Fréttablaðið - 08.08.2005, Síða 66
AFMÆLI
Sigrún Hjálmtýsdóttir
„Diddú“ er 50 ára.
Mikael Torfason,
rithöfundur og ritstjóri DV,
er 31 árs.
ANDLÁT
Halldóra Guðrún Jóelsdóttir, Skúlagötu
40a, Reykjavík, lést laugardaginn 30. júlí.
Geir Jóhann Geirsson, vélstjóri, lést
þriðjudaginn 2. ágúst.
Kristbjörn Benjamínsson, frá Katastöð-
um, Núpasveit, lést á dvalarheimilinu
Hvammi, Húsavík, þriðjudaginn 2. ágúst.
„Það verða stórkostlegar breyt-
ingar á blaðinu,“ segir Magnús
Björn Ólafsson nýráðinn ritstjóri
Stúdentablaðsins. „Ég vil fá fólk
til liðs við mig sem hefur skoðanir
og er ekki hrætt við að taka á við-
kvæmum en mikilvægum málefn-
um,“ segir Magnús sem hefur
starfað við Stúdentablaðið síðast-
liðna tvo vetur samhliða því að
nema stjórnmálafræði og heim-
speki við Háskóla Íslands.
Eitt fyrsta verk Magnúsar var
að fara til Palestínu og kynna sér
mannlegu hliðina á þeim hörm-
ungum sem þar hafa dunið yfir.
Hann telur fréttaflutning hér
heima einkennast um of af þurri
tölfræði og of lítið gert af því að
kynna sér mannlega þáttinn.
Magnús ræddi við lækna, kennara
og almenning auk þess sem hann
fór í flóttamannabúðir, keyrði um
í sjúkrabílum og heimsótti há-
skóla í Palestínu. „Það er ótrúlegt
að fylgjast með því hvernig fólk í
Palestínu lifir undir þessari miklu
vá,“ segir Magnús en allir blaða-
menn sem hann ræddi við á svæð-
inu voru sammála um að Ísrael
væri fasistaríki enda falli það
mjög vel að skilgreiningunni.
Hann segir að í hugum margra
Ísraelsmanna séu arabar rétt-
dræpir.
Magnús fór ekki varhluta af af-
skiptum ísraelsku herlögreglunn-
ar en hann telur að þeim sé
meinilla við að útlendingar heim-
sæki Palestínu. „Ég var í yfir-
heyrslum í fjóra tíma, berstrípað-
ur og sakaður um hitt og þetta.
Þeir reyndu að ljúga því að ég
hefði verið með fíkniefni,“ segir
Magnús sem fékk að lokum lög-
reglufylgd út í vél en segist nán-
ast hafa fengið taugaáfall.
Magnús telur að starf sitt sem
ritstjóri verði gefandi og er þess
fullviss að blaðið verði lesið. „Ég
mun sjá til þess,“ segir hann
ákveðinn. „Ég er langt frá því að
vera pólitískur og þetta verður
ekki pólitískt blað,“ segir Magnús
sem ætlar ekki að taka málin
neinum vettlingatökum og finnst
líklegt að einhverjum muni þykja
umfjöllunin óþægileg.
Magnús stefnir ekki á frama í
blaðamennsku á Íslandi en ætlar
sér að skrifa fram á grafarbakk-
ann. Hugur hans stefnir út til
fjarlægra landa og draumurinn
er að starfa sem sjálfstæður
blaðamaður. ■
18 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
EMILIANO ZAPATA (1879-1919)
fæddist þennan dag.
Tekur á viðkvæmum málefnum
MAGNÚS BJÖRN ÓLAFSSON RÁÐINN RITSTJÓRI STÚDENTABLAÐSINS
„Það er betra að deyja standandi en lifa á
hnjánum.“
- Emiliano Zapata er þjóðhetja í Mexíkó og tók þátt í uppreisninni í
Mexíkó árið 1910.
timamot@frettabladid.is
RITSTJÓRI Magnús er nýkominn heim frá Palestínu þar sem hann kynnti sér aðstæður
almennings. Hann mun skrifa um reynslu sína í Stúdentablaðinu.
Bretanum John McCarthy var
sleppt úr haldi mannræningja í
Líbanon þennan dag árið 1991,
en hann hafði þá verið í gíslingu
í fimm ár. Hryðjuverkasamtökin
Islamic Jihad sem rændu blaða-
manninum á sínum tíma til-
kynntu lausn hans í skeyti sem
sent var til fréttastöðvar í höfuð-
borginni Beirút.
McCarthy var rænt í apríl 1986.
Hann var einn af ellefu Vestur-
landabúum sem voru í haldi
hryðjuverkahópa á þessum tíma
og þeirra yngstur. Á blaða-
mannafundi í Sýrlandi þakkaði
McCarthy þeim sem börðust fyrir
lausn sinni og hvatti fólk til að
halda áfram baráttunni til að fá
hina gíslana leysta úr haldi.
Á næstu mánuðum var næstum
öllum Vesturlandabúum sem
haldið var í gíslíngu í Líbanon
sleppt úr haldi. Þrátt fyrir opin-
berar yfirlýsingar um að lausnar-
gjald yrði ekki greitt er talið að
lönd eins og Bandaríkin, Frakk-
land og Þýskaland hafi borgað
mannræningjum háar peninga-
upphæðir eða vopn í skiptum
fyrir landsmenn sína.
Almenningur í Bretlandi fylgdist
spenntur með því hvort ástir
tækjust á ný milli McCarthy og
fyrrum unnustu hans sem hafði
barist ötullega fyrir lausn hans.
Þau skrifuðu saman bók um
raunir McCarthys en síðan skildu
leiðir árið 1994.
8. ÁGÚST 1991
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1945 Sovétríkin lýsa yfir stríði á
hendur Japönum.
1958 Þyrla frá Keflavíkurflugvelli
sækir skipstjóra kafbátsins
Nautilus sem liggur stutt
frá Íslandsströndum og
hafði fimm dögum áður
siglt undir íshelluna á
Norðurpólnum.
1963 Stóra lestarránið er framið í
Bretlandi.
1974 Nixon Bandaríkjaforseti til-
kynnir afsögn sína vegna
Watergate-hneykslisins.
1988 Fyrsta barn Andrésar prins
og Söru Ferguson fæðist.
1992 Íslendingar lenda í fjórða
sæti í handknattleik á
Ólympíuleikunum í
Barcelona.
2001 Gullparið Tom Cruise og
Nicole Kidman skilja.
McCarthy sleppur úr haldi mannræningja
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR
FYRSTA STARFIÐ: STEINN ÁRMANN MAGNÚSSON SKEMMTIKRAFTUR
Missti framan af vísifingri við uppskipun
Fyrstu störf Steins Ármanns
Magnússonar, skemmtikrafts og
leikara, voru uppskipun og ung-
lingavinna sem hann vann jöfnum
höndum í tvö sumur. Steinn var í
uppskipun fyrir Eimskip í Hafn-
arfjarðarhöfn. „Við vorum aðal-
lega í því að húkka gáma og hlaða
á bretti,“ segir Steinn, sem fannst
ekkert sérstaklega gaman í vinn-
unni. „Þetta var nú frekar til-
breytingarlaust fannst mér og ég
entist ekki í þessu.“
Steinn sóttist eftir vinnu við
uppskipun frekar en unglingavinn-
unni þar sem kaupið var betra.
„Maður fékk ekki vinnu alla daga.
Maður mætti bara og svo var þetta
í bíó, þú færð vinnu og þú færð
vinnu,“ segir Steinn sem fannst
dagurinn lengi að líða enda yfir-
leitt settur í leiðinleg verkefni.“
Ég vildi fara í akkorðið ofan í lest
og hamast þar,“ segir Steinn sem á
frekar súrar minningar úr þessari
vinnu.“Ég missti framan af putta í
þessu helvíti. Ég var að losa stroff-
ur og verkstjórinn kom að á raf-
magnslyftara sem var mjög hljóð-
látur og járnin sem ég var að losa
ýttust öll saman og ég klemmist á
milli,“ segir Steinn sem fór aldrei
aftur í uppskipun eftir það. Þótt
Steinn hafi ekki þótt vistin góð
segir hann vin sinn Davíð Þór hafa
þótt gaman í vinnunni.
Steinn telur að hann hafi lítið
lært af þessari fyrstu vinnu, ung-
lingavinnan hafi verið lærdóms-
ríkari. „Svo voru þar líka sætari
stelpur,“ segir Steinn Ármann og
hlær. ■
!" # $%%&
' ()* + , ) - .$%&/
$%&0.
1 (2.- " 1 (*!,3" 4!.#- #
$%&0.5( 6#7 !+ ( (2$%%%8 * !
9'2 "4 *)) $&/$
$:.; ! 3 '!( +' '2 3( * !. <2. - " 1 (
$&//
/: ! $&/=
$08 )" <2.
$&$0
:: > # < ! $&$?. # '
- (- ' ! $&/@
/&*! ($&$:
$@.A >2 (2*. . 2 2# (2.
5*' 2' .< !$&$:.A ) ".- , )
$&/&
$:$&$@
$?' 2' (.B$=.'.
$&::.2' ( )# CD2 '! "4 23 +.
$%&=8 () 6!. $&$0*. . > ' 6!#
$&0%E.) (2F4 9 !>2* 7"4 (
$%G$'*!A '*. . () "4 <1 ! ..
'9' '.9' ( .9 > .,4)2' .*. .
+ ()' ! .>) ') ' ( 2
"4 # 6 .H..I ! ' (
*'' .
J(>(, *!2 ! <')) " .
' (2 #! (.
53(# (+ (2 >9!# @.
'. $%0$ * ( K( 9 +'
22 *! )..H" ((
4( (
!!+ , ) "4 .
6' $%%/L ."(.#H #).
$%%0. 2) + '
;' 2 *! 3+' A '.
<"4 )( ( "4 (2> (2+
'2)*2( - # <>(!(.1 (2.
>M 1 ( $%%02# ( !2. +
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Kristín Sigurðardóttir
Álfaskeiði 100, Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 3. ágúst á St. Jósepsspítala Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 9. ágúst
kl. 15.00.
Sigríður V. Jóhannesdóttir
Sigfús Jóhannesson Guðbjörg Árnadóttir
Sigurlaug J. Jóhannesdóttir Sigurður Þ. Karlsson
Sigþór Ö. Jóhannesson Gíslína G. Hinriksdóttir
Sigrún Ó Jóhannesdóttir Ólafur Kr. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
www.steinsmidjan.is
JAR‹ARFARIR
11.00 Jóhanna Guðnadóttir, frá Jaðri,
síðar húsfreyja í Nesi, Eyjafjarðar-
sveit, verður jarðsungin frá Höfða-
kapellu, Akureyri.
13.30 Steinþór Jensen, kaupmaður,
Norðurbyggð 16, Akureyri, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju.