Fréttablaðið - 12.08.2005, Qupperneq 54
42 12. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Stór og fallegur humar
Saltfiskhnakkar,
fyrir vandláta fólkið.
Túnfisksteikur beint á grillið.
Risarækjurnar eru komnar aftur.
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá neinum að Clint
Eastwood er kominn til landsins.
Hann verður hér í tæpan mánuð
til þess að taka upp árásina á Iwo
Jima fyrir myndina Flags of our
Fathers. Sandvíkinni á Reykja-
nesi verður breytt í Japan og nú í
morgun réðst bandaríski herinn
þar inn undir styrkri stjórn kvik-
myndatökuliðs Eastwoods.
Það þarf að fóðra liðið. Clint
lætur ekki bjóða sér og samstarfs-
fólki sínu hvað sem er. Hann er
fagmaður fram í fingurgómana,
stundvís með eindæmum. Hann
fékk besta mötuneytið í Holly-
wood með sér til landsins , Tony’s
Food Service. Sá er enginn við-
vaningur á þessu sviði. Sá um
matinn í myndum á borð við Myst-
ic River, Unbreakable og Charlie’s
Angels. Strákarnir okkar eru því
ekkert að borða neitt ruslfæði.
Sama mat og Bruce Willis, Camer-
on Diaz og Sean Penn fengu að
borða.
Það kemst enginn hjá því að
rata á tökustaðinn. Á leiðinni til
Hafnar eru gul merki sem vísa
þátttakendum leiðina. Í Höfn var
verið að vinna við eitthvað af leik-
mununum. „Þessi á að ferja ein-
hverja leikarana,“ sagði öryggis-
vörður þegar hann vísaði mér af
svæðinu. Hann var með myndavél
frá tökustaðnum og sagði hana
virði milljón dollara. „Þú vildir ör-
ugglega komast í þessar,“ sagði
hann stoltur og glotti. Annar ör-
yggisvörður og kafari að nafni
Jim komu að. Kafarinn gaf sér
smá tíma til að spjalla.“Verður
mynd af mér í blaðinu á morg-
un?,“ spurði hann. Jim sá um öll
neðansjávaratriði auk þess sem
hann gætti öryggis leikarana í
sjónum. Hann vildi engar frekari
upplýsingar gefa.
Um 600 staðgenglar hafa eytt
nokkrum dögum í æfingar og
mátanir. Einhverjir fá að vera
mjög nærri aðalleikurunum og
kemur andlit þeirra því fyrir
augu milljóna. Aðrir verða
drepnir á fyrstu sekúndunni.
Þeir geta huggað sig við góðan
mat og nærveru Clints.
Miðvikudagskvöldið hafði
víst verið ansi skrautlegt. Teiti á
Kjarvalsstöðum og svo beint á
Óliver. Íslensku stúlkurnar slef-
uðu yfir þekktu bandarísku
kvikmyndaleikurunum. „Þær
voru eins og mý á mykjuskán,“
sagði einn sjónarvottur. Laugar-
dagskvöldin gætu reynst þeim
happadrjúg því allir eiga frí á
sunnudögum. Líka kvikmynda-
stjörnur.
freyrgigja@frettabladid.is
FLAGS OF OUR FATHERS: TÖKUR HEFJAST Í DAG
Ekkert ruslfæði fyrir stjörnurnar
...fær leikhópurinn Á senunni
fyrir vandaðan og metnaðarfull-
an Kabarett.
HRÓSIÐ
KAFARINN JIM Jim sér um að allir leikarar komist örugglega á þurrt land. Vildi ekki segja neitt meira um málið
TÖKUSTAÐURINN ÚR FJARSKA. Ekki var hægt að komast neitt nær fyrir ákveðnum en
kurteisum öryggisvörðum.
EKKI HÆGT AÐ VILLAST Vegvísar fyrir
leikara og aðstandendur Flags of our
Fathers-myndarinar eru út um allt. Það er
ekki hægt að fara á mis við tökustaðinn.
Það hefur eflaust hent marga að hætta í sam-
bandi og finna ekki fyrir neinni afgerandi dep-
urð eða þunglyndi. Þá á það líka til að gerast i
framhaldinu að manneskjan fer að hitta ein-
hvern annan. Sumum finnst það óviðeigandi
og illa gert gagnvart fyrrverandi og aðrir segja:
góóóð og gefa hæ fæv!
Má fljótlega fara að hitta nýtt fólk og jafnvel í
samband? Það er vísbending um að manni hafi
verið alveg sama og sé kominn yfir manneskj-
una eða er vísbending um að manni finnist
maður engan tíma mega missa og vilji njóta
hins stutta lífs sem manni er fengið?
Ég held að það sé klárt mál að manni er ekki
sama um þann sem verið var að yfirgefa þrátt
fyrir að geta hugsað sér að hitta annað fólk.
Hins vegar er það frekar köld gusa í andlitið að
upplifa það sjálfur að manns fyrrverandi finnst
hann tilbúinn til að sjá nýtt andlit á morgnana
og að fortíðin sem maður átti saman sé vatn
undir brúnni.
Þegar maður er farinn að hitta annan, stuttu
eftir að fyrra samband kláraðist, og nýju málin
jafnvel orðin alvarleg, þá fer maður að spyrja
sig krítísku spurningarinnar: er þetta bara „frá-
hvarfafling“? Ósjálfrátt spyr maður sig hvort
maður sé í raun og veru þannig gerður að
maður geti borið alvöru tilfinningar svona
stuttu síðar. Þá efast maður um heilindi sín og
sér þann möguleika í sjóndeildarhringnum að
kannski sé maður að plata sjálfan sig og fleiri.
Þetta getur nefnilega komið illa niður á hinum
leikmanninum! Ég er ansi viss um að ég tali
réttu máli þegar ég segi að mörg sambönd
sem byrja fljótlega eftir að annar aðilinn hættir
í öðru séu stormasöm og uppfull af afbrýði-
semi og endi svo snögglega eftir stuttan líftíma.
Hins vegar er aldrei hægt að staðhæfa svona
hluti og auðvitað eru fjölmörg sambönd sem
hafa byrjað stuttu síðar eða jafnvel áður en
endar hafa verið bundnir og síðan lifað
góðu og heilbrigðu lífi.
Getur verið að það sé fullkomin
sjálfselska að stökkva beint á deit
meðan rúmið er enn þá heitt eða
er lífið of stutt til að neita sér um
að hafa gaman af því að vera
til?
Ég verð að viðurkenna að
það eru margar spurningar að
spyrja sig hvað þetta varðar og
er sjálf eitt stórt spurningarmerki.
Það má þó ekki gleyma því að hver
er sinnar gæfu smiður og því segi
ég gangi ykkur vel!
REYKJAVÍKURNÆTUR
HARPA PÉTURSDÓTTIR VILL BERA SIG EFTIR BJÖRGINNI
Hver er sinnar gæfu smi›ur
Það var rjómablíða í Kulusuk þeg-
ar föruneyti Hróksins lenti þar á
miðvikudag en ætlunin var að
sigla þaðan með bát til Tasiilaq
þar sem Hrókurinn heldur skák-
veislu annað árið í röð. Þrátt fyrir
glampandi sól og lygnan sjó
reyndist siglingaleiðin þó ófær
vegna ísa þannig að þyrluferð
varð ofan á. Ég var alveg búinn að
gíra mig upp fyrir siglingu ekki
síst þar sem hópurinn sem fór á
undan okkur fékk að sigla með
Sigurði Ísmanni sem Reynir
Traustason hefur gert ódauðleg-
an; fyrst í bók sinni Seiður Græn-
lands og ekki síður í fréttum sín-
um af því þegar Ísmaðurinn ógur-
legi fangaði hákarl og drap með
berum höndum. Það þótti heims-
frétt. Það er hins vegar eitthvað
svo geggjað við að fljúga með
þyrlu þannig að ég grét það þurr-
um tárum að fá ekki að sigla á
milli ísjaka og horfast í augu við
seli í sínu náttúrulega umhverfi.
Ísmaðurinn tók svo á móti okkur á
þyrluflugvellinum í Tasiilaq, víg-
reifur að vanda, nýkominn úr æv-
intýralegri veiðiferð sem ætti
fullt erindi á Sky og CNN.
Ísmaðurinn fór, eins og svo oft
áður, einn í þessa veiðiferð en
þegar hann hafði fellt tvo birni
missti hann skrúfuna undan bátn-
um og var strandaglópur í átta
daga. Hann hafðist við á ísjaka og
át kjötið af skepnunum sem hann
hafði drepið. Hann gerði þó lítið
úr þessum hrakningum enda er ís-
bjarnakjöt víst herramannsmatur
þó það væri orðið „helvíti þreyt-
andi áttunda daginn í röð“. Siggi
Ísmaður býr í Kuummiit sem er
vægast sagt afskekkt pláss þar
sem hvorki er rennandi vatn né
rafmagn og fólk gengur örna
sinna í fötur. Fjórir Hróksmenn
þáðu heimboð Ísmannsins sem
sigldi með þá áleiðis til Kuummiit
um leið og það mynduðust glufur í
íshrönglinu. Það er með ólíkind-
um að magnaðasti maðurinn á
Grænlandi skuli vera Íslendingur.
Þetta er annað árið í röð sem ég
geri mér upp forföll til þess að
komast hjá heimsókn til Kuu-
mmiit. Þetta er auðvitað lygilegur
roluskapur og ég veit að ég er að
flýja undan ævintýri en ég treysti
mér ekki enn til að fara fjær vest-
rænni siðmenningu en til Tasiilag.
Þar er þó í það minnsta kaupfélag
þar sem hægt er að kaupa egg,
beikon og haglabyssur. ■
REISUBÓKARBROT
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ER Á SKÁKHÁTÍÐ HRÓKSINS Á GRÆNLANDI.
Ísbjarnakjöt í átta daga
Lárétt: 1 stórborg, 6 á húsi, 7 grastotti, 8
jökull, 9 hvíldi, 10 eldsneyti áður fyrr, 12
rödd, 14 matur, 15 ekki, 16 tímabil, 17
hræðslu, 18 mæla.
Lóðrétt: 1 ánægjuvottur, 2 trjátegund, 3 í
röð, 4 nákvæm, 5 veiðarfæri, 9 eyða, 11
nakta, 13 ættgöfgi, 14 glöð, 17 öfugur tví-
hljóði.
Lausn.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Lárétt:1berlín,6ris,7tó,8ok,9sat,10
mór, 12alt,14ket,15ei,16ár, 17ugg,
18tala.
Lóðrétt:1bros,2eik,3rs,4ítarleg,5nót,
9sóa,11bera,13tign,14kát,17ua.
KVÖLDÞÁTTURINN
ALLA VIRKA DAGA
FYLGSTU MEÐ!