Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 17. september 2005 33 „Á Freeport var mikið lesið yfir okkur um alkóhólisma og Tólf spora kerfið. Þar lærði ég að hugsa um einn dag í einu, sem var geysileg uppgötvun, því það hljómaði öðruvísi að hætta að drekka í einn dag en að ákveða slíkt til lengri tíma,“ segir Kristín, sem leist illa á blikuna framan af dvölinni á Freeport. „Ég var langyngst sjúkling- anna og hugsaði: „Guð minn al- máttugur! Hér eru bara rónar og alveg hræðilega illa statt fólk!“ Ég sá ekki sjálfa mig. Hafði kom- ið með þá von að geta lært eitt- hvað um tilveruna, en í eyrum mér glumdu skilaboðin að ég yrði að hætta að drekka. Slíkt jafngilti dauðadómi og einkennileg líðan þegar enginn hlustaði á hvað ég átti bágt og var búin að eiga erfitt líf. Aðrir skildu ekki þann sjálf- sagða hlut að ég reyndi inni á milli að vera hress og kát í lífinu, með allt þetta á bakinu,“ segir Kristín, sem kom því strax til skila að hún væri á kolröngum spítala. „Þá var mér sagt að drífa mig heim og eftir sat ég, meira ein- mana og verr á mig komin en nokkru sinni, en ákveðin í að þrauka. Þegar ég hætti innri mót- spyrnu og fór að taka eftir því sem fram fór virkaði það einungis hvetjandi. Alveg nýtt forrit fór inn í hausinn á mér eftir að ég ákvað að taka bómullina úr eyrun- um. Ég er hjátrúarfull og eitthvað hafði hjálpað mér að komast á þennan stað. Því hlaut hjálpin að eiga heima þarna.“ Aumingjaskapur og geðveiki Heimsóknir þurra alkóhólista var það sem hvatti alkóhólistana á Freeport hvað mest. Fólk sem átti að baki áratuga edrúmennsku, auk þess sem stærstur hluti starfsfólksins var alkóhólistar og það telur Kristín að hafi fengið fólk til að hlusta. Sjálf vildi hún reyna að vera edrú en eftir því sem hún var þurr lengur, því verri var líðanin. „Ég komst ekki áfram með líf mitt því draugar fortíðar voru svo margir og ljótir. Sama hvað ég reyndi að breyta, bæta og fyrir- gefa; ég var alltaf jafn dáin inni í mér. Því sat ég föst í fortíðinni og gat ekki séð hvernig ég átti að taka á móti framtíðinni,“ segir Kristín sem var aftur komin á Freeport rúmu ári eftir fyrstu meðferðina. „Eftir þá meðferð náði ég að- eins mánuði í edrúmennsku og fór því aftur út um áramótin 1978/1979. Tveimur árum síðar fór ég á Silungapoll og þaðan í langtímameðferð á Hazelden, sem var meðferðarstöð fyrir þá sem ekki pössuðu lengur á Freeport en byggði á sömu aðferðafræði, en þá vildu stjórnarmenn SÁÁ senda mig sem lengst í burtu og eins lengi og hægt var,“ segir Kristín, en þegar þarna var komið höfðu þeir Hilmar, Hendrik og Edwald hafið það frumkvöðlastarf að heimfæra aðferðafræði Freeport að íslenskum aðstæðum, en það starf hefur verið í stöðugri þróun allt til dagsins í dag undir merkj- um SÁÁ. „Þótt Freeport-spítalinn hafi verið ljótur útlits hætti það fljót- lega að skipta máli og okkur fannst við vera á fimm stjörnu hóteli. Samhugurinn var óskap- legur og starfsfólkið einstakt, sem var nýtt því drykkjunni fylgdi hrikaleg skömm: „Þú ættir að skammast þín að geta ekki hætt að drekka og hagað þér eins og almennileg manneskja!“ Flest- ir halda að þeir séu alvarlega geð- veikir og fyrir stóran hóp fólks var léttirinn mikill að finna að þeir væru kannski ekki geðveikir eftir allt og áttu einhverja von. Þegar fólk hefur brugðist sjálfu sér svo oft finnst því það ekki eiga neitt gott skilið. Þannig breytti Freeport lífi mínu því ég komst fljótt að raun um að ég væri ekki ein í þessu basli. Ég lærði og að alkóhólismi væri sjúkdómur, sem voru ný tíðindi, því drykkja hafði áður verið álitin aumingjaskapur. Og þegar ég heyrði að alkóhólismi hefði ekkert með viljastyrk né gáfur að gera, þá fór ég virkilega að hlusta,“ segir Kristín glöð í bragði, ævinlega þakklát fyrir fyrstu skrefin í áttina að betra lífi á Freeport. Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skífan Kringlunni • www.skifan.is ...skemmtir þér ; ) ÚTSALAN ER HAFIN Í VERSLUNUM SKÍFUNNAR GEISLAPLÖTUR FRÁ 99,- kr. DVD MYNDIR FRÁ 699,- kr. TÖLVULEIKIR FRÁ 799,- kr. REM-In Time, Best Of REM Black Eyed Peas –Monkey Busin ess 1.499 k r. Green Day-American Idiot 1.499 kr. Mariza-Transparente 999 kr. Reservoir Dogs Warcraft Tenchu Fatal Shadows The Rolling Stones-Bigger Bang 1.699 kr. 999 kr. 999 kr. Leaves – The Angela Test DigiPak 1.499 kr. Kill Bill Vol 1 Gralli Gormur 1.999 kr.999 kr. 1.299 kr. CD CD CD CD CD DVD DVD PC PS2 999 kr. CD PC Ég á kærustu sem nennir aldrei að djamma og ef ég vil fara út að skemmta mér þá fer hún í fýlu í heil- an dag. Ég má aldrei gera neitt annað en að vera með henni. Stundum lang- ar mig út á lífið. Það er ekki eins og ég bjóði henni aldrei með. Hún bara vill ekki fara. Við erum alltaf að rífast yfir þessu. Ég fór síðast út fyrir mán- uði síðan. Hún drekkur ekki þannig að ég skil það alveg að henni finnist kannski ekkert gaman að djamma, en ég er aftur á móti meiri partíkall. Hvernig getum við komist að sam- komulagi svo allir séu ánægðir? HMS Í REYKJAVÍK Þið verðið að búa til helgarplan. Eina helgina getið þið starað í augu hvors annars alla nóttina og hina helgina get- ur þú fengið að djúsa með félögunum. Mig grunar að þið séuð í yngri kantin- um. Segðu henni að hætta að láta eins og þið séuð háöldruð hjón sem getið ykkur hvergi hreyft. Ef hún vill ekki fara út að skemmta sér getur hún ekki ætl- ast til þess að þú farir heldur ekki. Er hún algjörlega dauð úr öllum æðum stelpan? Kannski þú fáir að fara út einu sinni í mánuði framvegis vinur. Kæra Fröken Freyja. Ég á enga vini. Ég hef alltaf talið það nóg að eiga eina vinkonu, en það er stelpa sem ég ólst upp með. Nú er hún flutt til Noregs og ég er alltaf ein. Ég á kunningja í vinn- unni en ég er ekki alveg að fíla það fólk. Það virðist ekki eiga neitt sam- eiginlegt með mér og ég sakna vin- konu minnar. Finnst enginn geta kom- ið í hennar stað. Það eina sem ég geri er að vinna, vinna og vinna. Fer aldrei í bíó eða út að skemmta mér lengur. Mér finnst eins og ég verði alltaf ein. Hvað á ég að gera? BK Á NESKAUPSSTAÐ Annaðhvort verðurðu ein og sættir þig við það eða ferð að leita eftir nýrri vin- konu. Hresstu þig við. Það leitar enginn til þín ef þú ert alltaf í fýlu. Kannski er einhver í nákvæmlega sömu sporum og þú. Nú er bara að setja upp brosið og kveikja á góða skapinu. Þú átt eftir að finna þig fyrr en seinna. Ekki örvænta. Þangað til ný vinkona er fundin þá er alltaf hægt að fara einn í bíó. Þú þarft ekki vinkonu í allt. Lífið er langt frá því að vera búið. Allar mínar vinkonur eru búnar að fá sér silikon. Ég er með langminnstu brjóstin sem gerir það að verkum að mér líður eins og spýtu við hliðina á þeim. Ég hafði aldrei hugsað mér að fá mér silikon. Ég hef aldrei liðið fyrir það að vera brjóstalítil en nú er ég alltaf að heyra eitthvað um það. Ég þyki greinilega ekki jafn spennandi og vinkonurnar lengur og mér finnst ég hálf útundan í samræðum sem eru orðnar á ansi lágu plani. Ég finn að ég er farin að kúpla mig frá hópnum og þeim virðist vera al- veg sama. AA Á AKUREYRI Það er ekkert annað. Ert þú semsagt ekki jafn flott og vinkonurnar. Segja brjóstin allt í þínum vinahópi? Huggaðu þig við það að þú ert þó enn með til- finningu í þínum geirvörtum. Þú ert enn náttúruleg. Vertu bara stolt af þínu stelli. Sumir strákar eru ekki einu sinni hrifnir af þessum gervibrjóstum. Þetta er allt saman á yfirborðinu, mundu það. Ekki láta vinkonurnar draga úr þér með endalausu silikon tali. Reyndu bara að snúa umræðununum á annan veg. Lík- lega hefur þú eitthvað sem þær hafa ekki. Dragðu frekar athyglina að því. FRÖKEN FREYJA LEYSIR VANDANN >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.