Fréttablaðið - 08.08.2005, Blaðsíða 71
MÁNUDAGUR 8. ágúst 2005
LEIKIR GÆRDAGSINS
Samfélagsskjöldurinn:
CHELSEA–ARSENAL 2–1
1–0 Didier Drogba (8.), 2–0 Didier
Drogba (57.), 2–1 Fabrice Fabregas (65.).
Sænska úrvalsdeildin:
ÖRGRYTE–HALMSTAD 2–1
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan
leikinn fyrir Halmstad og skoraði mark
liðsins í leiknum.
Norska úrvalsdeildin:
BRANN–AALESUND 0–0
Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir Brann og Haraldur Guðmundsson
sömuleiðis fyrir Aalesund. Ólafur Örn
Bjarnason var í leikbanni hjá Brann.
MOLDE–LYN 1–3
Stefán Gíslason lék allan leikinn fyrir Lyn.
HM í frjálsum:
Justin Gatlin varð í gær heimsmeistari í
100 metra hlaupi karla þegar hann hljóp
á 9,88 sekúndum.
Drogba stal senunni
Chelsea vann fyrsta opinbera leik tímabilsins og
átti Didier Drogba mesta hei›urinn a› sigrinum.
K
O
R
T
E
R
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
5 6 7 8 9 10 11
Mánudagur
ÁGÚST
■ ■ LEIKIR
20.00 Fram og Valur mætast á
Laugard.velli í Landsbankadeild karla.
■ ■ SJÓNVARP
14.20 Landsbankadeildin á Sýn.
16.10 US PGA á Sýn.
19.10 Landsbankamörkin á Sýn.
19.40 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik Fram og Vals.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Ensku mörkin á Sýn.
23.45 Landsbankadeildin á Sýn.
FÓTBOLTI Tvö mörk frá Didier
Drogba tryggðu Chelsea sigurinn
gegn Arsenal í leiknum um samfé-
lagsskjöldinn. Spánverjinn ungi
Francesc Fabregas skoraði fyrir
Arsenal, en leikurinn endaði 2-1
fyrir Chelsea
„Ég er mjög ánægður með að
vera byrjaður að skora strax. Ég
er í fínu formi og frískari en í
fyrra eftir að hafa átt gott
sumarfrí,“ sagði Drogba eftir
leikinn, en hann var valinn maður
leiksins.
Arsenal var meira með boltann
í leiknum en gekk illa að skapa sér
opin marktækifæri þar sem varn-
armenn Chelsea stóðu vaktina vel.
Miðjumennirnir ungu, Francesc
Fabregas og Mathieu Flamini,
náðu ágætis tökum á miðjunni í
fyrri hálfleik og áttu Frank
Lampard og Eiður Smári Guðjohn-
sen, sem lék í stöðu fremsta miðju-
manns, í erfiðleikum með að halda
boltanum innan liðsins.
Drogba kom Arsenal yfir með
góðu marki á áttundu mínútu.
Spánverjinn Asier Del Horno, sem
var að spila sinn fyrsta opinbera
leik fyrir Chelsea, gaf langa send-
ingu fram, og tók Drogba við bolt-
anum niður með brjóstkassanum,
hljóp síðan framhjá Philippe Send-
eros, varnarmanni Arsenal, og
skaut boltanum í hornið með
vinstri fæti.
Leikmenn Arsenal gáfust ekki
upp og héldu áfram að spila ágæta
knattspyrnu þrátt fyrir að erfið-
lega gengi að skapa góð marktæki-
færi. Drogba bætti síðan við öðru
marki fyrir Chelsea eftir að Eiður
Smári Guðjohnsen hafði skallað
boltann laglega inn fyrir vörnina.
Á sextugustu og fimmtu mínútu
tókst Francesc Fabregas að
minnka muninn með góðu skoti úr
vítateignum, en lengra komst liðið
ekki. Chelsea vann því fyrsta opin-
bera leik nýs keppnistímabils og
virðist sem bæði lið komi vel und-
irbúin til leiks eftir sumarfrí.
- mh
SIGRI FAGNAÐ Leikmenn Chelsea höfðu ástæðu til að fagna í gær eftir að hafa unnið
Arsenal í fyrsta opinbera leik keppnistímabilsins.