
fyrir fullum sal af fólki,“ segir
hann hlæjandi. Hafliði hefur
skrifað ýmislegt yfir ævina en tel-
ur bók sína, Togarasaga með til-
brigðum, með fyndnari bókum. ■
AFMÆLI
Sveinbjörn Dagfinnsson,
hæstaréttarlögmaður og
fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri, er 78 ára.
Þorkell Sigurbjörnsson
tónskáld er 67 ára.
Anna Kristín Arngríms-
dóttir leikari er 57 ára.
Páll Ægir Pétursson, skipstjóri og fyrrver-
andi deildarstjóri í Slysavarnarfélagi Ís-
lands, er 46 ára.
Sigrún Bjarnadóttir,
skólastjóri Hjallaskóla, er
40 ára á morgun. Sigrún
og fjölskylda hennar
taka á móti gestum í
dag kl. 19.00 á heima-
túninu á Hraðstöðum,
Mosfellsbæ.
TVÍBURAR Hafliði telur líklegt að myndin hafi verið tekin á skemmtistaðnum Glaumbæ.
Sjötugir tvíburar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
ANDLÁT
Finnbjörg Ásta Helgadóttir, Karfavogi
50, Reykjavík, andaðist á Landspítalan-
um, Fossvogi, sunnudaginn 10. júlí.
Eyjólfur Sig. Bjarnason, Víðivangi 8,
Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 12. júlí.
Jón Kristinn Ágústsson, Skipholti,
Vatnsleysuströnd, lést á hjúkrunarheimil-
inu Víðihlíð, Grindavík, þriðjudaginn 12.
júlí.
Þórunn Einarsdóttir fóstra, Skúlagötu
57, Reykjavík, lést á Landspítalanum við
Hringbraut þriðjudaginn 12. júlí.
Helgi Ingvarsson framkvæmdastjóri,
Urðarhæð 13, Garðabæ, lést á gjör-
gæsludeild Landspítala við Hringbraut
miðvikudaginn 13. júlí.
Valtýr Jónsson, áður til heimilis að
Lundargötu 3, Akureyri, lést á dvalar-
heimilinu Hlíð miðvikudaginn 13. júlí.www.steinsmidjan.is