Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2005, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 16.07.2005, Qupperneq 50
FÓTBOLTI José Mourinho, knatt- spyrnustjóri Chelsea, hrósaði Eiði Smára Guðjohnsen í hástert eftir fyrsta æfingaleik félagsins á tímabilinu gegn Wycombe Wand- erers, en honum lauk með 5-1 sigri Chelsea. „Við höfum framherjana Carlton Cole, Didier Drogba og Hernan Crespo, og við getum að auki notað Eið Smára alls staðar þar sem við viljum. Hann var mjög góður í hlutverki sínu á miðjunni á síðustu leiktíð. Þar nýtur hann sín. Hann er fljótur að aðlagast ólíkum hlutverkum og gefur liðinu mikið sem miðjumaður.“ Fremsti miðjumaður Allt stefnir í að Eiður Smári verði notaður sem fremsti miðju- maður hjá Chelsea en í því hlut- verki hefur hann spilað sína bestu leiki fyrir félagið. Í leiknum gegn Wycombe byrjaði Eiður vinstra megin á miðjunni en færði sig svo alveg inn á miðju þegar líða tók á leikinn. Carlton Cole, sem spilaði sem lánsmaður hjá Aston Villa á síð- ustu leiktíð, var á skotskónum í þessum leik og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið í tvö ár. Tékkinn Jirí Jarosik skoraði tvö mörk fyrir Chelsea, en hann lék inni á miðjunni í fjarveru Claude Makalele sem fékk lengra sumar- frí en aðrir leikmenn félagsins. Damien Duff og Joe Cole gerðu sitt markið hvor, en þeir þóttu báðir leika vel. Færri en búist var við Færri leikmenn hafa komið til félagsins í sumar en búist var við en Mourinho er ánægður með þá leikmenn sem eru hjá félaginu. „Kannski koma tveir leikmenn til viðbótar en það er ekkert víst. Ég kvarta ekki yfir þeim leik- mönnum sem eru hérna og tel okkur ekkert nauðsynlega þurfa fleiri leikmenn. En góðir leik- menn eru alltaf velkomnir hingað.“ Næsti æfingaleikur Chelsea er gegn Benfica á sunnudaginn og hann í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 22.00 á morgun. -mh Vinningar: Verðlaun fyrir 4 efstu sætin í punktakeppni með forgjöf: 1. 100.000 Vildarpunktar frá Vildarklúbbi Icelandair til farseðlakaupa hjá 2. Flug fyrir tvo til einhvers áfangastaðar í Evrópu. 3. - 4. Vöruúttekt hjá golfvöruverslun að upphæð 20.000 kr. hvor. Verðlaun fyrir 4 efstu sætin í höggleik án forgjafar: 1. 100.000 Vildarpunktar frá Vildarklúbbi Icelandair til farseðlakaupa hjá 2. Flug fyrir tvo til einhvers áfangastaðar í Evrópu. 3. - 4. Vöruúttekt hjá golfvöruverslun að upphæð 20.000 kr. hvor. Nándarverðlaun á öllum par þrjú brautunum. Aukaverðlaun fyrir holu í höggi á 2. braut: 1.000.000 kr. innborgun á VISA-kreditkortið. Allir keppendur fá teiggjöf og í mótslok verður dregið úr skorkortum þeirra sem verða á staðnum. 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR > Við bíðum spenntir ... ... eftir leik FH og ÍA í VISA-bikar karla í knattspyrnu sem fer fram í Kaplakrika í dag. FH-ingar töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu í Evrópukeppninni í vikunni og eru nýkomnir heim eftir erfitt ferðalag. Skaga- menn hafa verið í mikilli uppsveiflu og eru til alls líklegir í þessum leik þar sem allt er undir og tapliðið missir af undanúrslitunum. Heyrst hefur ... ... að bakvörðurinn snjalli Clifton Cook eigi von á íslenskum ríkisborgararétti næsta vor eftir að hafa spilað tímabil með Hamar í Hveragerði. Cook hefur leikið á Íslandi undanfarin þrjú tímabil, fyrstu tvö með Tindastóli á Sauðárkróki og svo í fyrra með Skallagrími. Keith Vassell fékk ríkisborgararétt veturinn sem hann lék með Hamri. sport@frettabladid.is 34 > Við hrósum ... ... Fjölnisfólkinu Írisi Önnu Skúladóttur og Sveini Elíasi Elíassyni sem standa sig vel á Evrópumeistaramóti unglinga í frjálsum íþróttum. Sveinn setti íslandsmet sveina í áttþraut og Íris Anna varð í 9. sæti í 1500 metra hlaupi. Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að festa sig í hlutverki miðjumanns í besta knattspyrnuliði Bretlandseyja og stóð sig vel í fyrsta æfingaleik Chelsea. Leikurinn vannst 5–1 gegn Wycombe Wanderers í vikunni. Mourinho hrósar Eiði Smára LEIKIR GÆRDAGSINS Landsbankadeild kvenna: STJARNAN–VALUR 0–3 0–1 Margrét Lára Viðarsdóttir (82.), 0–2 Laufey Ólafsdóttir (84.), 0–3 Margrét Lára Viðarsdóttir (87.). KEFLAVÍK–BREIÐABLIK 0–1 0–1 Erna Björk Sigurðardóttir (5.). KR–ÍA 3–0 1–0 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (21.) 2–0 Hrefna Huld Jóhannesdóttir (49.), , 3–0 Júlíana Einarsdóttir (82.) ÍBV–FH Leikurinn hófst klukkan 21.00 og var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun. STAÐAN: BREIÐABLIK 9 9 0 0 31–6 27 VALUR 10 8 0 2 46–11 24 KR 9 6 0 3 30–14 18 ÍBV 8 5 0 3 28–17 15 KEFLAVÍK 9 4 0 5 22–24 12 STJARNAN 9 2 0 7 9–27 6 FH 8 2 0 6 6–27 6 ÍA 10 0 0 10 6–52 0 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 13 14 15 16 17 18 19 Laugardagur MAÍ ■ ■ LEIKIR  FH tekur á móti ÍA í VISA- bikarkeppni karla á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. ■ ■ SJÓNVARP  10.30 Opna breska meistaramótið í golfi á RÚV.  14.00 Íslandsmótið í hestaíþróttum á RÚV.  16.00 Opna breska meistaramótið í golfi á RÚV.  16.30 2005 AVP PRO strandblak á Sýn.  17.30 US PGA mótaröðin í golfi á Sýn.  17.54 Motorworld á Sýn.  19.00 Spænski boltinn á Sýn.  20.40 Hnefaleikar- Jermain Taylor – William Joppy á Sýn.  23.00 Hnefaleikar- B. Hopkins – O. De La Hoya á Sýn.  00.00 Hnefaleikar- B. Hopkins – Howard Eastman á Sýn. Almir Cosic er úrvals knattspyrnumaður, að sögn Vilbergs Jónassonar þjálfara Leiknis á Fáskrúðsfirði, sem leikur í þriðju deildinni á Íslands- mótinu. Það vakti furðu margra þegar greint var frá því í fjölmiðlum fyrr í sumar að Leiknir væri með mann innanborðs sem stuttu áður hefði verið metinn á um 300 milljónir króna. Leikmaðurinn var á mála hjá Bosníuliðinu FC Zeljeznicar, en þar var hann ekki í náðinni og þurfti að sætta sig við að spila með varaliði félagsins. Hann kom til Fáskrúðsfjarðar í gegnum vin sinn sem þar var búsettur. Þegar heimamenn fóru að grennslast fyrir um Cosic á netinu, grófu þeir upp að lið hans hafði neitað stóru tilboði frá Newcastle í leikmann- inn. Málið var að sögn Vilbergs hið gruggug- asta, því lið hans í Bosníu hafði ætlað að selja hann án þess að hann fengi nokkuð fyrir sinn snúð. Nú er hins vegar allt annað uppi á teningnum fyrir Cosic, sem nýtur lífsins í Búða- hreppi til fullnustu og er smátt og smátt að komast inn í hinn íslenska 3. deildarbolta. „Þetta eru auðvitað mikil viðbrigði fyrir manninn. Hann er vanur því að spila á fullkomnum völlum fyrir tugþúsundir manna. Það er auðvitað allt annað uppi á teningnum í þessum kartöflugörðum sem sumir vellirnir hérna eru,“ sagði Vilberg. Maður skyldi ætla að maður sem metinn hefur verið á 300 milljónir króna væri yfirburðamaður í þriðju deildinni. „Hann er vissulega góður, það vantar ekki, en hann á enn eftir að aðlagast hlutunum betur. Það sem mér finnst best við hann er yfirferðin, hraðinn og dugnaðurinn í honum. Svo mætir hann alltaf á réttum tíma á æfingar og er aldrei með neina stjörnustæla,“ sagði Vilberg að lokum um dýrasta knatt- spyrnumann á Íslandi. ALMIR COSIC HJÁ LEIKNI Á FÁSKRÚÐSFIRÐI: FERILINN HEFUR VERIÐ Í MEIRA LAGI SKRAUTLEGUR Frétti af áhuga Newcastle á Fáskrú›sfir›i EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Eiður sést hér reyna langa sendingu í leiknum gegn Wycombe. Hann leikur að öllum líkindum sem fremsti miðjumaður hjá félaginu á næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Opna breska golfmótið: Stu› á Tiger GOLF Tiger Woods er með fjögurra högga forustu á Colin Mont- gomerie þegar tveimur hringum er lokið á Opna breska meistara- mótinu í golfi. Tiger lék fyrstu tvo hringina á 133 höggum eða 11 undir pari. Jack Nicklaus komst ekki í gegnum niðurskurðinn og lék því síðasta golfhring sinn á ferlinum í gær. Nicklaus lék hringinn á pari sem er frábært afrek hjá hinum 65 ára gamla Nicklaus. Hann var hylltur vel og lengi eftir að hann lauk leik á 18. holunni. -óój
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.