Fréttablaðið - 16.07.2005, Side 29

Fréttablaðið - 16.07.2005, Side 29
5LAUGARDAGUR 16. júlí 2005 Mikið tap var hjá Mercedes-einingunni hjá DaimlerChrysler á fyrsta ársfjórð- ungi 2005. Nýr jeppi frá DaimlerChrysler DaimlerChrysler mun setja nýja jeppann á markað á næsta ári. DaimlerChrysler AG ætlar að kynna nýjan jeppa fyrir Norður-Ameríku markað á næsta ári. Jeppinn verður framleiddur af Sterling Truck Cor- poration sem er hluti af Freightliner deild DaimlerChrysler. Jeppinn verð- ur sá fyrsti sem byggður verður úr ólíkum íhlutum frá ýmsum merkjum DaimlerChrysler, eins og til dæmis Mitsubishi Fuso í Japan. Hagnaður DaimlerChrysler minnkaði um þrjátíu prósent á fyrsta ársfjórð- ungi 2005 vegna mikils taps hjá Mercedes en fyrirtækið tilkynnir um sölu annars ársfjórðungs í lok þessa mánaðar. Nýi Mercury Mariner er með blend- ingsvél og nýtir eldsneyti fimmtíu pró- sent betur en venjulegur Mariner. Annar blendings- bíll frá Ford Motor Ford kynnti blendingsbílinn Escape fyrir stuttu og Mercury Mariner nú í vikunni. Ford Motor í Bandaríkjunum frum- sýndi annan bíl sinn með blendings- vél í vikunni, það er bíl sem gengur bæði fyrir bensíni og rafmagni. Ford sagðist hafa flýtt útgáfu Merc- ury Mariner 2006 jeppans með blendingsvél vegna sterkra og góðra viðbragða við Escape bílinn með blendingsvélinni sem frumsýndur var fyrr á þessu ári. Áður en Mercury Mariner var settur á markað höfðu borist 27 pantanir en eingöngu er hægt að panta bílinn á netinu á vef- síðu Lincoln Mercury. Mariner með blendingsvél nýtir eldsneyti fimmtíu prósent betur en venjulegur Mariner og kemst rúm- lega 53 kílómetra á rúmlega þrem lítrum í þéttbýli og tæplega 47 kíló- metra í dreifbýli. Bílaáhugamenn og þeir sem hafa áhuga á samgöngutækjum í gegn- um tíðina verða ekki sviknir af innliti á Samgönguminjasafnið sem er í Stóragerði í Óslandshlíð. Það er Gunnar Kristinn Þórðar- son bifvélavirki sem á heiðurinn af því að hafa gert upp flesta bíl- ana og gert þá aðgengilega gest- um og gangandi. „Þetta byrjaði þegar ég var bifvélavirki á Sleitustöðum sem er hér rétt hjá,“ sgir Gunnar. „Bíl- arnir fóru að sankast að mér, ég var alltaf að gera upp einn og einn bíl og átti orðið mikið af þeim. Hins vegar hef ég ekki gert þá alla upp eins og nýja, suma gróf- laga ég bara og hef þá ekki endi- lega gangfæra. Ég var svo hvatt- ur til að gera úr þessu sam- gönguminjasafn og það varð úr í fyrra, nánar tiltekið 26. júní, að safnið var opnað með pompi og prakt.“ Gunnar veit ekki nákvæmlega hversu margir bílarnir eru á safn- inu en fyrir utan bílana hefur hann gert upp gamlar dráttarvél- ar og er með ýmislegt fleira sem tengist samgöngusögunni. Uppá- haldsbíllinn hans er gamall mjólk- urbíll. „Þetta er bíll með merkilega sögu. Hann er með þreföldu húsi því mjólkurbílar voru líka sér- leyfisbílar þegar ekki tíðkaðist að menn væru með bíla á bæjunum. Annars eru þeir margir fallegir og þeir elstu frá 1930,“ segir Gunnar. Samgöngusafnið í Stóragerði er mitt á milli Hofsóss og Hóla í Hjaltadal og er opið alla daga frá klukkan 13-18 og eftir umtali. Glæsifákar úr stáli í Skagafirði Skagfirðingar eiga ekki bara gæðinga af hestakyni því í Stóragerði hefur verið opnað Samgöngu- minjasafn þar sem er samsafn glæsilegra gamalla bifreiða. Gunnar er stoltur af bílunum á safninu, ekki síst gamla mjólkurbílnum og gömlu dráttarvélunum. Svartir og glæsilegir eðalfákar. Einhvern tíma höfðu þessir bílar stærra hlutverk en að vera til sýnis. Kia Opirus er sjálfskiptur og á viðráðan- legu veðri. Kenndur við gull og fílabein Kia umboðið á Íslandi hefur hafið sölu á Kia Opirus, dýrari miðlungsbíl. Kia umboðið á Íslandi hefur hafið sölu á nýjum bíl, Kia Opirus, sem er ætlað að sækja inn á markað fyrir dýrari miðlungsbíla. Bíllinn dregur nafn sitt af fornu borginni Ophir sem í eina tíð var miðstöð verslunar með gull og fílabein. Fjögur ár og um 167 milljónir, eða ellefu milljarðar króna, dala hafa farið í smíði bílsins. Opirus er staðsettur mitt á milli miðlungsbíla og minni lúxusbíla og er bíllinn borinn saman við Nissan Maxima QX, Peugeot 608, Chevrolet Caprice og Chrysler 300M. Bíllinn er hugsaður fyrir markaði í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu, er sjálfskiptur og kostar 4.230.000 krónur. Komin eru á markað sérstök golfgleraugu til að skerpa sjón golfleikara í hvaða veðri sem er en gleraugun eru líka upplögð til að skerpa sjón ökumanna eins og fram kemur á heimasíðu FÍB, fib.is. Maðurinn á bak við gleraugun er Torbjörn Stehager en hann er áhugamaður um golf og talstöðvarfjarskipti. Það tók hann tíu ár að þróa golfgleraugun sem hann kallar Roxor en þeir sem hafa prófað undragleraugun segjast sjá allt mun skýrar. Það sem truflaði Stehager mest í golfinu er það hve erfitt er fyrir mannsaugað að greina milli blæbrigða græna litarins á grasinu á og í um- hverfi vallanna á sama tíma og það greinir vel önnur litablæbrigði. Eitt af því sem Roxor gler- augun gera er að sía græna litinn en við það greinir augað aðra liti og blæbrigði miklu skýrar. Enn fremur er glerið pólariserað til að deyfa glampa og endurkast, til dæmis frá vatni í sól- skini. Roxor gleraugun greina vel allar andstæður í umhverfi og sjá þeir því skýrar vega- og gangstéttarkanta, yfirborðsmerkingar, skilti og aðra umferð. Roxor gleraugun fást í öllum Synsam gleraugnaverslunum í Svíþjóð og kosta frá um tólf þúsund íslenskum krónum en nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni roxor.se. Greina andstæður í umferðinni Svíinn Torbjörn Stehager hefur sett á markað sérstök golfgleraugu sem geta hjálpað ökumönnum. Roxor gleraugun henta mjög vel fyrir golfara, ökumenn og stang- veiðimenn. General Motors með metsölu í Kína Bandaríski bílaframleiðandinn vinnur hægt og sígandi á þýska keppinaut sinn, Volkswagen. Bílaframleiðandinn General Motors greindi nýverið frá metsölu í Kína og má af því ráða að þessi bandaríski bílarisi færist æ nær keppinaut sínum, Volkswagen, á þriðja stærsta bílamarkaði heims. General Motors seldi 308.722 bifreiðar á fyrstu sex mán- uðum á þessu ári sem er 18,9 prósenta hækkun frá árinu áður. Framleiðandinn jók markaðshlutdeild sína í Kína upp í 10,9 prósent í júní. Volkswagen hefur á hinn bóg- inn verið að missa tökin í Kína og er nú með þrettán pró- senta markaðshlutdeild en var með tuttugu prósent. General Motors ætlar að fjárfesta fyrir rúmlega þrjá milljarða dollara í Kína með það að leiðarljósi að tvöfalda bifreiðarnar sem fyrirtækið framleiðir í landinu, eða upp í 1,3 milljónir árið 2007.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.