Fréttablaðið - 16.07.2005, Qupperneq 48
GLERFÍN Nú er einmitt
í tísku að vera í kjólum
og bolum sem eru
þröngir undir brjóstun-
um en víkka svo út.
SUMARLEG Mörgum
finnst konur aldrei jafn
fallegar og þegar þær
eru ófrískar.
Ásumrin verða ófrískar konur alltaf meiraáberandi. Hvort sem það er frjósemivorsins að þakka eða bara sú staðreynd
að það þurfa ekki allir að ganga í dúnúlpum
lengur, þá er alltaf jafn gaman að sjá geislandi
konur með barn undir belti. Þær vilja þó oft
gleymast þegar fjallað er um tísku og fatnað
en það eru einmitt fá tímabil í lífi kvenna þar
sem þær þurfa jafn mikið á því að halda að fá
föt við hæfi. Margar konur gera þau leiðinlegu
mistök að kaupa bara bunka af of stórum föt-
um eða skella sér í jogging um leið og annað
hættir að passa. Nú er hins vegar engin afsök-
un fyrir því að líta ekki vel út á meðgöngunni
því á síðustu árum hafa opnað búðir sem selja
föt sem eru sérhönnuð fyrir óléttar konur. Ein
þeirra er búðin Tvö líf. Fötin í Tveimur lífum
eru sérsniðin til að vaxa með konunni á með-
göngunni og fyrstu mánuðina eftir barnsburð.
„Konur ættu ekki að kaupa of stór föt því þá
tapa þau algjörlega sniðinu og sitja illa,“ segir
Sigga Lára, annar eigandi Tveggja lífa. Nú
hafa ekki allar konur efni á því að kaupa sér
nýjan fataskáp á meðgöngunni og því ráðlegg-
ur Sigga Lára konum að kaupa þrjár lykilflík-
ur. Það eru fyrst og fremst góðar svartar bux-
ur eða gallabuxur. „Við erum með rosa góðar
gallabuxur sem eru háar að aftan en sniðnar
undir bumbuna að framan. Innan í þeim er svo
teygja svo það er hægt að stilla mittisbreidd-
ina innan frá.“ Næst nefnir hún það sem þær
kalla „framlengingin“, sem lítur út eins og
hlíralaus bolur. „Þetta er alveg nauðsynlegt og
er ekki dýrt. Konur eru í þessu undir öðrum
bolum sem verða stuttir þegar
maginn stækkar. Framlengingin
kemur þá í veg fyrir að konurnar
séu með bert á milli.“ Í þriðja lagi
er það svo bolur eða kjóll sem hent-
ar konum á meðgöngu en er
einnig sérhannaður til að auð-
velda brjóstagjöf. Konur verða
oft pirraðar þegar þær leita sér
að fötum og ekkert passar.
„Ég vil bara ráðleggja
konum að gefa sér næg-
an tíma og velja sér
grunnflíkurnar í búðum
sem selja sérhönnuð
meðgönguföt,“ segir
Sigga Lára. Fyrir sæta
boli, kjóla og gamm-
osíur er svo hægt að
fara í flestar tískubúð-
ir og er tískan núna sér-
staklega hagstæð þar
sem mikið úrval er af
bolum sem eru
þröngir undir brjóst-
unum og víkka svo
út.
soleyk@frettabladid.is
32 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
„Svalasta mynd ársins og besta
mynd þessa sumars.“ Þ.Þ. FBL
AB Blaðið
„Sin City er mynd sem enginn
ætti að láta framhjá sér fara.“
H.L. MBL
T.V. kvikmyndir.is
D.Ö.J kvikmyndir.com
K&F XFM
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT.
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
KOMIN Í BÍÓ
MÓÐUR VIKUNNAR
> HILDA FER YFIR MÁLIN
Ég fór í bæinn á þriðjudaginn með vinkonum mínum að kaupa
föt á nýfætt stúlkubarn annarrar vinkonu okkar. Við gengum
úr barnafatabúð í aðra barnafatabúð æpandi og flissandi.
„Oohhh, sjáiði hvað þetter ógulega dúllulett!“ Fórum ómeðvit-
að að tala eins og fífl. „Æjji smjúsí bússí gúss.“, „Sjáiði þess-
ar næðbussur og þennan næðbooool!“
Rosalega hlýtur að vera gaman að kaupa föt á barnið sitt.
Mér finnst gaman að kaupa föt yfirleitt en þessi föt eru bara
svo dúlló. Eitt sem truflar mig samt óskaplega mikið er þetta
bleika og bláa dót. Af hverju
má ekki kaupa bleik föt á
stráka? Þetta er meira líbó
stúlknamegin, því þær geta jú
verið í gallakjólum og svoleið-
is en bleika boli eða peysur á
stráka? Sjaldséð sjón. Mér
finnst þetta ótrúlega asnalegt
og ætla ekki að velja liti á
börnin mín eftir kyni.
Það skemmtilegasta við að
versla föt á börn er örugglega
sú staðreynd að börn vaxa upp
úr gömlum fötum. Frábær af-
sökun til að kaupa meiri föt.
Ég vildi að ég hefði svona af-
sökun. Í staðinn hef ég tvö
vandamál. Annað vandamálið
er að ég á engin föt til að vera í. Hitt vandamálið er að ég á svo
mikið af fötum að fataskápurinn minn er orðinn of lítill. Skrít-
ið, ekki satt? Þegar ég er að fara út þá stend ég oft fyrir fram-
an skápinn og horfi og horfi, leita í öllum fötunum.....að fötum.
„Ég á engin fööööt!“ góla ég svo hástöfum en veit að það er
ekki satt. Stundum fæ ég samviskubit yfir því að kvarta yfir
fataleysi þegar ég á víst föt og fullt af litlum sætum börnum
úti í heimi eiga engin. Finnst ég þá vanþakklát og ég geti nú
bara gengið í gömlu tarkbuxunum því þær eru jú föt. Nei, ég
get það ekki.
Ég veit samt að ég er ekkert ein um þetta. Það mætti í raun-
inni kalla þetta alheimsvandamál. Maður verður þreyttur á
fötunum sínum og smám saman verða þau hallærisleg.
Kannski er þetta bara ágætt, því einhver verður að sjá um eft-
irspurnina svo öll fatafyrirtækin lognist ekki bara út af. Eins
og afi minn segir um hana ömmu í hvert skipti sem hún kaup-
ir eitthvað nýtt: „Einhver verður jú að sjá um að halda hag-
vextinum við.“
Höldum hagvextinum vi› F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
O
G
G
ET
TY
Nú er komið á markað-
inn nýtt vopn í hrukku-
baráttuna. Það er krem
frá Chanel sem heitir
Rectifiance intense
sérum og menn í her-
búðum Chanel halda
því fram að þetta sé
fyrsta kremið sem
r a u n v e r u l e g a
dragi úr og komi í
veg fyrir hrukku-
myndun. Konur sem hafa
prófað kremið segja það
hafa góð áhrif á húðina og
eru flestar á þeirri skoðun
að hrukkurnar hafi minnk-
að. Það er einnig mjög gott
fyrir konur með viðkvæma
húð. Kremið er í fallegri
pakkningu eins og flestar
aðrar vörur frá Chanel og
er ætlað konum 35 ára og
eldri.
Mjúk og geislandi hú›
DUE IN ...
Holllywood-
stjörnur eins
og Gwyneth
Paltrow og
Courtney
Cox gengu í
meðgöngu-
fötum frá
þessu merki.
BUXUR Þessar buxur eru með háan
streng sem hægt er að hafa yfir eða
undir bumbunni. Þær verða til í mörg-
um litum þegar nýja sendingin kemur.
BIKINÍ Það eru til margar tegundir af
meðgöngubikiníum í Tveimur Lífum.
GALLABUXUR Sniðnar und-
ir bumbu að framan en eru
háar að aftan. Þrengdin er
stillanleg í mittinu.
PILS Ný sending, með haust-
vörum, kemur í Tvö líf strax í
næstu viku. „Haustvörurnar eru
oft skemmtilegri en sumarvör-
urnar og við fáum fullt af æðis-
legum fötum,“ segir Sigga Lára.
KJÓLL Auk þess
að vera fallegur
á meðgöngunni
er þessi kjóll sér-
hannaður til
þess að auð-
velda brjóstagjöf.
KRÚTTLEG Þessi
stelpa er krúttleg í
bómullarkjól og
gammósíum.
CHANEL KREMIÐ Nýjasta kraftaverkakremið á markaðnum.
FRAMLENGINGIN
Til að vera í undir
þeim bolum sem þær
eiga fyrir. Fæst í mörg-
um litum.
Blómstrandi og smart
á me›göngunni
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR