Fréttablaðið - 16.07.2005, Síða 26
Umferðin
Á sumrin er umferðin á vegum landsins þung og er því brýnt að allir sýni
tillitssemi, aki eftir aðstæðum og spenni beltin. Auk þess er mikilvægt að
athuga festingar á tengivögnum áður en lagt er af stað.[ ]
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Strípað vöðvabúnt á hjólum
Knapi „Hraðaþristsins“ fær vindinn ómengaðan í fangið.
Triumph Speed Triple árgerð
2005 er nýjasta kynslóð klæðn-
ingarlauss sporthjóls sem höfðar
til knapa sem vilja skera sig úr
fjöldanum.
Á hinum hraðfleygu neyzlutímum
sem við lifum á er farartækjafram-
leiðendum keppikefli að kaupendur
framleiðslu þeirra skynji viðkom-
andi tæki sem eitthvað einstakt,
eitthvað sem hefur sérstakt gildi
umfram notagildið.
Með Speed Triple-hjólinu, sem
kom fram í sinni fyrstu mynd fyrir
rúmum áratug, hefur hinni endur-
reistu brezku mótorhjólasmiðju Tri-
umph ótvírætt tekizt að skapa slíka
lifandi goðsögn. Uppskriftin: Kraft-
mikil þriggja strokka vél með bunk-
um af togi, sportfjöðrun, breitt stýri
og upprétt áseta, engin klæðning.
Nýjasta kynslóðin af „konungi
Streetfighter-hjólanna“ var kynnt í
vetur sem leið og nú er fyrsta slíka
hjólið komið til Íslands. Blaðamanni
bauðst að taka gripinn aðeins til
kostanna.
Við fyrstu sýn blasir við að engu
er logið um þann orðstír sem af
þessu hjóli fer; það er engu líkt. Sér-
staklega einkennandi eru frístand-
andi, krómaðar luktirnar tvær,
svartmálaður álröraramminn og
glampandi 3-í-1-í-2-pústið, sem ligg-
ur upp í tvo stóra hljóðkúta uppi
undir sæti. Kútarnir enda framar-
lega – afturbrettisendinn með núm-
eraplötunni teygir sig langt aftur úr
– en þetta lætur hjólið líta út fyrir
að vera halaklippt og minnir á Bu-
ell-hjól. Enn eitt einkennið er sterk-
legur einarmurinn sem heldur aft-
urhjólinu.
Meðal helztu nýjunga frá síðustu
kynslóð er að vélin er nú 1050 rúm-
sentimetrar í stað 955, kúplingin og
sex gíra gírkassinn sem skila mýkri
skiptingum, að framan er kominn
hvolfgaffall frá Showa með 45 í stað
43 mm dempararörum, öflugri
Nissin-hemlar og mælaborðseining-
in, sem skartar hefðbundnum snún-
ingshraðamæli og stafrænum skjá
sem sýnir hraða og aðrar upplýsing-
ar sem ökumann lystir að fræðast
um.
Það sem ekki hefur breytzt er
hið hljómfagra urr sem þriggja
strokka, vatnskælda innspýtingar-
vélin sendir út um hljóðkútana tvo.
Hún dettur í gang með þessu þægi-
lega urri er þrýst er á gangsetning-
arhnappinn og kallar á að vera gef-
ið inn. Hún skilar nú 130 hestöflum
við 9100 snúninga og 105 Newton-
metra togi við 5100 snúninga. Vélin
er stillt inn á að skila miklu togi yfir
breitt snúningssvið – yfir 95 Nm
eiga að vera til ráðstöfunar frá 3300
snúningum upp að útsláttarmark-
inu, sem er við 9500 snúninga. Þar
sem reynsluaksturhjólið var ekki
full tilkeyrt var í prófunarakstrin-
um ekki hægt að láta reyna að fullu
á þennan mikla kraft, en tillitssam-
ur tilkeyrslu-snúningur dugði alveg
til að sýna að aflið í þessari vél er
slíkt að maður má hafa sig allan við
til að vera ekki síprjónandi.
Innspýtingin og inngjöfin eru
greinilega það vel stillt að vélin
bregst við minnstu hreyfingu hægri
handarinnar. Eini gallinn er að þeg-
ar slegið er af og gefið aftur inn
kemur högg í drifkeðjuna, þetta
getur spillt aðeins fyrir aksturslín-
unni í beygjum og verið hvimleitt í
bæjarumferðinni. Með því að spila
af næmni á kúplingu og inngjöf er
þó að mestu hægt að temja þessa til-
hneigingu.
Í stuttu máli er Triumph Speed
Triple strípað vöðvabúnt á hjólum,
sem lætur ótrúlega vel að stjórn.
Hjól sem er sér á parti, enda er út-
litið er engu líkt og sjálfsagt ekki að
allra smekk. En það á heldur ekki að
vera. Þetta er karakterhjól fyrir
knapa sem vilja skera sig úr fjöld-
anum.
audunn@frettabladid.is
REYNSLUAKSTUR
TRIUMPH SPEED TRIPLE
Vél: Vatnskæld þriggja
strokka línuvél,
innspýting.
Rúmtak: 1050 rúmsm.
Afl: 130 hö/95,6 kW
v. 9100 sn/mín.
Tog: 105 Nm v. 5100
sn/mín.
Hröðun: 3,4 s 0-100 km/klst
Hámarkshraði: 240 km/klst
Rammi: álrör, vél meðberandi.
Fjöðrun: Hvolfgaffall framan,
einarmur aftan.
Þyngd: þurrvigt 189 kg.
Verð: 1.577.000 kr.
Umboð: Krossgötur ehf.
Ameríkanar eru þekktir fyrir að vilja hafa bílana sína stóra, en fyrir-
tækið ZAP í Kaliforníu hyggur samt sem áður að smábílarnir Smart
geti náð vinsældum og ætla sér að hefja sölu á þeim innan
skamms. Bílarnir hafa verið mjög vinsælir í Evrópu þar sem þeir eru
sparneytnir og auðvelt að leggja þeim í lítil stæði.
Snurða hefur hins vegar hlaupið á þráðinn þar sem Smart fyrirtækið
vill alls ekki eiga í viðskiptum við ZAP. Telja forráðamenn Smart
þeim kalifornísku hvorki treystandi fyrir greiðslu né muni þeim
takast að viðhalda góðum orðstír bílanna.
ZAP þarf því að panta bílana frá umboðsaðila og fá svo annan aðila
til að breyta þeim þannig að þeir mæti bandarískum öryggisstöðl-
um, en munu þó ekki mæta ströngustu skilyrðum í Kaliforníu og
fjórum öðrum ríkjum.
Til þess að vekja áhuga á smábílnum seldi ZAP einn Smart bíl á E-
bay sem áritaður var að leikaranum Rutger Hauer og eru ZAP menn
bjartsýnir á að bíllinn seljist vel þar sem bensínlítrinn hefur náð
sögulegu hámarki og þörfin á sparneytnum bílum eykst. ■
Smábíllinn á leið til Ameríku
BANDARÍKJAMENN VILJA FÁ SPARNEYTNA SMÁBÍLINN SMART EN EVRÓPUMENN KVÁÐU TREGIR TIL ÞESS AÐ LÁTA HANN.
Smart smábíllinn hefur slegið í gegn í Evrópu og nú
stendur til að selja hann í Ameríku.
Frístandandi framluktirnar tvær hafa ein-
kennt Speed Triple frá upphafi.
Háttliggjandi krómkútar og 180 mm hjól-
barði einkenna baksvipinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N