Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 10
KAFBÁTURINN KVADDUR Fjöldi fólks lagði leið sína til Settala á Norður-Ítalíu til að berja kafbátinn Enrico Toti augum áður en hann leggur í sína síðustu ferð. Förinni er heitið á Vísinda- og tæknisafnið í Mílanó, þar sem báturinn verður til sýnis í framtíðinni. 10 12. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Formaður Sjómannasambandsins um stjórnsýslukæruna: Fórum algjörlega a› vinnulöggjöf KJARAMÁL „Það var algjörlega farið eftir vinnulöggjöf í þessum efn- um, að höfðu samráði við lögfræð- inga okkar,“ segir Sævar Gunn- arsson, formaður Sjómannasam- bands Íslands, um fram komna stjórnsýslukæru til félagsmála- ráðuneytis vegna framkvæmdar talningar atkvæða um kjarasamn- ing sjómanna. Kæran er grundvölluð á því að liðið hafi vel á annan mánuð frá undirritun samninga og þar til at- kvæðagreiðsla hafi farið fram. Einnig hafi kjörfundaratkvæði og póstatkvæði verið talin í einum potti. Þátttaka í póstatkvæða- greiðslu megi ekki vera undir 20 prósentum eigi hún að teljast gild en menn hafi ekkert vitað hvað voru póstatkvæði og hvað kjör- fundaratkvæði. Hvort tveggja sé því brot á ákvæðum vinnulöggjaf- arinnar. „Við sömdum um frest við und- irritun samninga til þess að gefa sjómönnum kost á að koma í land og hafa skoðanir á málunum,“ seg- ir Sævar. „Við hefðum orðið fyrir mjög mikilli gagnrýni ef við hefð- um lokað atkvæðagreiðslunni viku áður en allur flotinn kom í land. Hefði þátttakan í atkvæðagreiðsl- unni orðið undir 20 prósentum þá hefði samningurinn verið sam- þykktur hverjar sem niðurstöður talningar hefðu orðið. Um var að ræða opna atkvæðagreiðslu með tvöfalt meiri þátttöku, þannig að ákvæði um póstatkvæði komu mál- inu ekki við.“ - jss Samtök myndrétthafa á Íslandi: Loka› á áskrifendur SKY NEYTENDUR Smáís, samtök mynd- rétthafa á Íslandi, hafa komist að samkomulagi við SKY-sjónvarps- stöðina að hér eftir verði ekki hægt að greiða fyrir áskriftir með íslenskum kreditkortum. Hafa nokkrir söluaðilar auglýst aðgang að stöðvum SKY, þar á meðal enska boltanum, með sérstökum búnaði til þess arna en nú er að mestu loku fyrir það skotið. Áskrifendur eru fjölmargir hér á landi þrátt fyrir að strangt til tekið sé það ólöglegt enda sýn- ir SKY efni sem innlendir aðilar eiga rétt á. Enda hafa margir þurft að fara krókaleiðir til þess að greiða mánaðarlega fyrir áskriftir sínar og hefur slíkt yfir- leitt þurft að fara í gegnum þar- lendan aðila. Samkvæmt fréttatilkynningu grípur Smáís til frekari aðgerða hjá þeim fyrirtækjum sem halda áfram að auglýsa áskriftir að SKY enda skekkir slíkt samkeppnis- stöðu íslenskra fjölmiðla að etja kappi við slíka starfsemi. María Rúnarsdóttir, fjármála- stjóri hjá Svar Tækni, sem aug- lýsti slíkt síðast í sumar, segir þetta engu breyta. Áfram verði seldur sá gervihnattabúnaður sem til þurfi enda SKY ekki eina sjónvarpsstöðin sem hægt sé að ná með slíkum búnaði. - aöe Láti› reyna á hvort bygg›akvóti stenst lög Útvegsma›ur í Vestmannaeyjum íhugar a› stefna sjávarútvegsrá›herra vegna úthlutunar bygg›akvóta. Sjávarútvegsrá›herra telur úthlutanirnar standast lög en a› öllum sé heimilt a› bera stjórnvaldsákvar›anir undir dómstóla. ÚTVEGSMÁL „Við getum ekki lengur sætt okkur við eignaupptöku sem sjávarútvegsráðherra stendur fyrir,“ segir Magnús Kristinsson, útvegsmaður í Vestmannaeyjum. Magnús íhugar að stefna sjáv- arútvegsráðherra vegna úthlutun- ar byggðakvóta sem kynnt var í síðustu viku. Vestmannaeyingum var þá ekki úthlutað neinum byggðakvóta, en alls var 4.010 tonnum úthlutað til byggðarlaga sem lent hafa í vanda. Þau bæjar- félög sem mestan byggðakvóta fengu eru Súðavík, Siglufjörður og Stykkishólmur. „Það er alveg ljóst að nú látum við sverfa til stáls,“ segir Magnús. „Það er ekkert annað en hrein og klár eignaupptaka þegar eignir manns eru teknar og þeim deilt út til annarra.“ Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, kveðst reikna með því að höfðað verði mál gegn ríkinu vegna byggðakvótans. „Menn vilja láta á það reyna hvort standist gagnvart eignarétt- arákvæði stjórnarskrárinnar að taka hluta kvóta sem menn hafa keypt og úthluta honum með þess- um hætti,“ segir Friðrik. „Við telj- um að ef menn hafa keypt sér rétt til þess að nýta ákveðinn hluta fiski- stofna eigi þeir réttinn þar með og að hann verði ekki frá þeim tekinn.“ Friðrik segir sambandið sjálft ekki ætla að reka málið heldur komi það í hlut einnar útgerðar að höfða prófmál, í samstarfi við sambandið. „Útvegsmenn sem sæti eiga í stjórn samtakanna hafa ákveðið að stuðla að því að þessi leið verði farin,“ segir hann. „Úthlutanir af þessu tagi eru alltaf mjög umdeilanlegar,“ segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráð- herra. „Þær eru hins vegar í sam- ræmi við lög um stjórn fiskveiða og þar hefur alltaf verið gert ráð fyrir slíkum úthlutunum.“ Árni segist ekki í vafa um að úthlutanirnar standist lög, ella væri ekki staðið að þeim með þessum hætti. Öllum sé hins veg- ar heimilt að bera stjórnvalds- ákvarðanir undir dómstóla. helgat@frettabladid.is SUS ályktar um Símann: Fagna sölu Landssímans STJÓRNMÁL Samband ungra sjálf- stæðismanna fagnar sölu Sím- ans. Þeir skora á stjórnvöld að halda áfram á sömu braut og hefja sölu á Áfengis og tóbaks- verslun ríkisins, Landsvirkjun og Ríkisútvarpinu og segja fyr- irtækin betur komin í eigu framtakssamra einkaaðila en hjá núverandi eigendum. Ungir sjálfstæðismenn leggja áherslu á að andvirði Símans verði varið í niður- greiðslu skulda og lækkun skatta en ekki á óskynsamlegan hátt eins og í pólitísk gæluverk- efni. - hb edda.is Stórbrotin örlagasaga Sakleysingjarnir er heillandi frásögn um mannlegan breyskleika, djúpa einsemd, ást, söknuð og mikil örlög – stórbrotin saga sem heldur lesanda rammlega föngnum allt til enda. „Stórvirki.“ − Skafti Þ. Halldórsson, Mbl. „Ólafur Jóhann fangar lesandann áreynslulaust inn í söguheim sinn. Hann býr einfaldlega yfir þeirri náðargáfu að kunna að segja sögu .“ − Hlynur Páll Pálsson, Frbl. SÆVAR GUNNARSSON Frestur framlengdur til að gefa sjómönnum kost á að koma í land og kjósa. ENSKI BOLTINN GEGNUM SKY Auglýsing Svar Tækni frá því fyrr í sumar um mögu- legt aðgengi að enska boltanum með búnaði frá fyrirtækinu. Smáís hefur nú hafið herferð gegn þeim er slíkt bjóða enda ólöglegt. DEILT UM BYGGÐAKVÓTA Framkvæmdastjóri LÍÚ telur líklegt að borið verði undir dóm- stóla hvort úthlutun byggðakvóta standist lög.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.