Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 62
> haustsinfónía...
Hönnuðurinn Marc Jacobs
leggur áherslu á fjólubláa lit-
inn í hönnun sinni fyrir
haustið 2005. Hann blandar
saman
nokkrum
tónum og
útkoman
verður stór-
skemmti-
leg.
Spáir þú mikið í tískuna? Já, ég verð að
gera það vegna vinnunnar.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Vala
og Björg í Spaksmannsspjörum. Uppá-
haldsbúðin mín er svo Urban Outfitters.
Mér finnst hún alveg geðveik.
Flottustu litirnir? Grænn og brúnn. Það er
það nýjasta hjá mér núna.
Hverju ertu veikust fyrir? Skóm. Ég er
næstum farin að fela hvað ég á mikið af
skóm, læt vinkonur mínar geyma nokkur
pör og svona!
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég
keypti mér brúna Converse-skó sem ég er
alveg í skýjunum yfir. Ég sef nánast í þeim.
Hvað finnst þér flottast í tískunni núna?
Það er allt svo casual núna. Það má vera í
rifnum gallabuxum og pallíettubol og allt
þar á milli. Ég elska pallíettur.
Hvað ætlar þú að kaupa fyrir veturinn?
Djúsí peysu, einhverja brúna hlýja í stíl við
brúnu Converse-skóna mína.
Uppáhaldsverslun? Úti er það Urban Out-
fitters. En á Íslandi eru það Spútnik og
Spaksmannsspjarir.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á
mánuði? Eins gott að pabbi lesi þetta ekki.
Það getur verið voðalega misjafnt en yfir-
leitt er lágmarkið um tíu þúsund krónur. Ég
eyði aldrei neinum himinháum upphæð-
um.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ull-
arhúfunnar minnar og kragans sem ég
keypti mér í Spaksmannsspjörum. Ég not-
aði það í allt sumar og á líka eftir að nota
þetta í allan vetur.
Uppáhaldsflík? Það eru nýju brúnu Con-
verse-skórnir mínir sem ég var að kaupa
mér.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð? Til London. Ég er einmitt að
fara þangað eftir þrjár vikur. Þar er
nóg af fötum. Er einmitt að hugsa
um að taka með mér einhvern
kall til að bera fyrir mig pokana.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt
þér?
Það eru græn-köflóttar buxur
sem ég keypti mér í tíunda bekk.
Þær þóttu mjög flottar á sínum
tíma en mér finnst þær alveg
hryllilegar núna. Ég geymi þær
inni í skáp til að minna mig á þetta
hræðilega tímabil.
RÚLLUKRAGABOLUR
Sætur röndóttur bolur úr Zöru.
PILS Þetta prjónapils
fæst í Vero Moda og
passar einkar vel við
svartan rúllukragabol og
há stígvél.
RÖNDÓTTUR BOLUR Svartur
og hvítur þverröndóttur bolur
er algjörlega nauðsynlegur í
bítnikkastílnum. Fæst í Topshop.
STÍGVÉL Al-
gjört möst í
bítnikkastílnum
eru há stígvél í
svörtum eða
dökkum lit.
Þessi fást í
Bossanova.
Bítnikkastíllinn hefur haft gríð-arlega mikil áhrif á tísku nú-tímans þrátt fyrir að fæstir viti
hvað „bítnikki“ er. Bítnikkar voru
töffararnir sem voru uppi seint á
sjötta áratugnum og snemma á þeim
sjöunda. Þeir gáfu sig út fyrir að af-
neita efnishyggju, hegðunarreglum
og gildismati samfélagsins. Þótt efn-
ishyggjunni væri afneitað var þetta
fólk skrambi töff í klæðaburði.
Bítnikkalúkkið einkenndist af flötum
skóm – helst háum stígvélum, alpa-
húfum, þröngum svörtum gallabux-
um sem aldeilis eru heitar í dag,
dökkum jökkum, svörtum og hvítum
þverröndóttum flíkum, breiðum belt-
um, síðum og stórum peysum og
svörtum sokkabuxum. Reyndar var
svarti liturinn allsráðandi í klæðnað-
inum. Þessi föt voru svo sannarlega
ekki frá einhverjum dýrum hönnuð-
um. Bítnikka-kúltúrinn kom upphaf-
lega frá hópi rithöfunda og lista-
manna sem hlustuðu á djasstónlist
eða Woody Guthrie og Pete Seeger.
Slangrið samanstóð af orðum eins og
„hip“, „cool“, og „groovy“. John Galli-
ano setti bítnikkatískuna af stað aft-
ur þegar hann kynnti sumarlínuna
sína fyrir 2005. Línuna hannaði hann
með bítnikkastelpuna og vinkonu
Andy Warhols, Edie Sedgwick, í
huga en hún er nú orðin þekkt tísku-
fyrirmynd. Eitt af því góða við
þennan stíl er að í
honum leynast alls
konar afar klæðileg-
ar flíkur. Röndóttar
peysur ganga við
hvað sem er, sem og
þröngar svartar
gallabuxur, há
stígvél og alpa-
húfur. Alls ekki
er nauðsynlegt að
nota þetta allt
saman. Meðal
þeirra sem sjást
oft í fötum í bítnikkastíl eru til
dæmis leikkonan Kirsten
Dunst, fyrirsætan Erin
O’Connor og Tara Subkoff
sem hannar fyrir Imitation
of Christ.
hilda@frettabladid.is
SMEKKURINN STEINUNN ÓSK BRYNJARSDÓTTIR KLIPPARI HJÁ MOJO/MONROE
Ég elska pallíettur
46 17. september 2005 LAUGARDAGUR
Blessa›ir bítnikkarnir
PRJÓNA-
PEYSA Þessi
peysa er úr
Vero Moda og
fer einkar vel
með breiðu
belti.
KIRSTEN DUNST Hún
er ein af tískufyrirmynd-
um okkar tíma og þekkt
fyrir skemmtilegan stíl. Hér
er hún í svörtum rúllu-
kragabol og gamaldags kjól,
alveg í anda bítnikkanna.
STUTTBUXUR Á tímum
bítnikkanna var stutt svart pils
óskaplega töff en á okkar tím-
um eru stuttbuxurnar mun
heitari og ganga alveg jafn vel
við há stígvél og svartar sokka-
buxur. Fást í Topshop.
HÚFAN
ÓMISSANDI
Úr nýjustu línu
Marc by Marc
Jacobs. Lykilat-
riði í stílnum og
röndótt peysa um
mittið fer vel við
þröngar leggings.
CHRISTIAN
DIOR Í sumarlínunni
fyrir 2005 sýndi
John Galliano
fyrstur áhrif frá
bítnikkunum
í sinni
hönnun.
ERIN
O’CONNOR Ís-
landsvinkonan
er ekki þekkt
fyrir annað en
frumlegan stíl.
Hér er hún í
bítnikkafíling
Skæri geta komi› a›
gó›um notum
Ég er búin að vera í miklum tískupælingum þessa vikuna. Ekki þó
að spá í hvað ég ætti að kaupa mér næst heldur rann það upp fyrir
mér að tískan væri krydd í tilveruna en ekki lífið sjálft. En það er
þó alltaf þannig að kryddið gerir tilveruna skemmtilega og fjöl-
breytilega. Hnébuxur eru eitt af tískukryddunum þetta haustið.
Þær eru fallegar og klæðilegar og gera heilmikið fyrir heildar-
myndina, alveg sama hvort mannveran er feit eða mjó, há- eða smá-
vaxin. Þegar nýtt krydd kemur inn í tilveruna er auðvelt að taka það
með svo miklu trompi að við blasi gríðarlegur fjármálahalli.
Til þess að forða því mæli ég með því að þið takið gömlu bux-
urnar sem þið eruð löngu hættar að nota og breytið þeim í
hnébuxur. Það er auðvelt í framkvæmd því ein-
ungis þarf að stytta gömlu buxurnar svo út
komi hnébuxur. Það verður þó að gefa sér
góðan tíma svo skálmarnar verði ekki missíð-
ar. Þó tíminn hafi ekki verið besti vinur minn
upp á síðkastið hef ég náð að stytta nokkrar
gamlar buxur. Saumavélin var þó hvergi ná-
læg en með skæri að vopni er hægt að fram-
kvæma ýmislegt. Það er reyndar smekksatriði
hvort það sé fallegt eða ekki að vera í klipptum hné-
buxum. Mér finnst það vel ganga, að minnsta kosti á
meðan maður finnur tíma til að setjast niður og falda bux-
urnar. Ömmur og aðrir virðulegir þjóðfélagsþegnar gefa
þó ekki mikið út á þetta svo kannski er farsælast
að mæta í einhverju öðru þegar ömmur
landsins eru heimsóttar. Með því að gefa
gömlu buxunum nýtt líf samtvinnast þetta
í fínt sparnaðartískuráð. Þó gæti þetta
kallað á smá fjárútlát þar sem skórnir
verða óneitanlega meira áberandi. Vönduð
og vegleg stígvél sóma sér vel við hnébux-
urnar. Kúrekastígvél eða „Fryboots“ koma
sterk inn. Um helgar má reima á sig dans-
skóna og leggja áherslu á fallega sokka eða
sokkabuxur. Heildarútlitið verður þar af
leiðandi útpælt, hvert smáatriði verð-
ur sýnilegt og þá er eins gott að
klúðra engu eða þannig!
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
MJÓR
RÖNDÓTTUR
TREFILL Geng-
ur við nánast
hvað sem er.
Þessi hér fæst í
Topshop.