Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 og Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850 ı Myndsmi›jan Egilsstö›um
ENGRI LÍK! Finepix F10 hefur teki› næsta skref í stafrænni ljósmyndun.Me› ljósnæmi allt a› ISO 1600 í fullri upplausn!
Miklu minni líkur á hreyf›um myndum.
Ótrúleg flassdrægni.
Margfalt lengri rafhlö›u ending, allt a› 500 skot!
Eldsnögg a› kveikja - 1,3 sek og tökutöf 0,01 sek.
Finepix F10
6.3M Super CCD
3X linsua›dráttur
2.5 tommu skjár
ISO allt a› 1600
Ver› kr. 49.900
N‡ kynsló› af Super CCD
www.ljosmyndavorur.is
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 12. ágúst,
224. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.09 13.33 21.54
AKUREYRI 4.42 13.17 21.50
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Geitaostur var unninn í sumar í Mjólk-
ursamlaginu í Búðardal úr íslenskri
geitamjólk sem safnað var á búinu á
Háafelli í Hvítársíðu. Ostarnir hafa
verið settir í kynningarsölu á meðan
takmarkað magn endist.
Jóhanna B. Þorvaldsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og bóndi, tekur þátt í tilraunaverk-
efni með vinnslu á afurðum úr sauða- og
geitamjólk. Geitaostur sem er sambærileg-
ur hinum gríska fetaosti var unninn í
Mjólkursamlaginu í Búðardal úr geitunum
hennar og verður í kynningarsölu á meðan
birgðir endast. „Ég er sú eina sem hefur
verið að mjólka geiturnar mínar hérlendis,
en ég er með 34 geitur og fæ þannig um 30
lítra á dag,“ segir Jóhanna. Hún segir geita-
mjólkina auðmeltari en kúamjólkina, hún
henti sérstaklega vel fólki og börnum með
óþol og sé góð við sýkingum. „Miklar rann-
sóknir hafa verið unnar í Noregi og víðar á
geitamjólkinni sem heilsufæði og nú hefur
verið sett af stað rannsóknarverkefni sem
miðar að því að kortleggja prótín í íslenskri
geitamjólk,“ segir Jóhanna, sem hefur
mikla trú á geitamjólkinni og metur nær-
ingareiginleika hennar mikils. „Sjálf bý ég
til jógúrt úr mjólkinni og barnabarnið mitt
lifir alfarið á geitamjólkinni,“ segir Jó-
hanna. Í geitamjólkinni eru smærri prótín,
sem fara betur í meltingarveg barna, sér-
staklega þeirra sem þola ekki kúamjólk og
jafnvel ekki sojamjólk heldur.
„Kiðlingakjötið nota ég einnig mjög mik-
ið en það er mjög gott. Það er alveg fitu-
laust og er miðja vegu milli kanínu og
lambs, en kjötið er mun ljósara en á lambi,“
segir Jóhanna. Hún segist vera mjög
spennt að taka þátt í verkefninu, enda hafi
hún lagt hjarta sitt og sál í vinnuna með
geitunum. „Það er virkilega gaman að sjá
árangur af vinnu sinni. Draumurinn er svo
náttúrlega að búa sjálf til ostinn á búinu og
selja hann ásamt mjólkinni beint þaðan,“
segir Jóhanna og bætir því við að íslenska
geitamjólkin sé sætari og mildari en kúa-
mjólkin og köld og ný sé hún ekki ósvipuð
léttmjólk. „Mér finnst vanta að brúni geita-
osturinn sé búinn til hérna, hann er svo góð-
ur. Geitaostarnir verða til sölu í Mjólkur-
búðinni í Búðardal, Ostabúðinni á Bitru-
hálsi, Ostabúðinni á Skólavörðustíg og
Ostahúsinu í Hafnarfirði.
kristineva@frettabladid.is
Milli kanínu og lambs
tilbod@frettabladid.is
Stórútsala á teppum og mott-
um er í versluninni Persíu í
Bæjarlind 16. Afsláttur er frá
25 upp í 60 prósent en
30 prósent er samt
algengast og þá er
miðað við stað-
greiðslu eða debet-
kortagreiðslu. Breiddin er
mikil í mottunum, bæði í
mynstrum og litum, og um er
að ræða teppi og mottur úr
margs konar efnum, allt frá
gerviefnum upp í þykk hand-
hnýtt ullarteppi. Meðal þess
sem er á boðstólum er ný silki-
rýjateppi. Útsalan í Persíu
stendur út ágúst.
Útivist og veiði er með allar
stangveiðivörur
á stórlækk-
uðu verði
til 17.
ágúst og
er afslátt-
urinn allt
að 70 prósent. Vöðlur, skór og
fleira er á 30 prósenta af-
slætti og Black Line
stangaserían er á
40 prósenta af-
slætti. Þá eru spúnar,
fluguhnýtingarefni og
flugulínur á góðum kjör-
um, töskur, box og allt sem
að stangveiði lýtur. Útivist og
veiði er í Síðumúla 11.
Allar útsöluvörur eru
á innan við þús-
undkall í Zöru í
Smáralind.
Fjögur verð eru í
gangi, 395, 595,
795, og 995 krón-
ur. Þarna er enn
að finna boli,
belti, peysur og
skó svo nokkuð
sé nefnt og þess
má geta að út-
salan rennur sitt skeið á enda á
sunnudaginn.
Mjólkursamlagið í Búðardal hefur búið til ost úr mjólkinni úr geitunum hennar Jóhönnu.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Kennarinn bað mig
að skrifa um tvær
uppfinningar sem
gerðar voru á síð-
ustu tíu árum svo
ég skrifaði um
bróður minn og
mig!
Grænmetismarkaður í Mosó
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is