Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 8
1Hve gamalt varð nautið Guttormur?
2Hve mörgum sjúklingum er þýskurhjúkrunarfræðingur talinn hafa banað?
3Hver fer fyrir flokki kristilegrademókrata í Þýskalandi?
SVÖRIN ERU Á BLS. 54
VEISTU SVARIÐ?
8
Ábúendur á Víkingavatni í Kelduhverfi:
Ala fálka í fjárhúsinu
FUGLALÍF Aðalsteinn Örn Snæ-
þórsson á Víkingavatni í Keldu-
hverfi hefur undanfarnar vikur
haft fálkaunga í fóstri en fuglinn
fannst í landi Hafrafellstungu-
bænda í Öxarfirði í lok ágúst.
„Þetta er ungur karlfugl og hann
var orðinn mjög rýr og lítt fleyg-
ur þegar hann fannst. Ég kom
honum fyrir í fjárhúsinu á Vík-
ingavatni og þar hefur hann
braggast vel og flýgur nú um
húsið,“ segir Aðalsteinn.
Alla jafna er sjúkum og
ófleygum fálkum komið til Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands og
segir Ólafur Karl Nielsen, vist-
fræðingur hjá stofnuninni, að
fimm til fimmtán fálkar berist
þangað á hverju hausti. Ef sýnt
þykir að hægt sé að bjarga þeim
er fálkunum komið fyrir í Hús-
dýragarðinum í Reykjavík þar
sem þeir fá fyrsta flokks að-
hlynningu og læknisþjónustu
sem fyrirtækið Fálkinn greiðir
fyrir.
Aðalsteini og Ólafi kom hins
vegar saman um að vænlegra
væri að fóðra fálkann og fita fyr-
ir norðan í stað þess að flytja
hann langan veg, jafn illa og
hann var á sig kominn.
- kk
SAMGÖNGUR Ákveðið hefur verið að
fresta gildistöku nýs vaktakerfis
strætisvagnabílstjóra, að sögn
Harðar Gíslasonar staðgengils
framkvæmdastjóra Strætó bs. Til
stóð að það tæki gildi 15. október
en því hefur nú verið frestað til
áramóta.
„Þetta kerfi er unnið í góðri
samvinnu við Starfsmannafélag
Reykjavíkur og fulltrúa bílstjór-
anna,“ segir Hörður. „Hinir síðar-
nefndu hafa óskað eftir því að fá
frekari umþóttunartíma áður en
nýtt vaktakerfi tekur gildi og á það
hefur verið fallist.“
Hörður segir nýja kerfið fjöl-
breytilegt og bjóði upp á ýmsa val-
kosti. Starfsmenn vilji skoða þá
áður en lengra er haldið.
„Þetta mál er í góðum og eðli-
legum farvegi,“ segir Hörður.
„Frestun gildistöku nýja vakta-
kerfisins hefur engin áhrif á aðrar
breytingar sem stjórn Stræó bs.
samþykkti að gera á nýja leiðakerf-
inu, svo sem lengingu þjónustu-
tíma á tilteknum leiðum.“ -jss
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Við leggj-
umst ekkert gegn okkar eigin
sameiningartillögu. Það er nefnd
á vegum félagsmálaráðuneytisins
sem skikkar okkur til þess að fara
út í kosningar 8. október,“ segir
Reynir Sveinsson bæjarstjóri í
Sandgerði.
Reynir er ekki sáttur við um-
mæli Árna Sigfússonar, bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ, en í Frétta-
blaðinu í gær sagði Árni að and-
staða sveitarstjórnarmanna í
Garði og Sandgerði við samein-
ingu færi gegn niðurstöðum nýrr-
ar skýrslu sem unnin var á vegum
sveitarfélaganna þriggja.
„Ég er formaður nefndar sem
farið hefur yfir kosti og galla
sameiningar og hún fékk hlut-
lausa sérfræðinga til að gera út-
tekt. Það var löngu vitað að við í
sveitarstjórninni værum á móti
sameiningunni,“ segir Reynir.
Umrædd skýrsla er unnin af
ráðgjafarfyrirtækinu Par X og
var sett inn á vefsíðu sveitar-
félaganna þriggja fyrir fáeinum
dögum. „Eftir að hafa skoðað
skýrsluna var það sameiginlegt álit
allra bæjarfulltrúanna að samein-
ing væri ótímabær. Það er ekkert í
skýrslunni sem mælir sérstaklega
með sameiningu. Árni Sigfússon
túlkar skýrsluna sér í hag,“ segir
Reynir.
Í skýrslunni er farið yfir fjölda
þátta í rekstri sveitarfélaganna;
meðal annars er fjallað um yfir-
stjórn, félagsmál og samgöngur.
Rakið er að sveitarstjórnarmönn-
um fækkar úr 25 í 11 við samein-
ingu og nefndarmönnum fækkar
einnig.
Með sameiningu er ljóst að
framlög úr jöfnunarsjóði sveitar-
félaga verða nálægt eitt hundrað
milljónum króna lægri en þau eru
nú samanlögð nú til þriggja sveit-
arfélaga.
Starfsmenn sveitarfélaganna
eru 685 og er ekki gert ráð fyrir
að þeim fækki að marki þótt
fækkun verði í yfirstjórn.
Skýrslan ber með sér að aukin
hagkvæmni ætti að nást með sam-
einingu varðandi þætti eins og
samgöngumál, starfsmannamál,
félagsmál og skipulagsmál, en
Suðurnes eru nú þegar eitt at-
vinnusvæði. johannh@frettabladid.is
17. september 2005 LAUGARDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
9
0
1
– SMÁAUGLÝSINGAR SEM ALLIR SJÁ
- stærsta bílasala landsins?
Fréttablaðið
Á HVERJUM DEGI FÆRÐ ÞÚ EINA AF STÆRSTU
BÍLASÖLUM LANDSINS INN UM BRÉFALÚGUNA ÞÍNA!
SPARAÐU TÍMA OG FYRIRHÖFN MEÐ ÞVÍ AÐ FINNA BESTA
BÍLINN Á MEÐAN ÞÚ SVOLGRAR Í ÞIG MORGUNKAFFIÐ. LEIÐAKERFI STRÆTÓ Frestun gildistöku nýja vaktakerfisins hefur engin áhrif á aðrar breyt-
ingar sem stjórnin samþykkti að gera á nýja leiðakerfinu.
LEIÐRÉTTING
Vegna umfjöllunar um verð á
leikhúsmiða í Þjóðleikhús og
Borgarleikhús skal tekið fram að
miðaverð á barnasýningar í
Borgarleikhúsinu er 2.350 kr.
Ölvunarakstur í Sauðholti:
Missir
ökuleyfi›
DÓMSMÁL Í Héraðsdómi Suður-
lands var maður nýverið sak-
felldur fyrir ölvunarakstur.
Maðurinn neitaði staðfastlega
sök og kvaðst ekki hafa neytt
áfengis fyrir akstur. Sér hafi
verið heitt í hamsi eftir akstur-
inn og hann því fengið sér
Gammeldansk og Jägermeister.
Hjörtur Aðalsteinsson héraðs-
dómari komst að þeirri niður-
stöðu að hann skyldi greiða
60.000 krónur í sekt auk um
250.000 króna í sakar- og máls-
kostnað. Hann missir einnig öku-
réttindi í sex mánuði.
-saj
AÐALSTEINN OG SYNIR Fálkinn situr á
spýtu uppi undir þaki að baki þeim feðg-
um en þegar hann hefur öðlast nægilegan
styrk er ætlunin að gefa honum frelsi á ný.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN
Neydd til a› samflykkja
Reynir Sveinsson bæjarstjóri í Sandger›i segir a› andsta›a bæjarstjórnar hafi legi› fyrir og véfengir a› í
n‡rri sk‡rslu um kosti og galla sameiningar vi› Reykjanesbæ og Gar› sé eindregi› mælt me› sameiningu.
REYNIR SVEINSSON BÆJARSTJÓRI Í SAND-
GERÐI „Það er nefnd á vegum félagsmála-
ráðuneytisins sem skikkar okkur til þess að
fara út í kosningar 8. október.“
SUÐURNES Þótt gert sé ráð fyrir aukinni
hagkvæmni á mörgum sviðum er ekki tek-
in afdráttarlaus afstaða með sameiningu
sveitarfélaga á Suðurnesjum í nýrri skýrslu.
SANDGERÐISHÖFN Bæjarfulltrúar í Sandgerði telja sameiningu við Garð og Reykjanesbæ
ótímabæra.
Vagnstjórar Strætó vilja lengri aðlögun:
N‡ju vaktakerfi fresta›
Verksmiðjuturn Kísiliðjunnar:
Turninn felld-
ur í heilu lagi
NIÐURRIF Starfsmenn Hringrásar
hafa undanfarnar tvær vikur unn-
ið að því að rífa verksmiðju Kísil-
iðjunnar við Mývatn. Hús og vélar
eru úr járni og stáli, samtals um
2.500 tonn að þyngd, og verður
allt nýtanlegt efni flutt í bútum til
Húsavíkur þar sem það fer í skip
og að lokum til endurvinnslu á
Spáni.
Síðastliðinn miðvikudag var
turn verksmiðjunnar felldur í
heilu lagi en hann var 120
fermetrar að grunnfleti og viðlíka
hár og átta hæða fjölbýlishús. - kk
TURNINN FELLDUR Undirstöður turnsins
voru fyrst klipptar og skornar í sundur en
að því loknu ýtti ljónhugaður gröfumaður
við einni undirstöðunni og turninn féll
tígulega til jarðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN