Fréttablaðið - 17.09.2005, Side 4

Fréttablaðið - 17.09.2005, Side 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 61,59 61,89 111,6 112,14 75,5 75,92 10,124 10,184 9,694 9,752 8,083 8,131 0,5553 0,5585 90,31 90,85 GENGI GJALDMIÐLA 16.9.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 105,8445 4 HEILBRIGÐISMÁL Megrun er ekki lausnin við sjúklegri offitu. Þetta var meðal þess sem kom fram á blaðamannfundi sem haldinn var á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í gær. Hér á landi eru staddir tólf norskir offitusjúklingar. „Við höfum sent hingað suma af okkar erfiðustu sjúklingum. Aðgerðir þeirra eru áhættusamar og við höfum valið að senda sjúklingana hingað á meðan við erum að ná full- um tökum á svona aðgerðum,“ segir Rune Sandbu, yfirlæknir frá Töns- berg í Noregi. Hann kemur hingað með sjúklingum sínum og kynnir sér aðgerðartækni og árangur teymisins á Landspítalanum sem annast hefur offitusjúklinga. Það sem meðal annars greinir aðgerðirnar á Íslandi frá svipuð- um aðgerðum í öðrum löndum er svokölluð atferlismeðferð sem er undanfari aðgerðarinnar og fer fram á Reykjalundi. Þar er áhersl- an lögð á lífsstíl og viðhorf sjúk- linganna, en þessi formeðferð hefur gefið góða raun, bætt lífs- gæði sjúklinga og aukið lífslíkur þeirra um allt að tíu ár. - saj Pattsta›a líkleg í fi‡skalandi Sí›ustu sko›anakannanir fyrir flingkosningarnar í fi‡skalandi s‡ndu a› óvíst er a› stjórnarandsta›an nái meirihluta flótt stjórnin falli. Svo gæti fari› a› upp komi pattsta›a me› vinstrisósíalista í oddaa›stö›u. 17. september 2005 LAUGARDAGUR CD U / CS U SP D G R Æ N IN G JA R P D S 4,0% A Ð R IR 4,0% 7,4%8,6% 38,5%38,5% FD P CD U / CS U SP D G R Æ N IN G JA R VI N ST R IF LO K K U R IN N 8,5%8%7% 32,5% 41,5% FD P CD U / CS U SP D G R Æ N IN G JA R VI N ST R IF LO K K U R IN N 11% 7% 9% 27% 44% FD P ÞINGSÆTI 2002: CDU/CSU: 248 SPD: 251 Græningjar: 55 FDP: 47 PDS: 2 SKOÐANAKÖNNUN 2. JÚLÍ 2005 SKOÐANAKÖNNUN 16. SEPTEMBER 2005 ÚRSLIT KOSNINGA 2002 Tólf norskir offitusjúklingar eru staddir á Íslandi til að undirgangast aðgerð: Megrun leysir ekki offituvandamál SÉRFRÆÐINGAR Í OFFITUAÐGERÐUM Frá vinstri: Björn Geir Leifsson skurðlæknir, Rune Sandbu yfirlæknir, Lina Kristin Johnson næringarfræðingur og Hjörtur G. Gíslason skurðlæknir. ÞÝSKU KOSNINGARNAR Svo virðist sem Þjóðverjar eigi afskaplega erfitt með að gera upp við sig hvað þeir vilji þegar að kjörkössunum er gengið í þingkosningunum sem fram fara á morgun, sunnudag. Í síðustu skoðanakönnununum sagð- ist fjórði hver kjósandi ekki vita enn hvaða flokk hann hygðist kjósa, eða hvort hann færi yfirleitt á kjörstað. Og af svörum þeirra sem þó segjast hafa gert upp hug sinn má helst ráða að þeir vilji að kristilegu flokkarnir taki við stjórnartaumunum – en að jafnað- armaðurinn Gerhard Schröder verði áfram kanslari, frekar en áskorandinn Angela Merkel. Ljóst er að flestir Þjóðverjar líta svo á að jafnaðarmenn og græningjar skili ekki af sér góðu búi eftir sjö ár á valdastóli – efna- hagsstöðnun, hallarekstur á ríkis- sjóði og vaxandi frekar en minnk- andi atvinnuleysi er allt til vitnis um þetta. En margir eru engu sannfærðari um að stjórnar- andstöðuflokkarnir myndu standa sig betur. Fyrst eftir að Schröder boðaði snemmsumars að kosið skyldi til þings strax í haust, ári áður en kjörtímabilinu átti annars að ljúka, var forskot stjórnarandstöðuflokkanna yfir- gnæfandi. Kristilegu flokkarnir, CDU og systurflokkurinn CSU, mældust með allt að 49 prósenta fylgi þá en SPD með aðeins um 27 prósent. Eftir að kosningabaráttan fór formlega í gang í júlí var strax farið að draga aðeins saman með stóru flokkunum. Og eftir því sem nær dró kjördegi staðnaði fylgi kristilegra en í krafti kosninga- baráttuhams kanslarans mjakaðist fylgi SPD upp á við. En enginn vafi þykir leika á því að CDU/CSU verði langstærsti flokkurinn eftir kosningarnar. Öllu meiri vafi leikur hins vegar á því hvort samanlagður þingstyrkur hans og hins væntanlega stjórnar- samstarfsflokks, Frjálsra demó- krata (FDP), dugi fyrir starf- hæfum meirihluta. Samkvæmt síð- ustu könnunum mældist saman- lagt fylgi þessara flokka annars vegar, og SPD, Græningja og nýja Vinstriflokksins hins vegar, ná- kvæmlega jafn mikið, 48-49%. Það gæti hugsanlega dugað til að miðju-hægri-blokkin fengi nauman meirihluta. Það gæti hins vegar jafnauðveldlega farið þannig að Vinstriflokkurinn – kosningabandalag austur- og vestur-þýskra sósíalista sem allir flokkar hafa útilokað að eiga samstarf við – lenti í oddaaðstöðu. Slík úrslit myndu skapa algjöra pattstöðu sem að mati flestra stjórnmálaskýrenda væri senni- legast að leiddi til „stóru sam- steypu“, það er stjórnarsamstarfs SPD og CDU/CSU. Þótt talsmenn flokkanna hafi í kosningabarátt- unni vísað þeim kosti afdráttar- laust á bug sýndu skoðanakannan- ir að yfir þriðjungur kjósenda teldi slíkt stjórnarmynstur „besta kost- inn fyrir Þýskaland“. audunn@frettabladid.is ÁSKORANDINN Angelu Merkel var hampað á lokakosningafundi CDU í Berlín í gær. Á skiltunum stendur: „Kjósum stjórnarskipti!“ KANSLARINN Schröder var þreytulegur á lokakosningafundi SPD í Berlín í gær, eftir að hafa farið mikinn síðustu vikur. fi‡sku ÞINGKOSNINGARNAR Forval VG til kosninga: Tíu í frambo› SVEITARSTJÓRNARMÁL Ljóst er hverjir verða í forvali Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs í Reykja- vík. Kosnir verða fulltrúar í sex efstu sæti listans. Frambjóðendurnir eru Árni Þór Sigurðsson, Ásta Þ o r l e i f s d ó t t i r, Grímur Atlason, Guðný Hildur M a g n ú s d ó t t i r , Magnús Bergsson, Sóley Tómasdóttir, Ugla Egilsdóttir, Þorleifur Gunn- laugsson, Þorvald- ur Þorvaldsson og Svandís Svavarsdóttir. Svandís gefur kost á sér í fyrsta sæti listans. Félagsmenn VG í Reykjavík hafa kosningarétt. -sja SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR KOSNINGAÁRÓÐUR Kosningabaráttan er í fullum gangi í Afganistan en talibanar hafa hvatt fólk til að halda sig fjarri kjörstöðum þegar kosið verður á morgun. Kosningar í Afganistan: Frambjó›andi myrtur AFGANISTAN, AP Skæruliðar í Afganistan myrtu einn þingfram- bjóðanda og tvo bandaríska her- menn í árás á í gær, föstudag. Talsmaður talibana, Mullah Latif Hakimi, hefur hvatt almenning í landinu til að hunsa þingkosning- arnar sem fara fram á morgun og hótað að gera árásir á kjörstaði. Margir höfðu vonast til að kosn- ingarnar myndu binda enda á ofbeldið í landinu en annað virðist nær því rúmlega tólf hundruð manns hafa látið lífið í átökum síð- asta hálfa árið í landinu. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.