Fréttablaðið - 12.08.2005, Side 48

Fréttablaðið - 12.08.2005, Side 48
36 12. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Hljómsveitin Skítamórall spilar í Valaskjálf á Egilsstöðum næst- komandi laugardag. Bæjarhátíð Fljótsdalsbyggðar, Ormsteiti, fer fram um helgina og er ballið með Skítamóral hluti af henni. Spilaði sveitin á sömu hátíð í fyrra fyrir fullu húsi. Skítamórall, sem spilaði á Þjóðhátíð í Eyjum um verslun- armannahelgina við góðar und- irtektir, sendi nýverið frá sér lagið Má ég sjá. Lagið hefur fengið góða spilun á FM 957 og er á meðal tíu efstu laga á Net- listanum. Ný plata Skítamórals er síðan væntanleg í haust. ■ Skákhátíð Hróksins 2005 er hafin á Austur-Grænlandi. Hróksmenn byrjuðu að tínast til Tasiilaq á mánudaginn og eftir að hafa tekið samkomuhús bæjarins í gegn var opnaður skákskóli á þriðjudag. Aðaltorg bæjarins iðaði svo af lífi á miðvikudaginn, þegar tugir Grænlendinga tefldu í glampandi sól. Miðstöð skákhátíðarinnar er í Tasiilaq, stærsta bæ Austur- Grænlands. Íbúar eru tæplega 2.000 og í grunnskóla bæjarins eru hátt í 500 börn. Á föstudaginn verður barnaskákmót á torginu í Tasiilaq en meðal keppenda verða börn úr Hróknum sem sum hver eru að koma og keppa í Tasiilaq í annað sinn. Danski stórmeistarinn Henrik Danielsen, skólastjóri Hróksins, kennir heimafólki skák dagana sem hátíðin stendur yfir og sér til halds og trausts hefur hann Namibíumanninn Otto Nakapunda en skákglaðir Grænlendingar bíða spenntir eftir að fá að etja kappi við hann í fjöltefli. Otto er þrjátíu ára gamall en hann sigraði á skákmóti Hróksins og Þróunar- samvinnustofnunar Íslands í Namibíu í vor og hlaut að launum þriggja vikna ferð til Íslands – og Grænlands. Otto er býsna slyngur skákmaður og heimamenn dást sérstaklega að því hversu hand- fljótur hann er þegar hann stýrir taflmönnum sínum til sigurs. Hróksliðið setur svo sannar- lega svip sinn á bæinn og vekur ekki síst lukku hjá unga fólkinu sem fjölmennir við útitaflið fyrir framan samkomuhús bæjarins sem breytt hefur verið í skákhöll á mettíma. Þó að skákin sé aðal- málið bryddar Hrókurinn upp á ýmsum öðrum uppákomum á meðan hátíðin stendur yfir. Guð- mundur J. Haraldsson leikari verður með leiksmiðju fyrir börn á fimmtudag og föstudag. Þá opnar sýning á verkum lista- konunnar Huldu Hákon í skák- höllinni á morgun. Hún sýnir sjó- skrímsli sem sannarlega kynda undir ímyndunaraflinu. Sam- hliða verður opnuð sýning á ljós- myndum frá landnámi Hróks- manna á Grænlandi á síðustu árum. Á laugardag og sunnudag verð- ur svo hápunktur hátíðarinnar, Grænlandsmótið 2005, sem til- einkað er minningu Haraldar Blöndal hæstaréttalögmaður sem var einn af stofnendum Hróksins og í stjórn félagsins. Meðal kepp- enda á mótinu verða Henrik Dani- elsen og Róbert Harðarson sem ætla sér báðir stóra hluti. Þá tek- ur gesturinn frá Namibíu að sjálf- sögðu þátt ásamt flestum öðrum sem vettlingi geta valdið. thorarinn@frettabladid.is Hrókur alls fagna›ar á Grænlandi KRAKKARNIR Í TASIILAQ Fjölmenntu á skákæfingu fyrir framan skákhöllina á miðvikudag. Taflmennskan var fjörug og ýmsar furðuleg- ar stöður komu upp en þeir sem urðu að lúta í lægra haldi leituðu huggunar í íslensku sælgæti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /Þ Ó R AR IN N Þ Ó R AR IN SS O N Ellefu mánuðum eftir skilnaðinn frá Jóakim prins hefur Alex- andra náð sér í nýjan kærasta. Martin Jørgensen heitir sá og er lærður ljósmyndari. Hann er fimmtán árum yngri en prins- essan, aðeins 26 ára. Þess má geta að Jóakim er fimm árum yngri en Alexandra. Myndir af parinu eru nú á forsíðum dönsku slúðurblaðanna og hafa vakið töluverða athygli í Danmörku. Parið kynntist við gerð sjón- varpsþáttar um Alexöndru sem faðir Martins framleiddi. Talið er að samband Martins og Al- exöndru hafi hafist í vor en ekki fyrr en nú að upp um þau kemst. Þau hafa dvalið langdvölum í sumarhúsi foreldra Martins á Ítalíu og þannig náð að halda þessu leyndu. Ef Alexandra giftir sig aftur á hún á hættu að missa prinsessutitilinn og skatt- fríðindin. Hún fær þó áfram út- hlutað tæpum tuttugu milljónum króna árlega frá danska þinginu. Skítamórall spilar á Austfjör›um SKÍTAMÓRALL Hljómsveitin Skítamórall er að undirbúa nýja plötu sem kemur út í haust. LJÓSMYNDARINN Martin Jørgensen er fimmtán árum yngri en prinsessan. ALEXANDRA Prinsessan er nú á forsíðum slúðurblaðanna því hún er komin með nýjan kærasta. Alexandra prinsessa komin me› n‡jan kærasta Nicole Kidman segist óska þess að Tom Cruise, fyrrum eiginmaður hennar, verði hamingjusamur. Hún segir það vera best fyrir börnin sem þau ættleiddu saman. „Ég vona að hann sé hamingju- samur því það gerir börnin okkar líka hamingjusöm,“ hefur frétta- vefurinn ananova.com eftir henni. Ástarmál Cruise hafa verið töluvert mikið á milli tannanna á fólki að undanförnu í ljósi hálf undarlegs sambands hans og Katie Holmes. Hann tók saman við Penelope Cruz skömmu eftir skilnaðinn en þegar upp úr því slitnaði hvíldi hann í rúmi fyrir- sætunnar Sofiu Vergara. Nýlega var svo tilkynnt um trúlofun hans og Katie Holmes. Samband þeirra hefur verið á forsíðum allra helstu slúðurblaða, ekki síst vegna þess að svo virðist sem Cruise sé farinn að stjórna hlut- verkavali verðandi eiginkonu sinnar. Hún hefur nú ákveðið að dvelja á tökustað unnusta síns þegar hann byrjar að leika í MI:3. Minna hefur farið fyrir ástar- málum Nicole Kidman. Hún var á tímabili orðuð við popparann Robbie Williams og rokkarann Lenny Kravitz. Kidman hefur líka haft í nógu að snúast með feril sinn en það virðist vera lenska hjá fyrrum ástkonum Cruise að þær komast fyrst á flug þegar þær eru hættar með honum. ■ HAMINGJUSÖM FJÖLSKYLDA Lengi vel var hjónaband Nicole Kidman og Tom Cruise talið það traustasta í Hollywood. Því kom mörgum á óvart þegar upp úr slitnaði. Vill a› Cruise höndli hamingjuna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.