Fréttablaðið - 16.07.2005, Page 55
LAUGARDAGUR 16. júlí 2005 39
Hannes Lárusson og
eiginkona hans Kristín
Magnúsdóttir vilja setja
á fót miðstöð sem varð-
veitir torfbæjarhefð Ís-
lendinga.
„Ég er búinn að kynna hugmyndina
fyrir landbúnaðarráðuneytinu,
Þjóðminjasafninu, Húsafriðunar-
nefnd og Bæjarstjórn Árborgar og
hún er komin inn á borð hjá Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Það er verið að ræða næstu skref í
þessu og ekki seinna vænna. Mönn-
um finnst þetta allt saman gott og
jákvætt en enginn sem gerir neitt í
því. Smám saman fjarlægjast menn
arfleið torfbæjarins og hún verður
hluti af einhverrri fortíð sem menn
skilja illa,“ segir Hannes Lárusson
myndlistarmaður sem kynnt hefur
hugmynd sína um torfbæjarmið-
stöð fyrir nokkrum aðilum hér á
landi. Torfbæjarmiðstöðinni er
ætlaður staður á Austur-Meðal-
holtum í Flóa, rétt fyrir utan Sel-
foss, en þar hefur Hannes gert upp
torfbæ síðastliðin 20 ár.
Tilgangur miðstöðvarinnar
„Torfbærinn er að hverfa af yfir-
borði jarðar í orðsins fyllstu merk-
ingu. Margir aðilar eru velviljaðir
torfbæjarhefðinni og hafa sumir
lagt gríðarlega mikið af mörkum til
að reyna að varðveita hana, menn
eins og Hörður Ágústsson svo ein-
hver sé nefndur. En það er ákveðið
andvaraleysi hvernig á að varð-
veita þessa hefð og þróa hana
áfram þannig að á undanförnum
árum hefur sigið á ógæfuhliðina og
torfhúsum fer fækkandi ár frá ári.
Það er ekki hægt að kalla torfbæj-
arhefðina lifandi hefð í neinum
skilningi heldur er hún deyjandi og
er það menningarlegt slys. Þetta er
eins og að glata niður tungumáli
sem allir töluðu einu sinni,“ segir
Hannes sem vill sporna við þessari
þróun en segir það nánast orðið of
seint. „Íslendingum ber að varð-
veita þessa hefð því hún varðar
menningarverðmæti sem rista
dýpra en svo að þau snerti Íslend-
inga eina saman.“
Hannes segir tvær meginhættur
steðja að torfbæjarhefðinni. Ann-
ars vegar að menn hafni henni sem
úreltri og lélegri og hins vegar að
menn upphefji hana sem ósnertan-
legan safngrip. Hann telur að menn
þurfi að lifa með þessari hefð eins
og þeir hafa gert í þúsund ár því ef
menn verða stoltir af henni þá vex
hún að sjálfu sér og finnur sér til-
gang.
Hannes segir að torfbæjarmið-
stöðin hefði það að markmiði að
sinna kerfisbundinni kennslu í
vinnubrögðum sem snerta gerð og
viðhald torfbygginga, hvað snertir
jarðvegsvinnu, hleðslutækni, tré-
smíði og fleira. Jafnframt hefði
miðstöðin með höndum rannsóknir
á verklagi, verkfærum og annarri
hefðbundinni tækni og hugsunar-
hætti sem varðar torfbyggingar. Þá
myndi þessi miðstöð einnig kapp-
kosta að forða frá glötun gömlum
aðferðum og lifnaðarháttum sem
tengjast torfbænum. Einnig myndi
miðstöðin leitast við að túlka og
skoða torfbæinn á grundvelli þró-
unarmöguleika hans og fordæmis í
tengslum við umhverfisvænan
arkitektúr og fagurfræðilegt sam-
hengi við umhverfið, umhverfis-
vernd og lífræna ræktun, list-
sköpun og handverk.
Íslendingar fúlsuðu við torfbænum
„Íslendingar eru ekki stoltir af torf-
bænum þrátt fyrir að hann sé senni-
lega eina framlag Íslendinga til
byggingalistar í heiminum. Það
hefur ekki tíðkast að menn leggi út í
að byggja torfbæi, hlaðna veggi eða
skemmur úr torfi og grjóti. Íslend-
ingar leggja ekki stolt í það, það
þykir ekki kúl. Torfbærinn hefur
ekki yfir sér þá helgi sem slíkar
byggingar hafa hjá öðrum þjóðum.
Menn ættu vera stoltir yfir og bera
virðingu fyrir torfbænum því í
þessum húsum birtist ákveðin
þekking á sögunni og landinu,“ seg-
ir Hannes.
„Torfbærinn lenti úti á jaðrinum
um 1930. Meðan við vorum enn þá
undir Dönum vorum við Íslend-
ingar svona hallærisblesar, hálf-
gerðir bakkabræður. Svo byrjaði
sjálfstæðisbaráttan á fjórða ára-
tugnum og menn hófust handa við
að hreinsa upp fortíðina og torf-
bærinn lenti í þeirri hreinsun.
Fram að því höfðu menn alveg sætt
sig við að torfbærinn væri hluti af
menningararfi okkar,“ segir Hann-
es og bætir því við að tvær ástæð-
ur séu fyrir þessari höfnun. Annars
vegar nútímavæðing Íslands og
hins vegar að þjóð sem hefði ekki
öðru fram að tefla en torfbænum
sem framlagi sínu til heimsbygg-
ingalistarinnar ætti ekki skilið að
vera sjálfstæð.
„Við erum komin úr alveg nógu
mikilli fjarlægð frá torfbænum til
að fara að skoða hann með opnum
huga, hætta að skammast okkar fyr-
ir hann og gefa honum annan séns.“
Áhugi á torfbænum erlendis
„Það er mikil áhugi á torfbænum
meðal fagmanna úti í heimi, sér-
staklega fólki sem pælir í umhverf-
isvænum arkitektúr og í notkun á
náttúrulegum byggingarefnum og
hvernig hægt er að aðlaga mann-
virki að náttúrunni. Torfbærinn er
eitt af allra bestu dæmunum sem
hægt er að finna varðandi það.
Menn sjá um leið að þarna er um að
ræða mjög ríka hefð og eru flestir
hissa á því að henni sé ekki haldið
meira fram af Íslendingum, að þeir
skuli ekki vera stoltari en í raun af
torfbænum,“ segir Hannes sem
hélt sex fyrirlestra um torfbæinn í
háskólum í Kanada í vor.
„Það þarf að rannsaka torfbæj-
arhefðina út frá þeim vaxtarmögu-
leikum sem hún býr yfir sem eru að
sumu leyti ófyrirsjáanlegir, þeir
geta tengst grænum arkitektúr,
ferðaþjónustu með ýmsu sniði, hug-
myndum um endurnýtanlegt bygg-
ingarefni, lífrænni ræktun og ann-
að slíkt. Þetta er ákveðin lífssýn
eða hugmyndafræði sem getur búið
yfir alls konar möguleikum. Torf-
bærinn býr yfir lífsgæðum sem
ekki er hægt að öðlast með öðrum
hætti og ef menn glata torfbæjar-
hefðinni alveg úr höndunum er ekki
hægt að öðlast þessi gæði aftur. Því
er mikilvægt að það komist á dag-
skrá að sinna þeirri byggingararf-
leið sem er þrátt fyrir allt er líklega
það eina verulega eftirtektarverða
sem Íslendingar hafa lagt til bygg-
ingarsögunnar jafnvel þó að bein-
harður gróði af því sé ekki alveg
augljós strax,“ segir Hannes.
ingi@frettabladid.is
Torfbærinn að hverfa af yfirborði jarðar
AUSTUR-MEÐALHOLT Torfbærinn á Austur-Meðalholtum í Flóa sem Hannes hefur verið
að gera upp síðastliðin tuttugu ár. „Við viljum að þarna verði miðstöð sem varðveitir torfbæj-
arhefðina með því að rækta handverkið og handverkskunnáttuna með skipulögðum hætti.“
HANNES LÁRUSSON Vill koma á fót
torfbæjarmiðstöð á Austur-Meðalholtum í
Flóa en Hannes telur að landsvæðið í
kring sé einkar heppilegt undir slíka mið-
stöð meðal annars með tilliti til torftekju
og annars slíks.