Fréttablaðið - 12.08.2005, Síða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,8 64,1
115,05 115,61
79,19 79,63
10,612 10,674
10,029 10,089
8,494 8,544
0,5781 0,5815
93,97 94,53
GENGI GJALDMIÐLA 11.08.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,3078
4 12. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Skattar lækka en
álagning hækkar
Lægri skattar fl‡›a ekki minni tekjur ríkissjó›s. Álag›ir tekjuskattar einstakl-
inga hafa hækka› undanfarin ár en skattprósentan hefur lækka›. Um næstu
áramót mun skattprósentan lækka úr 24,75 prósentum í 23,75 prósent.
SKATTAR Tekjur ríkissjóðs af al-
mennum tekjuskatti einstaklinga
hafa hækkað jafnt og þétt frá ár-
inu 1999 til ársins 2005 enda þótt
skattprósentan hafi lækkað á
sama tíma frá 26,41 prósenti árið
1999 niður í 25,75 prósent árið
2004. Skattprósentan lækkaði nú
um síðustu áramót um eitt pró-
sentustig og er staðgreiðsla því
nú 24,75 prósent. Um næstu ára-
mót lækkar skatturinn um eitt
prósentustig og verður 23,75 pró-
sent og í ársbyrjun 2007 lækkar
skattprósentan síðan niður í
21,75 prósent.
Þegar litið er til hlutfalls
skatttekna af fjölda gjaldenda
við greiðslu tekjuskatts á tíma-
bilinu sést að álagningin hefur
farið vaxandi en hafa ber í huga
að álagning er ekki endanleg tala
innheimtra skatta. Þannig hefur
stiglækkandi tekjuskattspró-
senta frá árinu 1999 skilað sér í
hærri álögðum sköttum en á
meðfylgjandi töflu má sjá hvern-
ig álagningin á hvern gjaldenda
hefur aukist sem skýrist einkum
og væntanlega af hærri launa-
greiðslum.
Sama gildir um fjármagns-
tekjuskatt en hlutfall hans af
fjölda gjaldenda út frá álagningu
hefur einnig hækkað en hann var
á árinu 1999 aðeins um nítján
þúsund krónur á hvern gjald-
enda en á síðasta ári rétt tæplega
hundrað þúsund krónur en skatt-
prósenta hans hefur hins vegar
staðið í stað og er tíu prósent.
Sérstakur tekjuskattur eða
hinn svokallaði hátekjuskattur
hefur breyst töluvert á sama
tímabili sem hlutfall af fjölda
gjaldenda en hann reiknast sem
hlutfall af tekjum yfir tilteknum
mörkum og verður lækkaður
niður í tvö prósent á næsta ári og
felldur niður árið á eftir. - hb
Þrír menn handteknir:
Ætlu›u a›
selja fíkniefni
LÖGREGLUMÁL Þrír menn hafa verið
ákærðir eftir að í ljós kom að þeir
höfðu fíkniefni undir höndum í
Kópavogi rétt fyrir miðnætti á
miðvikudagskvöld. Fjórir menn
voru handteknir í tengslum við
málið en einum var leyft að fara
án ákæru.
Við leit á mönnunum og í
heimahúsi fannst nokkuð magn
fíkniefna, um fimmtíu grömm af
hassi, á annan tug e-taflna og smá-
ræði af maríjúana. Viðurkenndu
mennirnir að til stæði að selja efn-
in. Þeir fengu að fara að afloknum
yfirheyrslum og málið telst upp-
lýst. - ht
ARON PÁLMI Aron hefur setið í stofufang-
elsi í Bandaríkjunum frá árinu 1997.
Grandi kostar heimför Arons:
Styttist í
ákvör›un
RÉTTINDABARÁTTA „Það mun eitthvað
fara gerast fljótlega í þessum mál-
um því skrifstofa ríkisstjóra sagði
ákvörðunar að vænta eftir fjórar
til sex vikur og nú eru liðnar fjórar
vikur,“ segir Einar S. Einarsson,
talsmaður RJF-hópsins, sem vinn-
ur að því að fá Aron Pálma Ágústs-
son leystan úr haldi í Texas í
Bandaríkjunum.
„Það er hins vegar ánægjulegt
að Grandi hefur ákveðið að kosta
heimför Arons Pálma og við erum
vongóðir en getum ekki fullyrt um
eitt né neitt,“ sagði Einar. - hb
VEÐRIÐ Í DAG
200 þúsund
100 þúsund
300 þúsund
400 þúsund
500 þúsund
Tekjuskattur
Sérstakur tekjuskattur
Fjármagnstekjuskattur
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
ÁLAGÐIR SKATTAR AÐ MEÐALTALI Á GJALDANDA
1999-2005
Tíu erlendir ríkisborgarar handteknir í Bretlandi:
Sag›ir ógnun vi›
öryggi landsins
HRYÐJUVERK Breska lögreglan hef-
ur handtekið tíu útlendinga sem
taldir eru ógna öryggi landsins.
Þeim verður að líkindum vísað úr
landi og framseldir til heimalanda
sinna, þar sem þeir eru flestir
eftirlýstir.
Lögreglusveitir og starfsmenn
breska útlendingaeftirlitsins réð-
ust í vikunni inn á heimili í
Leicester, Luton og Lundúnum og
handtóku þar tíu erlenda ríkis-
borgara. Charles Clarke innanrík-
isráðherra staðfesti í samtali við
BBC að mennirnir væru í varð-
haldi þar sem þeir væru taldir
ógna þjóðaröryggi. Hann hvorki
nafngreindi mennina né útskýrði
hvers vegna þeir væru hættulegir.
Samkvæmt heimildum BBC er
einn mannanna Abu Qatada,
jórdanskur múslimaklerkur sem
áður hefur verið í haldi bresku
lögreglunnar. Hann hefur verið
dæmdur í ævilangt fangelsi í
heimalandi sínu, að sér fjarver-
andi, fyrir aðild að sprengjutil-
ræðum og er búist við að hann
verði framseldur þangað. Bresk
lög banna framsal fanga til landa
þar sem mannréttindi eru fótum
troðin. Clarke sagði að samkomu-
lag hefði verið gert við jórdönsk
stjórnvöld um að Qatada yrði ekki
pyntaður eða látinn sæta illri
meðferð að öðru leyti. Mannrétt-
indasamtök gefa hins vegar lítið
fyrir þann samning.
Hinir mennirnir eru sagðir Al-
síringar og Líbanir. ■
UMFANGSMIKLAR HANDTÖKUR Tveir ættingja sprengjumannanna frá 21. júlí og átta til við-
bótar voru leiddir fyrir dómara í Lundúnum í gær, en þeim er gefið að sök að hafa leynt
upplýsingum um félaga sína. Tíu útlendingar hafa auk þess verið hnepptir í varðhald.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
STJÓRNMÁL
RÁÐHERRA Í HEIMSÓKN Hans
Christian Schmidt, matvælaráð-
herra Danmerkur, er í heimsókn
hérlendis til að kynna sér íslensk-
an sjávarútveg. Hans Christian
fundar með Árna Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra og Guðna
Ágústssyni landbúnaðarráðherra.
Þá heimsækir hann sjávarútvegs-
fyrirtæki.
BREYTINGAR Á SKATTGREIÐSLUM Frá árinu 1999 til 2005 hefur meðalgreiðsla einstaklings vegna tekjuskatts hækkað úr tæpum 290
þúsund krónum á ári í tæpar 426 þúsund. Á sama tíma hefur sérstakur tekjuskattur (hátekjuskattur) lækkað úr tæpum 100 þúsund
krónum á ári í tæpar 81 þúsund. Frá 1999 til 2005 hefur fjármagnstekjuskattur á einstakling hækkað úr tæpum 19 þúsund krónum á
ári í rúmar 98 þúsund krónur.
HVETUR TIL SAMSTÖÐU Þótt Kiir hafi leitt
sjálfstæðisbaráttu Suður-Súdana ætlar
hann að efla samstöðu í landinu.
Nýr varaforseti Súdans:
Lofar a›
koma á fri›i
KHARTOUM, AP Salva Kiir Mayardit
sór í gær embættiseið sem fyrsti
varaforseti Súdans. Við sama
tækifæri tók hann við stjórnar-
taumunum í Suður-Súdan.
John Garan de Mabior, forveri
Kiir, dó í þyrluslysi 30. júlí og
síðan þá hefur verið nokkur ólga í
landinu. Þeir félagarnir voru í for-
ystu Frelsissamtaka Suður-Súdan
sem þar til í janúar á þessu ári
börðust fyrir sjálfstæði héraðsins.
Við athöfnina í gær vísaði Kiir
því á bug að hann hygðist auka á
sundrunguna í landinu og um leið
hét hann því að vinna að friði í
sameinuðu Súdan. ■