Fréttablaðið - 08.08.2005, Blaðsíða 73
Jón Bergs son ehf
Kletthálsi 15 - Sími: 588 8886
T i l b o ð
Granit garðborð
þvermál 1,60 mtr. / Beige
Kr. 59.900,-
Nuddpottar: Softub og Marquis spas
Lok á potta: SunStar
Garðhús: UnoSider og IPC
Granit: Hellur, garðkúlur og garðborð
Bjálkahús: Kenomee
MÁNUDAGUR 8. ágúst 2005
JENNIFER LOPEZ Hún viðurkenndi ný-
lega í viðtali að hún yrði dálítið niðurdreg-
in þegar hún hugsaði til þess að Ben Af-
fleck ætti von á barni með Jennifer Garner.
firáir a›
ver›a mó›ir
Jennifer Lopez sagði í nýlegu við-
tali við tímaritið Elle að hún væri
örlítið niðurdregin í sambandi við
hversu vel gengi hjá Ben Affleck
og Jennifer Garner. En Garner er
sögð ófrísk af stúlkubarni og á að
eiga seinna á árinu. Einnig segja
sögusagnirnar að stúlkan fái ef til
vill nafnið Violet.
Lopez og Affleck slitu sam-
vistum á síðasta ári, fjórum mán-
uðum áður en hún giftist söngvar-
anum Mark Anthony. Affleck og
Garner giftu sig í síðasta mánuði
og staðfestu að þau ættu von á
barni. Í viðtalinu var Lopez spurð
hvað henni þætti um hinn nýja
ráðahag Bens en eins og flestir
vita voru þau trúlofuð á sínum
tíma. „Ég vona að þau séu ham-
ingjusöm. Ástin er fallegur hlutur
og á milli okkar er enginn kuldi.“
Seinna í viðtalinu baðst blaða-
maður Elle Lopez afsökunar á að
minnast á þetta mál. Þá viður-
kenndi Lopez að það að verða
móðir væri hennar heitasta ósk og
sagði: „Já, þú gerðir mig leiða
með þessu.“ ■
Leikkonan Kate Hudson hefur ját-
að það að hún sé ekkert hrifin af
rómantískum gamanmyndum en
hún hefur leikið í allnokkrum slík-
um og þar á meðal How to Lose a
Guy in 10 Days, Raising Helen og
Le Divorce.
Nýjasta mynd hennar nefnist
The Skeleton Key og er langt í
frá rómantísk gamanmynd held-
ur rosalegur sálfræðitryllir um
vúdú-galdra og fleira spenn-
andi. „Ég las handritið á innan
við klukkutíma og um leið og ég
kláraði hugsaði ég: „Þetta er
mynd sem ég myndi vilja sjá.“
Ég er ekkert svo hrifin af róm-
antískum gamanmyndum, hvort
sem þið trúið því eður ei. Ja, ég
allavega myndi ekkert hlaupa í
bíóhúsin til að sjá svoleiðis
mynd.“ ■
SAMUEL L. JACKSON Leikarinn vinsæli
ætlar að framleiða teiknimynd fyrir sjónvarp.
Leikur í Afro
Samurai
Leikarinn Samuel L. Jackson ætl-
ar að framleiða nýja teiknimynd
fyrir Spike TV sem nefnist Afro
Samurai. Hún er byggð á teikni-
myndasögum Takasi Okazaki.
Jackson mun einnig tala inn á
teiknimyndina
Jackson ætlar jafnframt að
fara með aðalhlutverkið í sam-
nefndri kvikmynd sem verður
frumsýnd eftir tvö ár. Afro
Samurai fjallar um mann sem
hefnir dauða föður síns og berst
við byssumann með þrjár hendur.
Næsta mynd Jacksons er Black
Snake Moan þar sem hann leikur á
móti Justin Timberlake og Christ-
ina Ricci. ■
KATE HUDSON Leikkonan sem varla hef-
ur gert annað en að leika í rómantískum
gamanmyndum hefur nú lýst því yfir að
hún sé bara ósköp lítið fyrir rómantískar
gamanmyndir.
Líti› fyrir rómantískar
gamanmyndir