Fréttablaðið - 08.08.2005, Qupperneq 18
]MálningapenslarÞað er mikilvægt að hreinsa pensla og rúllur strax að lokinni notkun. Ef málað ermeð vatnsmálningu er gott að þrífa penslana með penslasápu. Penslarnir verðaeins og nýir ef þeir fá að liggja í sápunni í tvo til þrjá daga. [
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
!
"""
Hægt að opna
í miklum hita
Sumir vilja getað lokað svöl-
unum og hljóðeinangrað. Gler
og brautir sérhæfa sig í upp-
setningu á gleri á svölum og
sólstofum.
„Við hljóðeinöngrum um 10 desi-
bel, sem þýðir að fólk getur talað
saman úti á svölum við umferðar-
götu, sem það gat ekki áður vegna
hávaða,“ segir Gunnar Svanberg
hjá fyrirtækinu Gleri og brautum.
Hann setur glerið upp innan við
önnur svalahandrið og með þeim
hætti að hægt sé að opna það ef
hitinn verður of mikill. Glerið er
keypt hjá Samverki á Hellu, er 12
millimetra þykkt og stenst því ís-
lenskt ofsaveður eins og 35 m vind
á sekúndu.
Anna Rós Jóhannesdóttir og
maður hennar Skúli Gunnars-
son hafa skapað sér heilan
heim á lítilli flöt í Garðabæ.
Hún notar blómaáburð eftir
leyniuppskrift frá föður sínum
til að láta plöntur vaxa sem
engan óraði fyrir að gætu þrif-
ist hér á landi.
„Ef maður hefur ekki útsýni þá
býr maður það bara til,“ segir
Anna Rós, sem býr í götu í Garða-
bæ þar sem er lítið útsýni og lóð-
irnar litlar. Þau létu samt slík
smáatriði ekki á sig fá og bjuggu
sér bara til fallegt útsýni yfir eig-
in garð, sem Garðabær sá ástæðu
til að verðlauna sérstaklega fyrir
fegurð í ár.
„Framgarðurinn er mjög sér-
stakur. Við erum með mjög marg-
ar tegundir af blómum, ég held að
ég sé til dæmis með allt upp í
fjörutíu rósategundir. Svo er bak-
garður bak við bílskúrinn þar sem
við höfum ræktað grænmeti og
ber, til dæmis rifsber, sólber,
hindber og stikilsber,“ segir Anna
Rós. „Síðan erum við með alls
konar skrítna hluti sem við höfum
fundið, bæði úr Flatey þaðan sem
maðurinn minn er ættaður og frá
foreldrum mínum í Ólafsfirði,“
segir hún. Hlutirnir hafa margir
hverjir sérstaka merkingu og eru
að sögn Önnu eins konar hluti af
fjölskyldunni.
Í garðinum vaxa plöntur sem
virka framandi fyrir Íslendinga
sem þekkja fátt annað en fá-
breytileikann í flórunni. Það kem-
ur því ekki á óvart þegar Anna
lýsir því að fólk hafi ráðlagt henni
frá því að hefja ræktun á ýmsum
plöntum hér á landi vegna veðr-
áttunnar - plöntum sem nú lifa
góðu lífi í garðinum hennar. Þegar
aðeins er gengið á eftir henni
kemur í ljós að hún lumar á leyni-
ráði. „Pabbi minn er bóndi norður
í Ólafsfirði og hefur í nokkur ár
búið til blómaáburð sem ég hef
notað í nokkur ár. Ég bara held að
plönturnar vaxi svo vel á honum
því ég hef aldrei notað nokkuð
annað.“ Greinilegt er að fleiri
hafa fallið fyrir áburðinum því
faðir hennar, sem býr á bænum
Kálfsárkoti í Ólafsfirði, er með
áskrifendur að áburðinum sem
hann býr til úr uppskrift sem
hann neitar að gefa upp.
Um garðinn hennar gildir þó
sama lögmál og um alla garða -
það þarf að sinna honum vel. Anna
Rós sér þó ekki eftir neinu því hún
vinnur krefjandi starf sem yfirfé-
lagsráðgjafi á Barna- og kvenna-
sviði á Landspítalanum og segir
að það sé gott að komast heim og
dreifa huganum í garðinum. „Það
er gott að dunda í moldinni og sjá
eitthvað vaxa og dafna. Ég held að
það hafi styrkjandi áhrif á alla að
sjá eitthvað vaxa.“
Anna Rós Jóhannesdóttir í garðinum.
Blómin vaxa með hjálp blómaáburðar að norðan.
Í garðinum eru einnig hlutir úr ýmsum
áttum.
Rósir og skrítnir hlutir
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI