Fréttablaðið - 27.07.2005, Blaðsíða 33
Þann 28. júlí 1932, þegar krepp-
an mikla var í hámarki, kom til
átaka milli hóps bandarískra
hermanna sem barist höfðu í
fyrri heimsstyrjöldinni, svokall-
aðs bónushers, og bandaríska
hersins.
Uppgjafarhermennirnir fóru
fram á bónusgreiðslur sem þeir
töldu sig eiga inni frá því í stríð-
inu, og höfðu sett upp búðir við
þinghúshæðina í Washington.
Ekki veitti af bónusnum enda
efnahagsástand í Bandaríkjun-
um sem annars staðar ekki upp á
marga fiska.
Til þurfti lagabreytingu til að
knýja fram bónusinn, frumvarp-
ið var að lokum lagt fram og
fékkst samþykkt í neðri deild
þingsins en var síðar hafnað af
Öldungadeildinni.
Þegar frumvarpinu hafði ver-
ið hafnað reyndi lögreglan að
fjarlægja mótmælendur en ekki
vildi betur til en svo að upp úr
sauð og þurfti að lokum að kalla
til bandaríska herinn.
Herbert Hoover forseti var
þó tregur til og fer tvennum sög-
um af því hvort hann hafi í raun
gefið grænt ljós á að hervaldi
yrði beitt. Douglas MacArthur
hershöfðingi tók þá málin í sínar
hendur. Sá var annálaður komm-
únistahatari og taldi næsta víst
að þetta væri tilraun rauðliða til
að komast til valda í landinu.
MacArthur sendi menn sína
inn í búðir bónushersins með
skriðdreka, rifla og táragas og
um tíma logaði hreinlega allt í
átökum. Fljótlega tókst þó að
hrekja mótmælendur á brott, en
ekki án þess að talsvert mann-
fall yrði og margir særðust.
Herbert Hoover átti litla
möguleika á endurkjöri eftir
þessa uppákomu, og malaði
Franklin Roosevelt hann í for-
setakosningunum sem fram fóru
árið 1933. Roosevelt lét þó ekki
undan kröfum hermannana um
bónusinn fyrr en farið var að
síga á seinni hluta forsetaferils-
ins. -jsk
Átök í Washington
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 7
Ú T L Ö N D
Kínverska fjölmiðlasamsteypan
Hutchison, sem hefur aðsetur í
Hong Kong, hyggst bjóða um 65
milljarða króna í 75 prósenta hlut
í Formúlu eitt kappakstrinum.
Formúla eitt er nú í eigu eign-
arhaldsfélagsins Slec. Þar á Bern-
ie Ecclestone, sem oft er nefndur
valdamesti maður formúlunnar,
fjórðungshlut en auk hans eiga
þrír bankar; Jp Morgan, Bayer-
ische Landesbank og Lehman
Brothers, fjórðungshlut hver.
Ecclestone leist þó ekki vel á
hugmyndina: ,,Af hverju ætti ég
að vilja fá einhverja aðila sem ég
þekki ekki neitt í stað þeirra sem
ég treysti?“ Innanbúðarmaður úr
einum bankanna var þó ekki jafn
svartsýnn fyrir hönd Hutchison:
,,Bankarnir vilja selja Hutchison
hluti sína. Hutchison vilja hins
vegar hafa Ecclestone með og
hyggjast því gera allt til að
halda honum góðum.“ -jsk
S Ö G U H O R N I Ð
BÓNUSHERINN FYRIR UTAN ÞINGHÚSIÐ Tugir þúsunda hermanna söfnuðust sam-
an fyrir utan þinghúsið í Washington og fóru fram á að fá greiddan bónus sem þeir töldu
sig eiga inni frá því í fyrri heimsstyrjöldinni.
Huchison að kaupa Formúluna?
Kínversk fjölmiðlasamsteypa hyggst gera tilboð í 75 prósenta hlut í For-
múlu eitt. Bernie Ecclestone Formúlukóngi líst ekki vel á hugmyndina.
Coca-Cola er verðmætasta vöru-
merki heims, samkvæmt árlegri
könnun bandaríska ráðgjafafyr-
irtækisins Interbrand.
Coca-Cola vörumerkið er
metið á 4.390 milljarða
króna.
Bandarísk vörumerki
voru áberandi á listan-
um og voru til að
mynda átta bandarísk
fyrirtæki á meðal tíu
efstu. Vörumerki
finnska farsímarisans
Nokia er hið verð-
mætasta utan Banda-
ríkjanna, metið á
1.722 milljarða
króna.
Strangar kröfur
þarf að uppfylla til
að eiga möguleika
á að komast á lista
Interbrand; vöru-
merkið þarf að vera
að minnsta kosti
140 milljarða
króna virði, þriðj-
ungur tekna þess
verður að koma
utan heimamarkað-
ar auk þess sem að-
gangur að gögnum
fyrirtækisins þarf
að vera opinber.
Mörg heimsþekkt
vörumerki uppfylltu
ekki þessi skilyrði og
eru því hvergi sjáanleg
á listanum. Má þar nefna
sælgætisframleiðand-
ann Mars, greiðslukort-
arisann Visa og banda-
rísku smásölukeðjuna
Wal-Mart. -jsk
1. Coca-Cola (BNA) 4.390
2. Microsoft (BNA) 3.895
3. IBM (BNA) 3.471
4.General Electric (BNA) 3.250
5. Intel (BNA) 2.314
6. Nokia (FIN) 1.722
7. Disney (BNA) 1.716
8. McDonald’s (BNA) 1.690
9. Toyota (JAP) 1.612
10. Marlboro (BNA) 1.371
*Upphæðir í milljörðum króna
L I S T I I N T E R B R A N D
Y F I R V E R Ð M Æ T U S T U
V Ö R U M E R K I H E I M S :
Coke metið á 4.390 milljarða
Coca-Cola er verðmætasta vörumerki heims. Bandarísk fyrirtæki einoka
lista þeirra tíu stærstu.
!!" # "
$
%
&
'
3#%4 53
6,**7'''83#%2 59%% #
*,&&7''83#%4 # 50 #
.&&7*''8:::
BERNIE ECCLESTONE MEÐ VÖSKUM
ÖKUÞÓRUM Kínverski fjölmiðlarisinn
Hutchison hyggst bjóða í 75 prósenta hlut
í formúlu eitt. Þeir vilja þó fyrir alla muni
halda Bernie Ecclestone góðum.