Fréttablaðið - 08.08.2005, Side 78
30 8. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Aukin rétt samkynhneigðra til
fjölskylduþátttöku.
Sextíu ár.
Didier Drogba
... fá Jón Gunnar Geirdal og aðrir
starfsmenn Senu fyrir að fá loks-
ins stórstjörnu til að kynna mynd
sína í eigin persónu á Íslandi.
Rob Schneider er á leiðinni til
landsins.
HRÓSIÐ
Síðasti dagurinn. Uppi á Miðholti í
Hafnarfirðinum var mamma
sennilega að undirbúa sunnudags-
matinn. Lambalæri, brúnaðar
kartöflur og maískorn. Afi að
koma í heimsókn. Ég sat hins veg-
ar á flugvellinum í Zürich og beið
þess að komast heim til Íslands.
Það myndi standa tæpt. Hafði ein-
ungis fjörutíu og fimm mínútur til
þess að koma mér á milli flugvéla.
Vonaðist til að ekki yrði nein sein-
kunn. Nennti ekki að gista eina
nótt í Kaupmannahöfn, langaði í
sunnudagsmatinn hennar
mömmu.
Það hafði verið teiti um laug-
ardagskvöldið Öllum boðið á
gay-stað í miðbæ Zürich. Þar
ætlaði Sven Muller, Mr. Gay í
Sviss, að skemmta gestum
með dansi sínum. Christian
Iten, fjölmiðlafulltrúi ráð-
stefnunnar, lagði hart að
mér að mæta. Sagð-
ist ætla að bjóða í
eftirpartí í íbúð
sinni. Merkileg-
ur náungi. Í
útliti minnir
hann á
KGB-morð-
ingja. Þunnt
hár og stór
gleraugu. Ekk-
ert sviss-
neskt við hann. Engu að síður eru
hreyfingar hans á köflum mjög
kvenlegar og stundum eru þær
klunnalegar. Hefur staðið sig
eins og hetja. Á allt hrós skilið.
Ég hafði horft á minningarat-
höfnina um Hiroshima á CNN
föstudagsnóttina. Sextíu ár síðan
fyrstu kjarnorkusprengjunni var
varpað til jarðar til að drepa fólk.
Engu að síður sögðust íbúarnir
ekki bera kala til Bandaríkjanna
heldur vildu að Hiroshima yrði
upphaf friðar. Held að heimurinn
yrði betri ef allir hugsuðu
svona. Var þó ekki í stuði
til þess að velta þessu
eitthvað frekar fyrir
mér. Vildi bara komast
heim í 101. Fá mér te á
Prikinu og sofna í eigin
rúmi. Heima er jú alltaf
best. ■
REISUBÓKARBROT
FREYR GÍGJA BLAÐAMAÐUR ER Á LEIÐ Á RÁÐSTEFNU UM RÉTTINDABARÁTTU UNGS SAMKYNHNEIGÐS FÓLKS Í EVRÓPU.
Heima er best
MUGISON: TEKUR UPP TÓNLIST VIÐ MYND BALTASARS KORMÁKS:
Músíkalskasti maður sem ég hef kynnst
Tónlistarmaðurinn Mugison er
um þessar mundir að taka upp
tónlistina við kvikmynd Baltasars
Kormáks, A Little Trip to Heaven.
Upptökurnar hafa farið fram í
hljóðveri Sigur Rósar, Sundlaug-
inni í Mosfellsbæ. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá í lok júní hefur
Mugison verið að vinna að tónlist-
inni undanfarin misseri en stutt
er síðan upptökurnar hófust.
„Mugison er að gera frábæra
hluti og hann er almúsíkalskasti
maður sem ég hef kynnst,“ segir
Baltasar um framlag Mugison.
„Þetta er honum svo eðlislægt og
ég er rosalega ánægður. Ég ætlaði
upphaflega að láta aðra gera tón-
listina við myndina en eftir að ég
heyrði Mugimama is this Monkey-
music? um jólin og fór svo á tón-
leikana með honum á Nasa kom
enginn annar til greina,“ segir
hann og bíður spenntur eftir því
að geta skreytt myndina með tón-
listinni.
Mugison segir upptökurnar
hafa gengið ágætlega. „Ég er bú-
inn að vera hérna í viku að taka
upp en ég er líka með stúdíó
heima hjá mér og er búinn að
vera þar í mánuð,“ segir hann.
„Það hafa margir verið mér inn-
an handar. Rúna hefur verið að
hjálpa mér og Biggi sundlaugar-
vörður líka.“ Á meðal fleiri að-
stoðarmanna Mugison eru Pétur
Grétarsson trommari, Pétur Þór
Benediktsson gítarleikari og
blásararnir Samúel J. Samú-
elsson og Kjartan Hákonar-
son úr Jagúar.
Eftir að upptökunum
lýkur ætlar Mugison að
snúa sér strax að gerð
sinnar næstu plötu en
ekki er víst hvenær hún
kemur út. Tvær tón-
leikaferðir eru síðan
fyrirhugaðar hjá kapp-
anum á næstunni. Í
október fer hann á rúnt
um Evrópu og í nóvember spilar
hann í Bandaríkjunum til að
fylgja eftir Mugimama-plötunni
sem kemur þar út í október.
A Little Trip to Heaven verður
væntanlega frumsýnd í haust og
skartar þeim Forest Whitaker og
Juliu Stiles í aðalhlutverkum. Eft-
irvinnsla myndarinnar hefur stað-
ið yfir að undanförnu en að öllum
líkindum verður tónlist Mugison
gefin út áður en myndin fer á
hvíta tjaldið.
freyr@frettabladid.is
Lárétt: 2 látið af hendi, 6 ármynni, 8
málmur, 9 fæðu, 11 lít, 12 álögu, 14 pen-
ingar, 16 varðandi, 17 fínt regn, 18 andi,
20 gangþófi, 21 lengdarmálseining.
Lóðrétt: 1 fugls, 3 enn fremur, 4 skráði, 5
viður, 7 lögreglumál, 10 lín, 13 trygg, 15
útstáelsi, 16 stórveldi, 19 fimmtíu og
einn.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2selt,6ós,8eir, 9mat,11sé,12
skatt,14aurar, 16um,17úða,18sál,20
il,21alin,
Lóðrétt: 1lóms,3og,4listaði,5tré,7
sakamál,10tau,13trú,15rall,16usa,
19li.
Í HLJÓÐVERINU Mugison er um þessar mundir að taka upp tónlistina við kvikmynd
Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven.
BALTASAR KORMÁKUR Baltasar sannfærðist um ágæti Mugison eftir að
hann sá hann spila á tónleikum á Nasa.
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður félags-
ins Ísland-Palestína, er mikill áhugamaður um berja-
tínslu. Hann segir að sprettan byrji í ár að minnsta
kosti jafnsnemma og í fyrra.
„Ég fór vestur á Snæfellsnes í berjamó upp úr miðj-
um júlí þar sem við vorum undir jökli í hrauninu. Þá
voru krækiberin orðin töluvert vel sprottin. Þarna var
þó nokkuð af þroskuðum og góðum berjum og eitt
og eitt bláber var þroskað,“ segir Sveinn Rúnar og
bætir við: „Viku seinna var ég uppi í hlíðunum fyrir
austan Klaustur í Eldhrauni og þar voru krækiberin
almennt vel sprottin. Þar var lítil telpa fyrst til að
benda á bláberjalyng á þúfu sem var alblá. Þar var
ekki einn einasti grænjaxl.“
Sveinn segir að sprettan í fyrra hafi verið óvenjulega
góð, rétt eins og núna. „Ég ætlaði ekki að trúa því í
fyrra þegar ég var í Bláfellshrauni 1. ágúst að tína
upp í mig fyrstu aðalbláberin. Vanalega hafa berin
verið tilbúin hálfum mánuði eða þremur vikum
seinna. Ég var að tína í fyrra fram undir lok septem-
bermánaðar. Þá var ég að sækja krækiber í Selvog-
inn. Áður hafði ég ekki nema eina til tvær vikur til að
tína berin vegna þess að næturfrostið var þá skollið
á í byrjun september,“ segir hann. „Ef veðráttan helst
svipuð stefnir í annað feiknalega gott berjaár.“
Auk eigin reynslu af sprettunni á Austur- og Vestur-
landi hefur Sveinn heyrt góðar berjafréttir af Vestfjörð-
um og segist einnig hafa fulla trú á að Norðurlandið
skili sínu, bæði Tröllaskaginn og Þingeyjarsýslur. Hann
segir yndislegt að vera úti í náttúrunni og njóta þeirra
gjafa sem hún gefur. Eftir tínsluna frystir Sveinn berin
og reynir síðan að láta þau endast yfir árið en hann
borðar þau eintóm eða með mjólk, rjóma eða skyri.
Hann gerir saft úr berjunum en einnig sultur þótt
minna hafi farið fyrir því undanfarið.
BERJATÍNSLA: SVEINN RÚNAR HAUKSSON SEGIR AÐ ALLT STEFNI Í ANNAÐ FEIKNALEGA GOTT BERJAÁR.
SÉRFRÆÐINGURINN
SVEINN RÚNAR HAUKSSON Sveinn Rúnar hefur ákaf-
lega gaman af berjatínslu.
Tínir upp gjafir náttúrunnar
STYLUS CX-3650
VILTU
TÖLVU?
Sendu SM
S skeyti›
BT SLF á
númeri›
1900 og
flú gætir
unni›.
Vi› sendu
m flér sp
urningu.
fiú svara
r
me› flví a
› senda S
MS skeyt
i› BT A,
B e›a C á
númeri›
1900.
Klikka›ir
aukavinn
ingar!
MEDION far
tölvur • EPS
ON prentara
r • SONY m
p3 spilarar
GSM símar
• SONY staf
rænarmynd
avélar • PS2
tölvur
Bíómi›ar á
Ævintýrafer
ðina • PS2 S
ingstar
Battlefield 2
• God of W
ar tölvuleik
ir • Kippur a
f Coke
og enn meir
a af DVD, g
eisladiskum
, tölvuleikju
m og fleira.
..
Taktu þátt
!
Þú gætir u
nnið
fartölvu fr
á BT og
margt flei
ra!
10. hver v
innur!
SMSLEIKUR
Vi
nn
in
ga
r
ve
r›
a
af
he
nd
ir
í
BT
S
m
ár
al
in
d,
K
óp
av
og
i.
M
e›
fl
ví
a
›
ta
ka
fl
át
t
er
tu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
i›
C8 OPTIVIEW 17
100GBharður diskur!
17” WideXGA skjár!
SUPER DVDskrifari!
NVIDIA
GeForce skjákort
Flottasta
skólavélin
!
TÖLVULEIKIR
CYBER
SHOT
DSC-S
40
X1 BLACK DRAGON
Ódýr
asta
skóla
vélin
!
GSM SÍM
AR