Fréttablaðið - 08.08.2005, Side 8
1Hvað lagði Árni Magnússon félags-málaráðherra áherslu á í ræðu sinni á
Hinsegin dögum?
2Hvað eru mörg ár liðin frá kjarnorku-árásinni á Hiroshima?
3Hver skoraði bæði mörk Chelsea gegnArsenal um helgina?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
Heimsmeistaramót íslenska hestsins lauk í Svíþjóð um helgina:
firír heimsmeistaratitlar í höfn
HESTAR Jóhann R. Skúlason
krækti í þriðja heimsmeistara-
titil sinn í tölti á heimsmeistara-
móti íslenska hestsins sem hald-
ið var í Svíþjóð um helgina. Ís-
lendingar hömpuðu þremur
heimsmeistaratitlum á mótinu: í
tölti, fjórgangi og fimmgangi.
Jóhann bar höfuð og herðar
yfir aðra keppendur í töltinu og
sigraði með miklum yfirburðum
með hæstu einkunn sem gefin
hefur verið á heimsmeistara-
móti. Keppnin í fjórgangi var
æsispennandi og munaði ein-
ungis 0,04 á einkunn Sigurðar
Sigurðarsonar sem sigraði og
Stians Pedersen frá Noregi sem
varð annar. Íslendingar voru í
tveimur efstu sætum í fimm-
gangi en Styrmir Árnson
hreppti gullið nokkuð örugglega
á stóðhestinum Hlyni frá Kjarn-
holtum.
Íslendingum var veitt mikil
keppni á mótinu enda geysisterk
lið að koma frá löndum eins og
Svíþjóð, Þýskalandi og Hollandi.
Þó að Íslendingar séu enn sem
fyrr í efstu sætum í hefðbundn-
um hringvallargreinum hafa
þeir ekki staðið sig sem skyldi í
skeiðinu. Má segja að Svíar hafi
burstað Íslendinga og skipuðu
þeir efstu sæti í öllum skeið-
greinum keppninnar. - sgi
– handsmíðaðar gæðavélar
Vélar og þjónusta hefja innflutning á frábærum vinnuvélum frá Venieri. Venieri er einn
virtasti framleiðandi vinnuvéla í Evrópu, ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir um 900 vélar
á ári. Vélarnar eru ekki settar saman í fjöldaframleiðslulínu heldur er hver og ein handsmíðuð
af sérþjálfuðum starfsmönnum. Venieri-vélarnar hafa reynst framúrskarandi við íslenskar
aðstæður og eru á mjög góðu verði.
Eigum Venieri-vélar á lager - komdu og kynntu þér þær!
Perkins 1104-44T 77 kw/105 hp
Dekk: 404/70R24
Vinnuþyngd 7.500 kg
„Bosc Rexroth Hydrostatic Transmission“ stiglaus skipting
„Speed reduction“ stillanlegur ökuhraði óháður snúningshraða mótors.
„Inch pedal” skipting slær út við hemlun vélar.
Tregðulæsing fyrir fram- og afturdrif.
„Ride control“ jafnvægisbúnaður á mokstursgálga.
Öryggisventlar fyrir lyftutjakka.
Perkins 1104C-44. 86KW/117 hp.
Dekk: 17.5 L24
Vinnuþyngd 8800 kg.
Hjólaskóflur
Vökvahraðtengi fyrir mokstursskóflu.
Opnanleg mokstursskófla (4 in 1) með áboltuðum þverskera.
Lyftaragafflar á lyftaraplani.
Yfirstærð af rafgeymi.
Loftsæti fyrir ökumann.
Í báðum vélum:
Liðstýrð hjólaskófla VF 963
Liðstýrð hjólaskófla VF 763B
MEINDÝR Ólafur Sigurðsson, hjá
Meindýraeyðingu heimilanna,
segir óvenjumikið hafa verið um
veggjalús í húsum Íslendinga síð-
ustu misserin og vill brýna fyrir
fólki að það sé á varðbergi gagn-
vart henni á ferðalögum utan-
lands. Auðvelt er að sjá ummerki
lúsarinnar. „Ég hef verið í þessu í
átta ár og fékk lengst af aldrei
meira en eitt tilvik í mánuði,“
segir hann. Nú hafa hins vegar
verið nokkur tilvik í mánuði í
meira en hálft ár og hann veit til
þess að fleiri meindýraeyðar hafi
verið að fást við þennan vanda.
Þótt veggjalúsin berist hingað
frá útlöndum getur hún breiðst út
hér á landi. Hún fer með veggjum
húsa og lætur sig detta niður úr
loftinu þegar hún finnur fyrir lík-
amshita og andardrætti. Síðan
gerir hún sér bæli í rúminu, þar
sem hún nærist með því að sjúga
blóð úr sofandi fólki að næturlagi.
Sé fæðan næg getur hún fjölgað
sér mjög hratt.
Ólafur vill að fólk skoði rúm og
veggi á gistihúsum erlendis og
leiti eftir ummerkjum lúsarinnar.
„Þetta eru margir litlir
dökkir blettir sem geta
orðið álíka stórir og
nöglin á litlafingri.“
Fullvaxin veggjalús
er fimm millimetrar
og sést vel með berum
augum. Þær eru rauð-
brúnar að lit, eru þó
ljósar í upphafi ævi-
skeiðsins en dekkjast
með tímanum. Kven-
lúsin getur verpt fimm
hundruð eggjum um
ævina. Þær koma yfirleitt aðeins
fram að næturlagi.
Bit veggjalúsarinnar varir í
um fimm mínútur, en að því loknu
fer hún aftur í bæli sitt. Bitið er
ekki talið hættulegt en getur vald-
ið kláða og
bólgum. Auk
óþægindanna
fylgja lúsunum óhreinindi og
jafnvel lykt. Hún getur líka skotið
fólki sem hefur verið að heiman í
nokkurn tíma skelk í bringu, en
dæmi eru þess að fólk nýkomið úr
fríi vakni þegar mikill fjöldi
hungraðra lúsa sest að snæðingi á
nánast sama tíma.
Veggjalýs voru algengar víða á
Vesturlöndum en þeim var að
mestu útrýmt á fimmta og sjötta
áratug síðustu aldar með notkun
eiturefnisins DDT, sem nú hefur
verið bannað.
grs@frettabladid.is
Fleiri veggjal‡s en á›ur
Meind‡raey›ar hafa oft or›i› varir vi› veggjalús í húsum sí›ustu misseri. Helstu ástæ›urnar eru aukin
fer›alög á sama tíma og lúsinni fjölgar erlendis. Br‡nt er fyrir fólki a› leita eftir ummerkjum um lúsina á
erlendum gistiheimilum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
TÖLTGARPUR Jóhann R. Skúlason hreppti töltbikarinn í þriðja sinn á heimsmeistaramóti
íslenska hestsins í Svíþjóð. Hér er hann á hinum geysiflotta Hvin frá Holtsmúla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
ÍM
AR
IT
IÐ
H
ES
TA
R
Sandgerði:
Ré›ust flrír
gegn einum
LÖGREGLUMÁL Ráðist var á ungling
á sautjánda aldursári í Sand-
gerði í fyrrinótt með þeim af-
leiðingum að tönn brotnaði.
Voru að verki þrír menn sem
lögreglan í Keflavík kannaðist
fljótt við eftir lýsingu
fórnarlambsins og voru þeir
yfirheyrðir í kjölfarið.
Unglingurinn hringdi sjálfur
eftir lögreglu eftir árásina og
var honum komið undir læknis-
hendur en ekki lá fyrir hvers
vegna mennirnir réðust að hon-
um. Var hann gestur á menning-
arhátíðinni Sandgerðisdagar í
bænum ásamt þegar að honum
var veist. Málið telst þegar upp-
lýst að sögn lögreglu.
- aöe
Vestfjarðaprófastsdæmi:
Agnes fyrsti
prófasturinn
KIRKJA Fyrsti prófastur Vest-
fjarðaprófastsdæmis sem stofn-
að var 1. ágúst er séra Agnes
Sigurðardóttir sem er sóknar-
prestur í Bolungarvíkurpresta-
kalli og hefur verið prófastur
Ísafjarðarprófastsdæmis.
Vestjarðaprófastsdæmi varð
til við sameiningu Barða-
stranda- og Ísafjarðarprófasts-
dæma en samþykkt var á kirkju-
þingi árið 2003 að sameina þau
við starfslok séra Braga Bene-
diktssonar, prófasts Barða-
strandaprófastsdæmis.
Séra Agnes er ein af fjórum
kvenpróföstum á landinu en
prófastsdæmin eru fimmtán
talsins.
- sgi
UMMERKI VEGGJALÚSAR Úrgangur eftir lúsina sést vel á rúmum
og veggjum þar sem hún hefst við. Fullvaxin veggjalús er fimm
millimetrar á lengd.
Stríðslokaafmæli Kinverja:
Vilja enn
refsa Japönum
KÍNA, AP Kínverjar hafa framleitt röð
kvikmynda í tilefni þess að 60 ár eru
liðin frá því að Japanar biðu ósigur í
síðari heimsstyrjöldinni. Ein af
myndunum er teiknimynd sem fjall-
ar um litla hermanninn Zangga, sem
er skæruliði á táningsaldri.
Kínverjar og Japanar eru tengd-
ir margmilljarða viðskiptaböndum
en Kínverjar setja enn fyrir sig
framgöngu Japana í síðari heim-
styrjöldinni og segja að þeim hafi
ekki enn verið refsað nægilega fyrir
brot sín.
Ríkisstjórn Kína sér til þess að
Kínverjar gleymi aldrei hvaða hlut
Japanar áttu í stríðinu og minna
reglulega á hann í kennslubókum og
fjölmiðlum. - sda
KÍNVERSKT BARN Unga kynslóðin í Kína
fær fræðslu í skólum um þátt Japana í síð-
ari heimsstyrjöldinni.