Fréttablaðið - 27.07.2005, Blaðsíða 20
Vasaljós
Það er farið að dimma á nóttunni og því er vasaljósið þarfaþing í allar útilegur það sem eftir er sumars.
Það er leiðinlegt að vakna um miðja nótt í dimmu tjaldi og þurfa að leita að einhverju í farangrinum.
Eins getur ferð á kamarinn í niðamyrkri orðið ansi draugaleg ef vasaljósið er ekki með í för. [ ]
AQUIS handklæði
í ferðalagið
Í bakpokann, ferðatöskuna, sundið,
líkamsræktina ofl.
Taka lítið pláss, létt, þurrka vel,
þorna fljótt, alltaf mjúk.
Dreifing: Daggir s: 462-6640
www.daggir.is
Gistiheimili
Studio íbúðir
Bolholt 6
105 Reykjavík
Sími: 517-4050
Básar í Goðalandi
Útivistarparadís í skjóli jökla og stórkostlegu
landslagi. Fjölskyldustemning um verslunar-
mannahelgina og varðeldur á laugardagskvöld.
Frábær tjaldstæði og góð aðstaða.
Stóðust prófið í „prufu“-
brúðkaupsferðinni
Helga er myndlistarkona, búsett í Danmörku. Hún er með sýningu á verkum sínum í Galleríi Ófeigs.
Eftirminnilegasta ferðalag
Helgu Benediktsdóttur mynd-
listarkonu var fyrir 18 árum
þegar hún fór akandi með
kærastanum á Citroenbragga
frá Danmörku til Spánar.
Ferðin var farin til að láta
reyna á sambandið.
„Ég var í námi í Damörku á þess-
um tíma, einstæð móðir með tvö
börn,“ segir Helga. „Það var ekki
um neinn helgarpabba að ræða
þannig að börnin voru hjá mér
allan sólarhringinn, alltaf.
Kærastinn minn, Henning, er
einkabarn og sjö árum yngri en
ég svo mér fannst þetta mikið
ójafnvægi. Þegar börnin fóru til
Íslands í mánuð ákváðum við að
fara í ferðalag og láta reyna al-
mennilega á sambandið. Planið
var jafnvel að fara alla leið til
Marokkó.“
Helga og Henning lögðu af
stað á gamla Citroenbragganum
og óku til Spánar með viðkomu á
mörgum spennandi stöðum. „Bíll-
inn var ekki upp á marga fiska en
það eina sem klikkaði var
púströrið. Þá vorum við stödd í
Kastel í Þýskalandi en kærastinn
minn sem er „alt mulig mand“
notaði bjórdósir, teygjuband og
kítti til að laga pústið. Það sló
ekki feilpúst eftir það,“ segir
Helga hlæjandi. „Við stoppuðum í
fimm daga á frönsku Riverunni,
fórum svo til Andorra en flúðum
því það var eins og eitt allsherjar
„Hagkaup“, allir að versla, sem
var ekki alveg okkar deild. Svo
vorum við nokkra daga í yndis-
legu þorpi á Norður-Spáni og fór-
um sem leið lá yfir fjallgarðinn í
áttina til Bilbao. Þar gerðum við
skelfileg mistök því við fórum
alltaf alltof seint að sofa og seint
á fætur og vorum svo að keyra á
heitasta tímanum á daginn. Ég
hélt við myndum deyja úr hita.“
Það sem skipti þó meginmáli
fyrir Helgu og Henning var að
ferðalagið sannaði fyrir þeim
ágæti sambandsins. „Það kom í
ljós að við bættum hvort annað
upp, hann var sterkur þar sem ég
var veikari fyrir og öfugt. Við
giftum okkur þó ekki fyrr en í
fyrra, sautján árum seinna.“
Þau hjón eru búsett í Dan-
mörku þar sem Helga starfar sem
myndlistarmaður. „Ég er líka að
kenna myndlist, aðallega fólki
sem hefur átt um sárt að binda.
Þetta fólk kemur kengbogið til
mín í upphafi námskeiðs en geng-
ur svo hnarreist út að námskeiði
loknu. Það er ég ákaflega ánægð
með,“ segir Helga, sem er á Ís-
landi í tilefni giftingar dóttur
sinnar og notar tækifærið til að
sýna listaverkin sín í Galleríi
Ófeigs á Skólavörðustíg. Sýning
Helgu stendur til 11. ágúst.
edda@frettabladid.is
Hlaupið yfir ár og fjöll
BARÐSNESHLAUP VERÐUR HLAUPIÐ NÆSTA LAUGARDAG. UM ER AÐ RÆÐA 27
KÍLÓMETRA VÍÐAVANGSHLAUP UM ÓBYGGÐIR OG EYÐIJARÐIR VIÐ NORÐ-
FJARÐARFLÓA.
Undanfarin ár hafa nokkrir vaskir
menn á Austurlandi staðið fyrir
27 kílómetra víðavangshlaupi um
eyðibyggðir við Norðfjarðarflóa.
Hlaupið er frá Barðsnesi, sunnan
Norðfjarðarflóa, til Neskaupstað-
ar.
Keppendur verða ferjaðir frá Nes-
kaupstað til Barðsness og ræstir
þar. Frá Barðsnesi er hlaupið
meðfram ströndinni yfir móa,
mýrar, fjörur, ár og tún um firðina
þrjá sem ganga inn úr flóanum:
Viðfjörð. Hellisfjörð og Norðfjörð.
Fyrstu kílómetrana er gamall
traktorsruðningur, þá taka við kinda- og hestagötur en síðustu kílómetrana er
hlaupið eftir þjóðveginum. Hlaupinu lýkur á torginu við sundlaugina í Neskaup-
stað.
Rúnar Gunnarsson er einn skipuleggjandanna og hann segir að hlaupið sé mik-
ið ævintýri. „Þetta er erfið leið og hæðarmunurinn er ansi mikill. Við höfum ver-
ið með mikið af alvöru hlaupurum en núna erum við að reyna að fá fleiri
skokkara í hópinn. Þess vegna störtum við hópnum í tvennu lagi. Þeir sem ætla
sér að fara hægar yfir leggja af stað klukkan 10 um morguninn en hinir klukkan
11,“ segir Rúnar sem á von á góðu hlaupi. „Þetta hafa verið svona í kringum 30
hlauparar undanfarin ár og við vonumst til að toppa það.“
Nánari upplýsingar um hlaupið má nálgast á heimasíðu hlaupsins: www.is-
landia.is/bardsneshlaup. Þar er einnig hægt að skrá sig til leiks.
Keppendur hlaupa eftir kindagötum og troðning-
um um eyðistrandir við Norðfjarðarflóa. Um-
hverfið er stórbrotið.
Farfuglaheimilið
fær gæðavottun
FYRST FARFUGLAHEIMILA Á NORÐ-
URLÖNDUM.
Farfuglaheimilið í Reykjavík fékk í síð-
ustu viku afhenta vottun á gæðum í
aðbúnaði og þjónustu. Gæðavottun-
ina veitir alþjóðasamband farfugla-
heimila og er farfuglaheimilið eitt af
fyrstu tólf heimilunum sem fá slíka
vottun og það fyrsta á Norðurlönd-
um, eftir því sem fram kemur á
heimasíðu Ferðamálaráðs.
Viðurkenningin sem heimilið í Laug-
ardalnum fékk er hluti af sérstöku til-
raunaverkefni en öll farfuglaheimili í
alþjóðasamtökunum þurfa að upp-
fylla lágmarksstaðla í aðbúnaði. Far-
fuglaheimilinu var boðin þátttaka í
hópi tólf ólíkra farfuglaheimila til að
vinna að auknum gæðum.
Rúmlega fimm þúsund farfuglaheim-
ili starfa á vegum alþjóðasambands
farfuglaheimila og eru í sextíu lönd-
um.
Farfuglaheimilið í Reykjavík er í Laug-
ardalnum.
FOSTERS: Styður Formúluna áfram
Tilvalinn bjór í ferðalagið.
Formúla 1 kappaksturinn geisar
nú í Evrópu og um helgina var
keppt í Þýskalandi. Allt er að
ganga upp hjá Renault –
Alonso bar sigur úr býtum eft-
ir að bíll Raikkonen bilaði í
annað sinn á þessu keppnis-
tímabili. En eiginlegur sigur-
vegari helgarinnar hlýtur að
teljast Montoya, sem hóf
keppni í tuttugasta sæti en
lauk keppni í öðru sæti eft-
ir glæsilega frammistöðu.
Ekki eru úrslitin enn
ráðin, en þó er allt útlit
fyrir hörkusamkeppni á
milli Renault og Maccl-
aren. Að sjálfsögðu held-
ur Fosters áfram að
styðja Formúluna með
stórlækkuðu verði en
bjórinn er einn ódýr-
asti 5% bjórinn í Vín-
búðunum.
Verð í Vínbúðum 169 kr.