Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 50
Mér finnst það vera langt síðan ég
heyrði jafn skotheldan slagara og
Every Day I Love You Less and
Less, sem flestir virðast hafa á heil-
anum þetta sumar. Þetta lag er álíka
hressandi og ískalt vatnsglas á heit-
um degi. Það er engin furða að hjól-
in séu að snúast svona hratt fyrir
þessa sveit þessa dagana.
Frumraun hennar er heldur ekk-
ert slor. Hresst adrenalínrokk,
hannað til þess að hreyfa mennsk
liðamót á tónleikum eða á nætur-
klúbbum. Það er líka greinilegt að
þessir piltar eru undir töluverðum
áhrifum frá sveitum á borð við The
Clash, The Who, Supergrass eða
öllu heldur The Jam. Gömlu mod-
ararnir brosa líklegast sínu breið-
asta þessa daganna.
Svona á líka að gera popprokk-
plötur. Ellefu lög, þar sem hvert og
eitt hefur sinn tilgang, með hæfileg-
um skammti af slögurum og þjóðfé-
lagsgagnrýni. Sum lögin eru svo
grípandi að það er nóg að heyra þau
einu sinni til þess að þau vistist end-
anlega á harða drifinu hjá manni.
Útsetningarnar eru líka mjög for-
vitnilegar. Hljómurinn er mjög hrár
og lifandi þrátt fyrir að sveitin
styðjist annað slagið við forritanir.
Það er þó aldrei tölvuyfirbragð yfir
tónlistinni. Ef það eru forrituð bít
með eru þau eingöngu notuð sem
skraut og alltaf til að undirstrika
eitthvað sem er þegar til staðar.
Moog-hljómborðið er svo eins og
vingjarnlegur róbot sem fær að
vera með í partíinu.
Þessi plata er nær skotheld, hún
rennur í gegn án þess að missa
nokkurn tímann dampinn og tónlist-
in stelst aldrei í meðalmennskuna.
Án efa ein af athyglisverðari sveit-
um Breta þessa daganna. Og án efa
ein af plötum ársins.
Birgir Örn Steinarsson
Erfingjar mod-rokksins komnir á aldur
KAISER CHIEFS: EMPLOYMENT
NIÐURSTAÐA: FRUMRAUN KAISER CHIEFS
ER STÓRKOSTLEG FRUMRAUN. METNAÐ-
ARFULL OG SKOTHELD ROKK-POPPPLATA
SEM FLESTIR ÆTTU AÐ GRÍPA VIÐ FYRSTU
HLUSTUN. LOKSINS FÁUM VIÐ AFTUR
NÝTT, FERSKT OG VERULEGA ATHYGLIS-
VERT ROKK FRÁ BRETLANDI.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Sýnd kl. 6 í 3vídd
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 3.40 og 5.50 í 3vídd Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6 í 3vídd
Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.30 B.i. 10 ára
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd í Borgarbíói kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 10 ára Sýnd í Smárabíói kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8, 9, 10.20 og 11.20Sýnd í Lúxussal kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Sýnd í Regnboganum kl. 6, 8.30 og 10.50 B.i. 10 ára Sýnd í Laugarásbíó kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15(POWER) B.i. 10 ára
Sýnd í Borgarbíói kl. 8 og 10.20 Sýnd í Regnboganum kl. 6, 8.30 og 11 Sýnd í Laugarásbíó kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15Sýnd í Smárabíói kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.30
Fór beint á toppinn í USA
Þriðja stærst opnun ársins í USA
KOMIN Í BÍÓ
OFURHETJURNAR
ERU MÆTTAR Í EINNI
STÆRSTU MYND
ÁRSINS
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
★★★
-KVIKMYNDIR.com
REGLA #27:
EKKI DREKKA YFIR ÞIG,
TÓLIN VERÐA AÐ VIRKA
REGLA #10:
BOÐSKORT ERU FYRIR
AUMINGJA!
REGLA #26:
VERTU VISS UM AÐ
HÚN SÉ Á LAUSU.
REGLA #18:
ÓKEYPIS DRYKKIR,
HVÍ EKKI?
XY félagar fá miðann á aðeins 600 kr !!
Allir sem kaupa miða á
myndina dagana 10.-15.
ágúst fá fría mánaðaráskrift
á tónlist.is TONLIST.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
★★★
-SK. DV
★★★
-ÓHT. Rás 2
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
★★★
-S.V. Mbl.
★★★
„EKTA STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
Sýnd í Laugarásbíó
kl. 4 og 6 í 3vídd
Sýnd í Laugarásbíó
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14 ára
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
- FGG, FBL
POWERSÝNING Í LAUGARÁSBÍÓI KL.10.15 Á STÆRSTA THX TJALDI LANDSINS
LESTU
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
Á MYNDINA!
ALLIR SEM KAUPA MIÐA Á
MYNDINA 10.-15. ÁGÚST FÁ
FRÍA MÁNAÐARÁSKRIFT Á TÓNLIST.IS!
XY FÉLAGAR
FÁ MIÐANN
Á AÐEINS 600 KR!
EIN STÆRSTA MYND ÁRSINS!
KOMIN Í BÍÓ!
TONLIST.IS
Það er engu logið upp á hljóm-
sveitina Trabant þegar fullyrt
er að hún sé með betri tónleika-
hljómsveitum landsins, ef ekki
sú besta. „Bestir á balli“ eins og
FM 957 kallar það víst. Enda
ekki margar hljómsveitir sem
bjóða upp á aðra eins skemmtun
og stuð eins og Trabant á sínum
tónleikum.
Þetta varð líka raunin í Kaup-
mannahöfn á laugardaginn þeg-
ar Trabant-liðar spiluðu á tón-
leikastaðnum Rust. Salurinn var
fullur af Íslendingum sem voru
greinilega komnir til að
skemmta sér og því mikil
stemning þegar hljómsveitin
steig á svið. Síðan tók við nokk-
uð hefðbundin tónleikadagskrá
Trabants. Boðið var upp á hell-
ing af glimmeri, kampavíni og
nekt með músíkinni og þetta
kunni fólk að meta. Því var heitt
í kolunum þegar tónleikunum
lauk með dúndrandi lófataki
kátra gesta.
Tónleikarnir voru liður í að
til kynna Iceland Airwaves-há-
tíðina fyrir Dönum og voru
plötusnúðarnir Margeir og Árni
með í för. Þessu framtaki var
vel tekið af Íslendingum en
kannski hefðu fleiri Danir mátt
mæta. Þess má geta að nýlega
fékk Emotional, plata Trabants,
fjórar stjörnur af sex í tónlistar-
tímaritinu Gaffa. ■
Trabant
tryllir
LJ
Ó
SM
YN
D
/K
R
IS
TJ
ÁN
S
IG
U
R
JÓ
N
SS
O
N