Fréttablaðið - 08.08.2005, Blaðsíða 6
6 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
Tveggja metra há stuðlabergssúla reist til minningar um fórnarlömb flugslyssins í Skerjafirði:
Minnisvar›i í fjörukambinum
MINNISVARÐI Minnisvarði um fórn-
arlömb flugslyssins í Skerjafirði
fyrir fimm árum var afhjúpaður í
gærkvöld að viðstöddum aðstand-
endum og öðrum gestum.
Björgunarsveitarmenn frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
heiðruðu aðstandendur fórnar-
lambanna með nærveru sinni.
Kristín Dýrfjörð hélt stutt þakk-
arávarp við upphaf athafnarinnar
og þakkaði björgunarsveitum,
starfsfólki sjúkrahúsanna og
þjóðinni allri fyrir stuðninginn
sem aðstandendum fórnar-
lambanna var sýndur. Í lokin var
kveikt á kertum og þeim fleytt í
fjörunni en minnisvarðinn er
staðsettur í fjörukambinum til
móts við slysstaðinn í Skerjafirði.
Minnisvarðinn er rúmlega
tveggja metra há stuðlabergssúla
sem festur er við lítinn steinbekk
þar sem hægt er að tylla sér. Á
súluna er steypt koparskilti með
nöfnum og fæðingardögum þeirra
sem létust. Neðst á plattanum
stendur: „Hér settist sólin í lífi
þeirra en geislarnir lifa áfram
með okkur.“ - sgi
Benjamin Netanyahu segir af sér sem ráðherra:
Ósáttur vi› brottfluttning
JERÚSALEM, AP Benjamin Netanya-
hu, fjármálaráðherra Ísraels og
fyrrverandi forsætisráðherra,
hefur sagt af sér sem ráðherra í
ríkisstjórn Ariels Sharon. Hann
segir ástæðuna vera að hann geti
ekki samvisku sinnar vegna verið
hluti af ríkisstjórn sem standi fyr-
ir brottflutningi gyðinga af Gaza-
svæðinu.
Hann lagði inn afsögn sína á
vikulegum ríkisstjórnarfundi í
gær og fór í kjölfarið rakleitt á
fund blaðamanna þar sem hann
útlistaði ástæðurnar. Hann segir
ólíklegt að afsögn sín komi til með
að breyta áformum um brottflutn-
inginn sem hann segir vera slæm.
Hann vill meina að þegar gyðing-
ar eru farnir frá Gaza þá verði
svæðið gróðrarstía fyrir hryðju-
verkamenn og íslamska öfga-
menn. Hann segir það heimsku að
virða að vettugi ábendingar leyni-
þjónustunnar þar um.
Netanyahu sagðist harma að
honum gæfist ekki tækifæri til að
ljúka við efnahagsumbætur þær
sem hann hefði staðið fyrir und-
anfarin ár en hann gegndi emb-
ætti fjármálaráðherra í hálft
þriðja ár. - oá
Erilsamt hjá björgunarsveitum og lögreglu í hvassviðrinu á Suðvesturlandi:
Bílar me› hjólh‡si í eftirdragi fuku út af
VEÐUR Umhleypingasamt var víða
á suðvesturhorni landsins í gær og
höfðu lögregla og björgunarsveit-
ir ærinn starfa við að bjarga laus-
um hlutum í verstu hviðunum.
Mikill vindstrengur var fyrir
Hafnarfjall í Borgarfirði með
þeim afleiðingum að þrír bílar
með hjólhýsi og einn með tjald-
vagn í eftirdragi fuku út af. Eitt
hjólhýsið gjöreyðilagðist.
Vindhraði fór yfir 30 metra á
sekúndu þegar mest lét á nokkrum
stöðum en þrátt fyrir smávægi-
legt tjón víða bárust engar til-
kynningar um slys á fólki. Björg-
unarsveitarmenn voru kallaðir út
á svæðum allt frá Vestmannaeyj-
um í suðri til Borgarness í vestri.
Þeir aðstoðuðu við að festa lausa
muni á byggingasvæðum víða auk
þess sem gæta þurfti að bátum í
höfnum landsins.
Veðurstofa Íslands segir lægð-
ina sem þessu olli á leið yfir land-
ið en dregið hefur úr vindstyrk
hennar. Það sé ekki óvanalegt að
slíkar lægðir fari yfir landið í
ágúst og september en ekkert
þessu líkt er þó framundan sam-
kvæmt spám. Suðlægar áttir
munu ríkja næstu daga með frem-
ur stilltu veðri og vætu annars
lagið. - aöe
BRAK FLUGVÉLARINNAR
Hreyfill vélarinnar stöðvaðist örfáum sek-
úndum áður en hún skall á haffletinum.
Flugslysið við Sikiley:
firiggja fórnar-
lamba leita›
PALERMO, AP Björgunarmenn leit-
uðu í gær þriggja fórnarlamba
flugslyssins á laugardag sem ekki
hafa fundist enn. Á meðan voru
tildrög flugslyssins rannsökuð og
eftirlifendur spurðir út í atburð-
ina.
Að sögn þeirra sem lifðu slysið
af hætti að heyrast í hreyflum vél-
arinnar nokkrum sekúndum áður
en hún skall á haffletinum og ekki
gafst einu sinni tími til að klæðast
björgunarvestum.
Sextán létust í flugslysinu en
23 lifðu af. Enginn þeirra sem
lifðu af er í lífshættu. ■
Styður þú réttindabaráttu sam-
kynhneigðra?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefurðu ferðast innanlands í
sumar?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
44%
56%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
MINNISVARÐI
Minnisvarðinn um fórnarlömb flugslyssins í
Skerjafirði fyrir fimm árum er stuðlabergs-
súla. Lítill steinbekkur er festur við hana
þar sem hægt er að tylla sér.
www.icelandair.is/stokkholmur
Stokkhólmur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
Ver› á mann í tvíb‡li á Birger Jarl
18.-20. nóv., 2.-4. des., 27.-29. jan. og 3.-5. mars.
Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
Verð frá 34.990 kr.
Flug og gisting í tvær nætur
Femínistafélag Íslands:
Vi›horf KEA
fornleg
FÆÐINGARORLOF Femínistafélag Ís-
lands telur viðhorf KEA um að
fæðingarorlof eigi ekki að gilda
um stjórnendur á háum launum
vera fornlegt og þvert á allar jafn-
réttishugsjónir.
Í fréttatilkynningu frá
Femínistafélaginu kemur fram að
það furði sig á ákvörðun KEA um
að neita Andra Teitssyni fram-
kvæmdastjóra um fæðingarorlof.
Einnig furði það sig á ummælum
Benedikts Sigurðssonar, stjórnar-
fomanns KEA, en af þeim megi
skilja að lög um fæðingarorlof eigi
ekki að gilda um þá sem gegna
lykilstöðu í sínu fyrirtæki. - sgi
Sprengjuhótunin í Leifsstöð:
Enn óljóst
me› sakhæfi
LÖGREGLUMÁL Enn er allt óljóst
með sakhæfi konu þeirrar er lög-
regla telur hafa staðið fyrir
sprengjuhótuninni í Leifsstöð
fyrr í vikunni.
Hún er ekki með sjálfræði og
er undir umsjón tilsjónarfólks og
ekki liggur fyrir hvernig lögin
taka á slíkum einstaklingum. Mál-
ið telst þó upplýst að öllu leyti en
lögregluyfirvöld þurfa aðstoð
annarra aðila áður en fyrir liggur
hvernig farið verður með mál
hennar. - aöe
ALLT Á TJÁ OG TUNDRI Björgunarsveitir aðstoðuðu marga íbúa í Breiðholti í óveðrinu í
gær. Lausir hlutir eins og blómaker, garðstólar og annað lauslegt í görðum fólks tókust á
loft og fuku í verstu hviðunum. Allt gekk þó vel fyrir sig að lokum og engar tilkynningar
bárust um stórtjón vegna þessa.
FLJÚGANDI TRAMPÓLÍN Trampólín sem hafa án efa verið eitt vinsælasta leikfangið í görð-
um fólks þetta árið ollu vandræðum enda létt og fuku auðveldlega um víðan völl. Lög-
reglumenn í Kópavogi höfðu í nógu að snúast við að koma í veg fyrir að fljúgandi
trampólín yllu ekki tjóni eða meiðslum.
BENJAMIN NETANYAHU Hann hélt rakleitt á fund blaðamanna eftir að hafa tilkynnt afsögn
sína og útlistaði ástæðurnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI