Fréttablaðið - 16.07.2005, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍSKALDUR
EINN LÉTTUR
Málum bæinn
RAUÐAN!
ÚTSÖLULOK
ÚTSÖLULOK
ÚTSÖLULOK
Sumarútsala
IKEA
endar
24. júlí
Sjá
vörulýsingu
á bakhli
Allt til
heimilisins
undir
einu þaki!
IK
E
28
22
6
0
6.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Svona er fla›
Ég er ekki einn af þeim sem finnstað það sé sérstök ástæða til þess
að hafa áhyggjur af því að rapparinn
Snoop Dogg sé kominn til Íslands og
hafi tónleika á morgun. Snoop Dogg
er tónlistarmaður og syngur um hitt
og þetta. Sums staðar í textunum seg-
ir hann eitthvað sem er kannski ekki
það allra kurteisislegasta sem hægt
er að segja um konur, en það er held-
ur ekki hægt að gera þá kröfu til tón-
listarmanna að þeir séu alltaf
kurteisir við konur.
KRÖFUR um háttvísi eiga ekki við í
listum. Ef svo væri yrði varla hægt
lengur að túlka reiði, geðveiki heimsins,
pólitiskt rugl, óréttlæti og böl. Ein leiðin
til að mótmæla böli – og þá líka böli sem
snýr að kynjamisrétti – á listrænan hátt
er að vera sjálft bölið. Sýna fólki bölið.
Syngja um bölið. Þykjast vera það.
Þannig geta listamenn sýnt okkur
hinum eitthvað sem við annað hvort
höfðum ekki séð eða vildum ekki sjá.
ÉG veit ekki hvort að Snoop Dogg er
að spá í það að breyta heiminum eða
opnu augu fólks eða eitthvað þegar
hann syngur svona um konur, en mér
finnst það ekkert ólíklegt. „Svona er
þetta,“ er hann að segja. „Svona er
veröldin.“ Og þetta bragð listamanna
til þess að draga upp mynd af veru-
leikanum er svo alþekkt í öllum teg-
undum lista – málverkum, kvikmynd-
um, bókmenntum, tónlist -
að mér finnst eiginlega bara skrítið
ef fólk fattar þetta ekki. Snoop Dogg
er ekki haldin kvenfyrirlitningu þótt
hann dragi upp mynd af heimi fullum
af kvenfyrirlitningu í textum sínum.
Þetta er augljóst mál.
EN svo getur líka verið að maðurinn
sé reiður út í konur. Það er ekki hægt
að útiloka það að hann hafi lent illa í
því, þó svo reyndar að það verði ekki
séð af tónlistarmyndböndunum hans,
þar sem hann er yfirleitt umvafinn
þokkagyðjum á hægri og vinstri
hönd, en þetta er samt einn möguleiki
í stöðunni. Ég hald samt að það sé
ólíklegt að Snoop Dogg sé bitur út af
ástarmálum og að það sé uppspretta
hins niðrandi kveðskapar.
Í ÖLLU falli er kristaltært að það
eru yfirleitt ástæður fyrir öllu í list-
um, og ekki bara í listum ef út í það
er farið. Hugsanlega er samfélagið
orðið þannig að fólk nennir ekki leng-
ur að spá í af hverju þetta og hitt er
gert í listum, af hverju list er stund-
um svona fríkuð, dónaleg, ruslaraleg,
ágeng, ógeðsleg og svo framvegis.
Alltof oft heldur fólk að listamenn
séu bara illa innrættir eða eitthvað
og að það sé þess vegna sem þeir geri
svona ljóta list. En bæði finnst mér
það alltof einföld útskýring, og nán-
ast spaugileg, og svo finnst mér líka
að maður fari á mis við mjög margt í
lífinu ef maður hættir að spá í raun-
verulegar og dýpri ástæður fyrir því
af hverju menn eins og Snoop Dogg
eru eins og þeir eru og af hverju þeir
syngja eins og þeir syngja.
KANNSKI er maðurinn að reyna að
segja okkur eitthvað. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR