Fréttablaðið - 08.08.2005, Blaðsíða 1
Vi› upptökur á tónlist
A Little Trip to Heaven
MUGISON
▲
FÓLK 30
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SKÚRIR SUNNAN OG VESTAN Þurrt
að kalla á Norður- og Austurlandi en fremur
skýjað. Hlýtt í veðri með hita á bilinu 12-19
stig, hlýjast norðaustanlands.
VEÐUR 4
MÁNUDAGUR
8. ágúst 2005 - 211. tölublað – 5. árgangur
Lítil batamerki á leik KR
Það voru lítil batamerki á leik KR gegn
Íslandsmeisturum FH í Landsbanka-
deildinni í gær en leikurinn var sá
fyrsti hjá Sigursteini Gíslasyni sem
þjálfari KR. FH sigraði örugglega, 2–0.
ÍÞRÓTTIR 22
Hættir að leika eftir sex ár
Leikarinn Mark Wahlberg
ætlar að hætta að leika
þegar hann verður fer-
tugur, en sex ár eru í
það. Ástæðan er sú að
hann vill einbeita sér
að uppeldi
tveggja ára
dóttur
sinnar,
Ella Rae.
FÓLK 27
Sérleyfi til manndrápa
Um helgina voru sextíu ár liðin frá
aðgerð sem löngum hefur verið réttlætt
með sérleyfi til manndrápa: loftárás
Bandaríkjamanna á
Hiroshima sem varð um
240 þúsund manns að
bana. Engum dettur
í hug að Harry S.
Truman hafi verið
skrímsli á borð við
Maó eða Stalín.
SKOÐUN 16
Á ver›launagar›
í Gar›abæ
ANNA RÓS JÓHANNESDÓTTIR
Í MIÐJU BLAÐSINS
● fasteignir ● hús Músíkalskasti maður sem Baltasar hefur hitt
▲
VEÐRIÐ Í DAG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Gámar fuku í sjóinn
Björgunarsveitarmenn á höfu›borgarsvæ›inu og Su›urnesjum sinntu tugum
hjálparbei›na í gær. Margt lauslegt tókst á loft en skemmdir voru ekki miklar.
Vindur mældist 43 metrar á sekúndu í sterkustu hvi›unum.
VEÐUR Þakplötur losnuðu af húsum
og vinnupallar tókust á loft þegar
strekkingsvindar léku um höfuð-
borgarsvæðið og Suðurnesin í
gærmorgun. Garðhúsgögn, grill,
trampólín og skjólveggir fuku úr
görðum og tjaldvagnar færðust úr
stað á bílastæðum. Þá losnuðu
tveir bátar frá bryggju í Fossvogi
og rak á fjörur á Álftanesi.
Að líkindum voru þó markverð-
ustu áhrif hvassviðrisins þau að
tveir gámar fuku af hafnarbakk-
anum í Kópavogi og út í sjó. Rak
þá upp á Löngusker í Skerjafirði.
„Fólk er ekki undir þetta búið á
þessum árstíma,“ segir Jón Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Slysa-
varnarfélagsins Landsbjargar.
Fjörutíu björgunarsveitarmenn
tóku þátt í aðgerðum gærdagsins
sem hófust um átta leytið á Suður-
nesjum og um ellefu á höfuðborg-
arsvæðinu.
„Menn eru með lausa hluti á
byggingasvæðum sem ekki er
búið að fergja og því takast þeir á
loft þó að vindurinn sé kannski
ekki mjög mikill,“ segir varðstjóri
hjá lögreglunni í Reykjavík en á
hans borð höfðu borist örfáar til-
kynningar um fjúkandi hluti.
Fréttir af veðrinu fóru misjafn-
lega í menn og eru dæmi um að
fólk hafi ekki hætt sér út úr húsi.
„Það hringdi hingað ung kona því
hún náði ekki sambandi við al-
mannavarnir. Hún vildi fá upplýs-
ingar um hvort henni væri óhætt
að fara úr Grafarvoginum suður í
Kópavog,“ segir varðstjórinn.
Hvassviðrið þurfti ekki að
koma nokkrum manni á óvart, því
hafði verið spáð og veðurfrétta-
menn raunar hvöttu fólk til að
huga að lausum munum.
Óli Þór Árnason, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir
vind í sterkustu hviðunum í gær
hafa mælst 43 metrar á sekúndu.
Var það um hádegisbil undir
Hafnarfjalli. Vindur hafi hins veg-
ar verið að jafnaði um 20 metrar á
sekúndu.
Óli vill ekki ganga svo langt að
kalla lægðina fyrstu haustlægðina
en neitar því ekki að á henni sé
haustbragur. „Ætli síðsumarslægð
sé ekki nærri lagi,“ segir hann.
bjorn@frettabladid.is
GÁMUR DREGINN TIL HAFNAR Tveir gámar fuku af hafnarbakkanum í Kópavogi og út í sjó. Gámana rak upp á Löngusker þangað sem
björgunarskip Björgunarfélags Hafnarfjarðar sótti þá. Hjálparsveit skáta í Kópavogi aðstoðaði við að koma gámunum til hafnar. Sjá síðu 6
HOUSTON, AP Áætlað er að geimferj-
an Discovery lendi við Canaveral-
höfða í Flórída í dag. Áhöfnin lauk
undirbúningi sínum fyrir ferðina
til jarðar í gærmorgun og æfði
lendinguna ítrekað í tölvuhermi.
Veðurspáin lofar góðu fyrir
lendinguna og hefur ferðin tekist
nokkuð vel að mati bæði vísinda-
manna hjá NASA og áhafnar ferj-
unnar. Mönnum er þó enn í fersku
minni Columbia-slysið sem varð
þegar geimferjan Columbia var í
aðflugi fyrir hálfu þriðja ári. Hún
tættist í sundur og tugum tonna af
braki rigndi yfir Texas og Louisi-
ana. Áhöfn Discovery og íbúar al-
þjóðlegu geimstöðvarinnar áttu
saman stund áður en Discovery
lagði af stað heim á leið til að minn-
ast þeirra sem létust í Columbia-
slysinu.
Undanfarna daga hefur
Discovery legið við alþjóðlegu
geimstöðina þangað sem hún bar
tækjabúnað, vistir og mannskap.
Farið var í þrjár geimgöngur og
gerðar prófanir á því hvernig bera
skal sig að ef laga þarf hitahlífar
ferjunnar úti í geimi.
Þessi ferð Discovery gengur
undir nafninu „Return Flight“, eða
„flogið aftur“ og vísar nafnið til
þess að ekki hefur verið flogið á
geimferju síðan Columbia-slysið
varð. - oá
Kirkjubæjarklaustur:
Sex björgu›ust
úr eldsvo›a
LÖGREGLUMÁL Sex björguðust
þegar eldur kom upp í veiðihúsi
við Geirlandsá á fjórða tímanum
í fyrrinótt. Var mildi að lög-
reglumenn voru í grenndinni og
voru þeir fljótir á vettvang en
fólkið vaknaði við reykskynjara
og flýtti sér út klæðalítið.
Húsið er mikið skemmt en þó
ekki ónýtt að mati lögreglu en
það er í eigu Stangaveiðifélags
Keflavíkur.
Eldsupptökin eru talin hafa
verið frá kolagrilli við annan
gafl þess en slökkvistarf gekk
greiðlega eftir að slökkvilið
kom á staðinn.
- aöe
Reykhólar:
Piltur lést í
vélhjólaslysi
LÖGREGLUMÁL Ungur piltur á vél-
hjóli lést samstundis í fyrrinótt
eftir að hjól hans lenti í árekstri
við bifreið skammt frá Reykhól-
um á Vestfjörðum.
Rannsókn slyssins stóð yfir í
gærdag en ekki lá ljóst fyrir
hverjar orsakir þess voru þegar
Fréttablaðið fór í prentun. Var
óskað aðstoðar þyrlu Landhelg-
isgæslunnar en læknir hafði úr-
skurðað piltinn látinn áður en
hún kom á vettvang. Ökumaður
bifreiðarinnar var fluttur á
sjúkrahús en reyndist ekki hafa
slasast alvarlega.
Þetta er fimmtánda bana-
slysið í umferðinni á þessu ári.
- aöe
FIMMTÁNDA BANASLYSIÐ Á ÁRINU Ungur
maður lét lífið eftir árekstur vélhjóls hans
og bíls sem kom úr gagnstæðri átt.
Erfiðri geimför bandarísku geimferjunnar er að ljúka:
Discovery kemur til jar›ar í dag
GEIMFERJAN DISCOVERY Lendingin var æfð ítrekað í tölvuhermi í gær og veðurspáin lofar góðu.