Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 30
Fiat Panda Climbing 4x4 kominn á markaðinn. Margir Íslendingar muna eftir Fiat Panda 4x4 sem var þekktur á Íslandi fyrir 20 árum sem mikið og ódrepandi hörkutól. Nú hefur Fiat aftur hafið framleiðslu á Panda 4x4 og er hann boðinn á Ís- landi í dugmikilli Climbing út- gáfu. Þessi útfærsla bílsins hefur mikla veghæð, sterka stálhlíf undir vél og stóra og belgmikla hjólbarða auk sérstakra hlífa að framan og aftan. Panda Climbing 4x4 er fjórhjóladrifsbíll sem ætl- ast er til að látið sé reyna á. Bíll- inn var frumsýndur á Íslandi nú í byrjun september og fékk hann góðar viðtökur en dísilútfærslan er frumsýnd um þessar mundir í Frankfurt og er væntanleg til Ís- lands síðar í haust. Svefn er mikill áhættuþáttur í umferðinni og getur þreyttur ökumaður auð- veldlega orðið valdur að alvarlegum slysum. Ef þreytan sækir á þig í akstri skaltu fara út í kant og láta aðeins líða úr þér áður en þú heldur aftur af stað.[ ] Öryggi, gæði og stíll ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S Y A M 2 94 96 7/ 20 05 FATNAÐUR www.yamaha.is Full búð af Nazran mótorhjólafatnaði á ótrúlega hagstæðu verði. Yamaha-búðin, Nýbýlavegi 2, 200 Kópavogi, s. 570 5300. Xtra, Njarðarbraut 19, 260 Reykjanesbæ, s. 421 1888. Toyota, Baldursnesi 1, 603 Akureyri, s. 460 4300. Almenn smurþjónusta Hjólbarðaþjónusta Sjálfskiptingaþjónusta Rafgeymaþjónusta Ísetning bremsuklossa Dempara – ísetningar o.fl. Vegmúli 4 • Sími 553 0440 Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd Simi. 894 2737 www.ovs.is Ný Suzuki Grand Vitara er kominn á markað verulega breyttur. Hann hefur meðal annars bæði lengst og breikk- að. Verðið á bílnum er áfram mjög hagstætt. Nýr Grand Vitara er alló- líkur fyrir- rennara sín- um, svo ekki sé meira sagt. Bíllinn hefur lengst um heila 27 cm og vantar þá ekki nema um 20 cm í lengdina á stórabróður, XL7. Hann hefur einnig breikkað um 3 cm. Þessi stækkun gerir að verkum að tilfinningin fyrir rýminu í bílnum er öll önnur en í fyrirrennaranum og sömuleiðis eru aksturseiginleikar mun betri og kemur þar einnig til sjálfstæð fjöðrun að aftan. Þessi bíll svín- liggur á veginum með allt öðrum hætti en eldri bíllinn enda munar um minni stækkun. Útlitið er einnig mun nútímalegra og sterk- ur fjölskyldusvipur er raunar með Grand Vitörunni og nýja Swiftinum sem kynntur var fyrir nokkrum mánuðum. Hreinar og beinar línur hafa leyst ávalari lín- ur af hólmi. Enn sem komið er fæst Grand Vitaran eingöngu með tveggja lítra bensínvél sem skilar 140 hestöflum. Seinna er bíllinn væntanlegur með 2,7 lítra bensín- vél og einnig með dísilvél. Bens- íneyðslan er hófleg eða undir 10 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Bíllinn er með sítengdu læsanlegu fjórhjóladrifi og lágu drifi. Meðal staðalbúnaðar í bílnum má nefna vökvastýri, loftkælingu og frjókornasíu og hita í framsæt- um. Bíllinn er vel búinn geymslu- hólfum, til dæmis er geymsluhólf í toppi yfir framrúðu, geymslu- bakki undir farþegasæti og vasar á sætisbökum. Glasahaldarar eru bæði fyrir framsæti og aftursæti og auk þess flöskustandari í framhurðum. Reynsluekið var sjálfskiptum Luxury bíl en búnaður í honum umfram sportgerðinni er lykil- laus ræsing og hurðaopnun, hraðastillir, leðursæti, leðurklætt stýri, topplúga og 17 tommu álfelgur. Í Suzuki Grand Vitara samein- ast prýðilegur borgarbíll og góð- ur ferðabíll, ekki bara fyrir þjóð- vegi heldur á grófari vegum líka eftir því sem stærðin leyfir. Þetta er traustlegur og skemmtilegur bíll með vandað yfirbragð. Driflæsingin og lága drifið gera að verkum að ferðamöguleikarnir á Grand Vitara eru óneitanlega meiri en á venjulegum jepplingi. Loks hlýtur verðið á Suzuki Grand Vitara að teljast afar hag- stætt. Suzuki Grand Vitara verður frumsýndur hjá Suzuki bílum í Skeifunni og hjá umboðsaðilum um allt land í dag og á morgun milli kl. 14 og 17. steinunn@frettabladid.is Ódrepandi hörkutól Framendi bílsins er svipsterkur. Aðgengi að farangursými er gott. Nýja Grand Vitaran hefur talsvert breyst í útliti og hefur sterkan ættarsvip með litla bróður sínum nýja Suzuki Swift-inum. Hér er öllu vel fyrir komið. Vinnurými bílstjórans er rúmgott og allir hlutir aðgengilegir. Driflæsingin og skipting milli háa og lága drifsins er í hnappi eins og algengt er að verða. REYNSLUAKSTUR Suzuki Grand Vitara Sport Beinskiptur 2.690.000 Sjálfskiptur 2.890.000 Luxury Beinskiptur 2.990.000 Sjálfskiptur 3.190.000 Uppgefin meðaleyðsla í blönduð- um akstri Beinskiptur 9,1 Sjálfskiptur 9,4 Eftir 20 ára bið stendur Íslendingum aftur til boða fjórhjóladrifsútgáfa af Fiat Panda. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Grand Grand Vitara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.