Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 1
ATVINNUMÁL Hlutfall erlendra starfsmanna á vinnumarkaði á Ís- landi er með því hæsta á Norður- löndunum. Aðeins í Svíþjóð er hlut- fallið hærra og er munurinn óveru- legur. Á Íslandi er erlent vinnuafl 4,5 prósent vinnumarkaðarins en í Svíþjóð mælist það 4,6 prósent. Í Danmörku, þar sem umræðan um útlendinga hefur verið hvað mest áberandi, er hlutfall erlendra ríkisborgara á vinnumarkaðinum þrjú prósent. Hlutfallið er lægst í Finnlandi, þar sem 1,4 prósent vinnuafls eru erlendir ríkisborg- arar. Tvöfalt fleiri erlendir ríkis- borgarar eru búsettir á Íslandi nú en fyrir áratug og hefur þeim fjölgað úr 4.800 í um ellefu þúsund. Af þeim eru um sjö þúsund á vinnumarkaðinum. Að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, má telja víst að alls vanti starfsfólk í um þrjú þúsund störf á Íslandi. Sökum takmarkana í veitingu atvinnuleyfa verður ekki fyllt í þau störf með útlenskum starfs- mönnum. Þrátt fyrir skort á vinnuafli verður atvinnuleyfum ekki fjölgað umfram það sem þegar hefur verið veitt. „Við verðum líka að vera undir það búin að geta tekið bakslagið. Það vantar stórlega fólk til skamms tíma en hið opinbera getur ekki látið stýrast af því heldur þarf að hugsa fram í tímann,“ segir Gissur. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, telur að manna eigi þau störf sem ekki tekst að ráða íslenskt starfsfólk í, með inn- flutningi vinnuafls. „Það er að mörgu leyti lausn fyrir Ísland þegar koma tímabil með miklum hagvexti og mikilli þenslu líkt og núna,“ segir hann. - sda Sjá síður 30-31 Rísandi stjörnur á Kvikmyndahátí› HRÖNN MARINÓSDÓTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 VÍÐAST BJARTVIÐRI þegar líður á morguninn. Gæti þykknað upp sunnan til síðdegis. Hiti yfirleitt 8-13 stig að deginum. VEÐUR 4 LAUGARDAGUR 17. september 2005 - 250. tölublað – 5. árgangur Íslendingur 111 á Freeport Kristín Snæfells man þá tíð þegar Freeport var lausnarorð drykkjusjúkra Íslendinga sem leit- uðu lausnar meina sinna á Long Is- land í New York. VIÐTAL 32-33 Víkingar fóru upp um deild Víkingar tryggðu sér sæti í Lands- bankadeild karla næsta sumar með því að vinna 2–0 sigur á Völsungi en tapið kostaði Húsvíkinga fall í 2. deild. Blikar urðu líka fyrstir til þess að fara taplausir í gegnum tíu liða 1. deild. ÍÞRÓTTIR 38 Dugnaður og áreiðanleiki Ólafur Jóhannesson hefur gert FH-inga að Íslandsmeist- urum í fótbolta tvö ár í röð en þetta eru fyrstu fótbolta- titlarnir í sögu fé- lagsins. Flestum ber saman um að sam- takamátturinn sem einkennt hefur knattspyrnustarfið hjá FH sé ekki síst Ólafi að þakka. MAÐUR VIKUNNAR 16 Sér fjölskyldubílnum fyrir gó›u ævikvöldi JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON Í MIÐJU BLAÐSINS • BÍLAR • FERÐIR ▲ FÓLK ▲ PAWEL PAWLIKOWSKI Í DÓMNEFND 54 VEÐRIÐ Í DAG Ískaldur Léttur öllari ROYAL Nýr konunglegur! Grænar tölur í Kauphöll: Vi›snúningur á marka›i VIÐSKIPTI Eftir samfellda fjög- urra daga lækkun á hlutabréfa- markaði snerist dæmið við í gær þegar Úrvalsvísitalan hækkaði skarpt, um tæp tvö prósent. Gengi þrettán félaga í vísitöl- unni hækkaði, eitt stóð í stað og aðeins eitt lækkaði. Sérfræðingar á markaði segja að fjárfestar hafi haldið ró sinni vegna þeirra lækkana sem áttu sér stað fyrr í vikunni og því hafi margir séð sér leik á borði og keypt hlutabréf í fyrir- tækjum sem höfðu lækkað hvað mest. Almennt séð er útlitið bjart hjá félögum í Kauphöllinni og stefnir í góð uppgjör á næstu vikum og mánuðum. Mest hækkuðu hlutabréf í Atorku Group, um 5,5 prósent, og í Landsbankanum, um 3,8 prósent. - eþa Svíar einir me› fleiri erlenda starfsmenn Tuttugasti hver starfsma›ur á Íslandi er útlendingur og er hlutfalli› fla› næst- hæsta á Nor›urlöndunum. Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi eru tvöfalt fleiri nú en fyrir áratug. Fólk vantar í flrjú flúsund störf hérlendis. ERLENT VINNUAFL Á NORÐURLÖNDUNUM Land Alls Hlutfall Ísland 155 þús. 4,5% Noregur 2.354 þús. 3,4% Danmörk 2.822 þús 3,0% Svíþjóð 4.498 þús 4,6% Finnland 2.669 þús 1,4% NIÐURSTÖÐUR LAUNAKÖNNUNAR VR KYNNTAR Gísli Marteinn Baldursson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa brugðið sér í gervi hins kynsins í auglýsingaherferð gegn launamisrétti. Í pallborðsumræðum við kynningu á niðurstöðunum kom fram að allir ættu þátt í því að konur væru launalægri, ekki aðeins atvinnurekendur. LAUNAKÖNNUN Laun hækkuðu um tíu prósent en launamunur kynjanna minnkaði ekki marktækt á milli ára í launakönnun Verslunarmanna- félags Reykjavíkur. Kynbundinn launamunur er fjórtán prósent en var fimmtán prósent í fyrra. Könn- unin var kynnt í gær. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir launamun kynjanna hafa staðið í stað í þrjú ár. Munurinn sé vonbrigði: „Félagið hefur hafið aug- lýsingaherferð til að vekja atvinnu- rekendur til umhugsunar og til að fá konur til að standa betur á sínu gagnvart þeim.“ Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, var spurð að því hvað þyrfti til að jafna launin: „Ég vildi að ég hefði töfralausnina. Kynbundinn launa- munur er mannanna verk. Það þarf vilja til að breyta.“ Kannanir VR sýni að viljann vanti. Í niðurstöðum könnunnarinnar má sjá að félagsmenn VR hafa að meðaltali 300 þúsund í heildarlaun á mánuði en grunnlaunin eru 273 þús- und. Alls sendu rúmlega 8.300 manns inn svarseðil til VR, helmingur þeirra sem fengu könnunina í hend- ur. - gag FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Konur innan VR með fjórtán prósentum lægri laun en karlar: Launamunur er mannanna verk GEORGE W. BUSH Ávarpaði bandarísku þjóðina frá New Orleans í fyrrakvöld og lofaði fé til uppbyggingar á flóðasvæðinu. Endurreisn New Orleans: 40 flúsund á hvern HAMFARIR George Bush Banda- ríkjaforseti hefur lofað opin- beru fé til uppbyggingar í New Orleans og víðar eftir skemmd- irnar í kjölfar flóðanna og felli- byljarins Katrínar. Talið er að uppbyggingin kosti um 200 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um tólf þúsund millj- örðum íslenskra króna. Það eru um 40 þúsund krónur á hvert mannsbarn í Bandaríkj- unum. Samsvarandi upphæð á Íslandi yrði því um 11,6 millj- arðar íslenskra króna. - sda Tónfælin tík: Sigur Rós hrellir hund TÓNLIST Hljómsveitin Sigur Rós á sér marga aðdáendur en þó eru þeir til sem þola tónlist hennar illa. Ein þeirra er Týra, sem er níu mánaða hvolpur á Ytra-Ósi í Hólmavíkur- hreppi, en hún tryllist þegar hún heyrir lög sveitarinnar. „Hún ýlfrar, gólar og setur upp kamb,“ útskýrir Drífa Hrólfsdóttir, bóndi á Ytra-Ósi. Týra hefur haft það nokkuð slæmt þessa vikuna þar sem plata sveitarinnar er plata vikunnar á Rás 2 og því hefur hún mikið þurft að þjást undir tónum sveitarinnar. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.