Fréttablaðið - 08.08.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,42 63,72
112,77 113,31
78,4 78,84
10,505 10,567
9,937 10,995
8,402 8,452
0,5675 0,5709
92,97 93,53
GENGI GJALDMIÐLA 05.08.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
109,1413
4 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
Allt tiltækt slökkvilið sent að Hafnarstræti á Akureyri:
Sprenging í íbú›arhúsi
SPRENGING „Ég varð nú lítið var við
sprenginguna sjálfa en það gaus
upp heilmikill reykur,“ sagði Björn
H. Sveinsson, íbúi á Hafnarstræti á
Akureyri. Allt tiltækt slökkvilið var
kallað þangað um miðjan dag í gær
eftir að sprenging varð í húsi við
götuna og fylltist það af reyk á ör-
skömmum tíma.
Enginn var eldurinn þegar
slökkvilið kom á vettvang en íbúar
hússins voru þá komnir út heilu og
höldnu. Í ljós kom að neisti hafði
hlaupið í púðurbirgðir sem eigandi
hússins geymdi í kjallara þar sem
hann var við vinnu sína. Greiðlega
gekk að reykræsta húsið en litlar
skýringar fengust á því púðri sem
geymt var í kjallaranum. Taldi
slökkvilið líklegast að um byssupúð-
ur hefði verið að ræða en magn þess
var ekki mikið.
Björn segir mildi að ekki gaus
upp eldur vegna þessa enda byggð
þétt á þessu svæði og mikill elds-
matur í grenndinni. „Það er annað
hús þétt upp við þetta og eldur
áreiðanlega komist í það líka ef
hann hefði kviknað á annað borð. En
slökkviliðið var fljótt að afgreiða
þetta.“ - aöe
Ekki forgangsverkefni
a› lækka tekjuskatt
STJÓRNMÁL „Við viljum að allt
skattkerfið sé tekið til endur-
skoðunar með það fyrir augum
að færa byrðarnar af herðum
þeirra sem hafa litlar eða með-
altekjur og yfir á hina sem hafa
úr nógu að spila,“ segir Ög-
mundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri hreyfingarinn-
ar – græns framboðs.
Ögmundur telur nauðsynlegt að
skattur á arð og fjármagnstekj-
ur sé hækkaður til jafns við
tekjuskatt enda hafi margir
tekjur af fjármagni. „Ríkis-
stjórnin gengur hins vegar í
gagnstæða átt og þetta er hluti
af stórum pakka sem er íviln-
andi fyrir hátekjufólkið í land-
inu.“
Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda
flokksins, er ánægður með
fyrirhugaða skattalækkun þótt
honum mislíki margt annað hjá
stjórnarflokkunum.
„Þetta er mjög jákvætt og
það hlýtur að koma sem flestum
til góða að tekjuskatturinn sé
lækkaður,“ segir Magnús Þór.
Hann tekur undir með Ögmundi
um nauðsyn þess að fjár-
magnstekjuskatturinn verði
hækkaður en hann nemur tíu
prósentum.
„Það mætti lækka tekjuskatt-
inn ennþá meira ef fjár-
magnstekjuskatturinn yrði
hækkaður. Ég hef hins vegar
fengið nóg af launamisréttinu í
landinu. Það eru að verða til
tvær þjóðir, annars vegar þessir
ofsalegu ríku og svo við hin,
þessir venjulegu þrælar sem
erum skattpíndir,“ segir Magnús
Þór.
Ágúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður Samfylkingar-
innar segir svigrúm vera til
skattalækkana. „Ég fagna því
að til standi að lækka virðis-
aukaskatt á mat enda hefur
Samfylkingin barist lengi fyrir
því,“ segir Ágúst Ólafur. „Það
er augljóst að það er svigrúm til
skattalækkana þó það sé
kannski ekki í jafn miklum
mæli og ríkisstjórnarflokkarnir
telja því við viljum halda uppi
öflugu velferðar- og mennta-
kerfi.“
Ágúst Ólafur segir ekki for-
gangsatriði að lækka tekju-
skatt. Hann segir matarskattinn
beri að lækka um helming enda
komi það flestum til góða.
Breytingar á tekjuskattinum
megi svo skoða í framhaldinu.
bjorn@frettabladid.is
Bandaríkjamenn loka sendiráði:
Óttast
hry›juverk
SÁDÍ-ARABÍA, AP Bandaríkjamenn
ætla að hafa lokað í sendiráði sínu í
Riyadh í Sádí-Arabíu í dag og á
morgun vegna ótta við hugsanleg
hryðjuverk. Njósnir Bandaríkja-
manna hafa leitt í ljós að hryðju-
verkamenn ráðleggja nú árásir á
opinberar bandarískar byggingar í
landinu.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu segjast
ekkert hafa heyrt um hugsanlega
hryðjuverkaógn. Sendiherra Banda-
ríkjanna hefur varað landa sína við
og hvetur þá til að láta lítið fyrir sér
fara næstu daga á meðan málið er
kannað nánar.
Ráðist var á sendiráð Bandaríkj-
anna í borginni Jiddah í desember
og fimm starfsmenn sendiráðsins
myrtir. ■
Skógareldar í Bandaríkjunum:
Hundru› yfir-
gefa heimili sín
BANDARÍKIN, AP Rýma hefur þurft
150 heimili í norðvesturhluta
Bandaríkjanna vegna skógarelda
sem þar geysa. Eldurinn kviknaði
á föstudaginn en ekki hefur enn
skýrst hvað olli honum. Ekki er
vitað um neinar eldingar undan-
farna daga en mjög heitt og þurrt
hefur verið lengi á þessum slóð-
um.
Loka hefur þurft vegum í fylkj-
unum Oregon og Montana vegna
eldanna og vinna slökkviliðsmenn
að því að halda eldinum í skefjum.
Áætlanir slökkviliða gera ráð fyr-
ir að lokið verði við að slökkva
eldana á miðvikudaginn. ■
VEÐRIÐ Í DAG
FLÓÐ Í KÍNA Mikil flóð urðu í Kína í gær
vegna fellibyls. 103 námuverkamenn eru
fastir í námu vegna flóðanna.
Námuverkamenn í Kína:
Hundra› fastir
í námu
KÍNA 103 kínverskir námuverka-
menn eru fastir í námu í Guang-
dong-héraði í Kína. Þeir festust
eftir að flóð lokaði útgönguleið-
inni. Björgunaraðgerðir voru í
fullum gangi í gærkvöldi en óvíst
hvort næðist að bjarga mönnun-
um. Fréttir frá kínverskum
stjórnvöldum af atburðinum
þykja aukinheldur óskýrar.
Á fyrri helmingi þessa árs hafa
2.700 Kínverjar dáið í námuslys-
um. Á síðasta ári létust 6 þúsund
Kínverjar í sprengingum, hrunum
og flóðum í námum. Um tveir
þriðju hlutar raforku í Kína eru
framleiddir með kolabrennslu. ■
Hitabylgja í Suður-Evrópu:
Tveir látnir í
skógareldum
MADRÍD, AP Tveir slökkviliðsmenn
létust við skyldustörf á Spáni í gær
en þar geysa skógareldar víða um
landið. Annar hrapaði á
slökkviflugvél sinni en hinn
kramdist undir bjargi sem féll á
hann. Einnig hefur þurft að rýma
heimili í Portúgal og suðurhluta
Frakklands vegna skógarelda.
Hitastigið er það hæsta sem
mælst hefur á Spáni á þessu ári en
á laugardaginn fór hitinn yfir 43
gráður. Margir óttast að sagan frá
sumrinu 2003, þegar 19 þúsund
manns létust í hitabylgju í Evrópu,
endurtaki sig. ■
ELDUR Í PORTÚGAL Hitastigið hefur víða
farið yfir 40 gráður í suðurhluta Evrópu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Ágúst Ólafur Ágústsson, flingma›ur Samfylkingarinnar, segir ekki forgangsverk-
efni a› lækka tekjuskatt. fiingmenn Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins taka
misjafnlega í hugsanlega lækkun tekjuskatts og vir›isaukaskatts um áramót.
ÖGMUNDUR JÓNASSON Brýnast að hækka
skatt á arð og fjármagnstekjur.
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON Kemur flest-
um til góða að lækka tekjuskattinn.
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON Matarskattinn
ber að lækka um helming.
HÆTTAN LIÐIN HJÁ
Neisti hljóp í púðurbirgðir í kjallara húss
við Hafnarstræti en til allrar hamingju gaus
eldur ekki upp. Slökkviliðið var fljótt að
reykræsta húsið.