Fréttablaðið - 08.08.2005, Blaðsíða 2
2 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
LONDON, AP Bretar fengu aðvörun
frá yfirvöldum í Sádi-Arabíu áður
en hryðjuverkaárásirnar 7. júlí
voru gerðar. Sádi-Arabar höfðu þá
látið rekja símtöl hátsettra al-
Kaída liða og komust að því að
mörg símtöl höfðu verið hringd til
Bretlands. Þetta kemur fram í
breska dagblaðinu The Observer.
Nú stendur yfir rannsókn á
símtölum frá Kareem al-Majati,
sem talinn er vera einn höfuð-
paura al-Kaída í Sádi-Arabíu, þar
sem kannað er hvort hann hringdi
sjálfur beint í höfuðpaur árás-
armannanna í Lundúnum. Einn
starfsmaður öryggislögreglu
Sádi-Arabíu tjáði The Observer að
símtölin frá al-Majati hefðu gefið
til kynna að al-Kaída væri að ráð-
leggja árásir í Bretlandi mörgum
vikum fyrir 7. júlí. Stjórnvöld í
Sádi-Arabíu bjuggu þó ekki yfir
neinum nákvæmum upplýsingum
um stund og stað árásanna né
heldur með hvaða hætti þær yrðu.
Þessar fregnir eru líklegar til
þess að kastljós rannsakenda
beinist nú frá Pakistan og í aukn-
um mæli að Sádi-Arabíu, sem
einmitt er föðurland Osama Bin-
Laden, leiðtoga hryðjuverkasam-
takanna al-Kaída.
- oá
Ný skýrsla Alþjóðasamtaka evrópskra flugfélaga:
Icelandair óstundvísasta flugfélagi›
FLUG Icelandair er óstundvísasta
flugfélag innan Evrópu að því er
fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóða-
samtaka evrópskra flugfélaga. Þar
var borin saman stundvísi 27 flugfé-
laga og var Icelandair í því neðsta.
„Þetta kom til af fáum löngum
töfum vegna bilana og veldur því að
við súrrum niður þennan lista,“ seg-
ir Guðjón Arngrímsson upplýsinga-
fulltrúi Icelandair. Meðal
annars hafi sólarhringstöf
vegna bilunar í flugi til San
Fransisco leitt til þess að
nokkra daga tók að vinna
töfina upp í leiðakerfi flug-
félagsins og það telji drjúgt
í svona tölfræði.
„Við höfum staðið okkur
ljómandi vel gegnumsneitt í
þessum samanburði sem gerður er
til að félögin viti hvar þau
standa,“segir Guðjón en skýrslan er
unnin á grundvelli talna sem flugfé-
lögin sjálf senda inn. Icelandair
hefur verið aðili að Alþjóðasam-
bandi flugfélaga og Evrópusam-
bandi flugfélaga í mörg ár og sjá
þau um að birta ýmsa tölfræði í
hverjum mánuði.
Guðjón telur ólíklegt að þessar
niðurstöður hafi nokkur áhrif á
ímynd eða starfsemi fyrirtækisins
enda veki þær enga athygli nema á
Íslandi. - sgi
Voru tólf tímum frá
flví a› kafna í kafbát
Áhöfn rússneska smákafbátsins AS-28 var bjarga› í gær. Kafbáturinn lá á 190
metra d‡pi í flrjá daga. Skipstjóri kafbátsins sag›i sér lí›a ágætlega flegar
hann var kominn í land. Pútín hefur ekkert tjá› sig um slysi›.
RÚSSLAND, AP Björgun rússneska
smákafbátsins AS-28 tókst
giftusamlega í gær og bjargað-
ist öll sjö manna áhöfnin. Hann
var dreginn að landi til borgar-
innar Petropavlosk á Kamtja-
skaskaga snemma í gærmorgun.
Kafbáturinn festist í netum
og neðansjávarloftneti sem not-
að er til að fylgjast með skipa-
umferð um svæðið á fimmtu-
daginn og því voru sjómennirnir
sjö fastir á hafsbotni í heila þrjá
daga. Aðstæðurnar í kafbátnum
voru heldur hráslagalegar og
hitastigið ekki nema rétt um
fimm gráður. Sjómönnunum var
sagt að klæðast hitagöllum og
liggja og reyna að anda eins létt
og þeir gátu sem þeir og gerðu
meðan þeir biðu á milli vonar og
ótta meðan björgunarmenn
reyndu allt hvað þeir gátu til að
bjarga þeim í kappi við tímann
enda er talið að súrefnisbirgðir
kafbátsins hefðu ekki dugað
nema rétt um hálfan sólarhring
í viðbót.
Vyatsjeslav Milasjevskí, 25
ára gamall skipstjóri kafbátsins,
stóð lengi stoltur við landgang-
inn og heilsaði að hermannasið
eftir að kafbáturinn hafði verið
dreginn í land. Mátti þó greina
bros á annars fölu andliti hans.
Þegar blaðamenn spurðu hann
svo hvernig honum liði var svar-
ið stutt og laggott: „ágætlega“.
Eftir mikla fagnaðarfundi við
fjölskyldur sínar var áhöfnin
flutt á spítala þar sem ástand
þeirra var kannað. Eiginkona
skipstjórans sagðist bæði hafa
grátið og dansað af gleði þegar
fréttist af giftusamlegu björg-
uninni.
Breskur Super-Scorpio kaf-
bátur, sem er fjarstýrður, var
notaður til þess að skera á loft-
netið og netadræsurnar sem
héldu AS-28 pikkföstum á
strandstað. Sergei Ivanov, varn-
armálaráðherra Rússlands,
þakkaði í kjölfar björgunarinn-
ar breskum og bandarískum
björgunarmönnum fyrir veitta
aðstoð. Hann sagði þá hafa
gengið hratt og örugglega til
verks og sýnt mikla fag-
mennsku. Athygli og gagnrýni
hefur vakið að Vladimír Pútín,
forseti Rússlands, hefur nær
ekkert tjáð sig um málið.
oddur@frettabladid.is
DANMÖRK
LÍK Í ÓÐINSVÉÁ Lík óþekkts
manns fannst á reki í ánni sem
rennur gegnum miðja Óðinsvé á
sunnudag. Lögreglan í Óðinsvé-
um rannsakar málið sem grun-
samlegt dauðsfall en ekki er ljóst
hvort um morð, sjálfsmorð eða
slys er að ræða.
ELDUR Í GRUNNSKÓLA Nemend-
ur grunnskólans í Taastrup í Dan-
mörku fá ekki lengra sumarfrí en
vanalega þrátt fyrir að skólinn
hafi nær brunnið til kaldra kola í
gær. Á tímabili var eldurinn það
mikill að erfiðlega gekk að ná
stjórn á honum og logaði eldurinn
glatt í þrjá tíma. Skólasetning
verður stundvíslega 15. ágúst.
Árekstur á Þingvöllum:
firír fluttir
á sjúkrahús
LÖGREGLUMÁL Þrír voru fluttir á
sjúkrahús á Selfossi eftir harðan
árekstur fólksbíls og vörubíls á
Þingvöllum um miðjan dag í gær.
Meiðsl þeirra eru þó ekki lífs-
hættuleg.
Orsakir slyssins eru ókunnar
en áreksturinn var harður og
skemmdist fólksbíllinn mikið.
Ökumann vörubílsins sakaði ekki
og vildi hann enga aðhlynningu
eftir áreksturinn. Vörubíllinn er
lítið skemmdur. - aöe
NOREGUR
ÁHÖFN UNDIR ÁHRIFUM Allri
áhöfn ferju sem gengur milli
Molde og Sekken í Noregi hefur
verið sagt upp störfum. Áhafnar-
meðlimirnir þrír mældust allir
með of hátt alkóhólmagn í blóð-
inu þegar lögreglan mældi þá í
gær en þeir höfðu þá þegar farið
eina ferð milli eyjanna þann dag-
inn.
FLEIRI SJÁLFSMORÐ EN TALIÐ
VAR Tvöfalt fleiri Norðmenn
fremja sjálfsmorð meðan á sál-
rænni meðferð stendur en kemur
fram í skýrslum sjúkrahúsa segir
tímaritið Aftenposten. Talið er að
milli 30 og 40 manns hafi framið
sjálfsmorð fyrsta hálfa árið eftir
innlögn á geðdeild eða meðan á
meðferð stóð.
SPURNING DAGSINS
Gunnar, flurfi› fli› ekki a›
finna ykkur eitthva› anna›
a› gera?
Það er nú það sem ég óttast minnst í
mínu starfi að hafa lítið að gera.
Unnið er að þróun bóluefnis gegn flensu. Gunn-
ar Ingi Gunnarsson er heimilislæknir í Árbænum.
Hryðjuverkamaður handtekinn:
Fannst í
Sambíu
LONDON Haroon Rashid Aswat,
sem grunaður er um aðild að
hryðjuverkunum í Lundúnum fyr-
ir mánuði var handtekinn við
komuna til Englands í gær. Hann
fannst í Afríkuríkinu Sambíu en
hans hefur verið leitað víða um
heim undanfarnar vikur.
Breskir rannsóknarlögreglu-
menn segja að Aswat sé grunaður
um að hafa þjálfað sjálfsmorðs-
sprengjumennina sem sprengdu
sjálfa sig í loft upp og auk þess átt
þátt í að skipuleggja árásirnar.
Aswat er fæddur í Bretlandi og er
breskur ríkisborgari. ■
Líkamsárásin í Keflavík:
Enginn lengur
í var›haldi
LÖGREGLUMÁL Mennirnir sex sem
lögreglan í Keflavík handtók að-
faranótt laugardagsins vegna lík-
amsárásar fyrir utan skemmti-
staðinn Traffic hafa allir verið
látnir lausir en formlegri rann-
sókn er þó ekki lokið.
Sexmenningarnir lentu í átök-
um við hóp varnarliðsmanna með
þeim afleiðingum að slegið var til
eins þeirra með brotinni bjór-
flösku. Hlaut sá nokkur skurðsár.
Fimm Íslendingar og einn erlend-
ur ríkisborgari voru handteknir í
kjölfarið. Þeir eru nú allir lausir
úr varðhaldi. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
TEKINN Á 176 KM HRAÐA Lög-
reglan á Selfossi stöðvaði mann á
Þorlákshafnarvegi á 176 kíló-
metra hraða í gær. Hann var
sviptur ökuréttindum á staðnum
enda hámarkshraði á veginum 90
kílómetrar.
HRAÐAKSTURINN SMITANDI
Átján aðrir ökumenn í sama um-
dæmi voru einnig stöðvaðir
vegna hraðaksturs. Einnig var
för eins ölvaðs ökumanns stöðvuð
áður en hann komst af stað.
ENGIN ÁHRIF Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, telur niðurstöð-
ur skýrslunnar engin áhrif hafa á ímynd eða starfsemi fyrirtækisins.
STRÆTISVAGNINN SEM SPRAKK VIÐ
TAVISTOCK SQUARE Kastljós rannsakenda
beinist nú frá Pakistan til Sádi-Arabíu í
kjölfar frétta frá yfirvöldum þar.
Hryðjuverkaárásirnar á Lundúnir líklega skipulagðar í Sádi-Arabíu :
Sádar a›vöru›u Breta
VYATSJESLAV MILASJEVSKÍ Skipstjóri kafbátsins heilsaði stoltur að hermannasið við kom-
una til Petropavlosk.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLSLYS Í GRÍMSNESI Vörubíll og
fólksbíll skullu saman á veginum
við Brú í Grímsnesi um klukkan
tvö í gær. Ökumaður vörubílsins
var einn í bílnum og slapp með
skrámur en fjórar konur voru í
fólksbílnum og voru þær fluttar á
spítala til aðhlynningar. Þá var
einn færður til yfirheyrslu eftir
húsleit á Selfossi í gær en hjá
honum fundust tíu töflur sem eru
taldar vera E-töflur. Manninum
var sleppt að lokinni yfirheyrslu
og er málið í rannsókn.