Fréttablaðið - 17.09.2005, Side 6

Fréttablaðið - 17.09.2005, Side 6
6 Kostnaður við sameiningu sveitarfélaga til ársins 2009: Allt a› 2,4 milljar›ar í sameiningu SVEITARSTJÓRNARMÁL Stjórnvöld hafa ákveðið að verja allt að 2,4 milljörðum króna til sameiningar sveitarfélaga til ársins 2009. Í tilkynningu félagsmálaráðu- neytisins segir að tryggt verði viðbótarfjármagn til þess að styðja myndarlega við sameining- aráform sveitarfélaga á næstu árum. Fé verður varið til undir- búnings sameiningar en einnig er ætlunin að nýsameinuð sveitar- félög fái aðgang að meira fjár- magni en áður til að byggja upp þjónstu og stjórnsýslu að lokinni sameiningu. Veitt verður fé til skuldajöfn- unar sveitarfélaga sem og til tekju- og útgjaldajöfnunar. Sjóð- urinn hefur einnig heimild til að taka þátt í launakostnaði fram- kvæmdastjóra sameinaðs sveitar- félags en það getur átt við þegar sameinuð eru nokkur fámenn sveitarélög sem ekki hafa haft framkvæmdastjóra á launum. Jafnframt er gert ráð fyrir að að sjóðurinn geti varið fé til nauð- synlegrar þróunar á stjórnsýslu í nýju sveitarfélagi í allt að fjögur ár eftir sameiningu. - jh Tilbo›i› var mistök Framkvæmdastjóri Kynnisfer›a telur tilbo› Hópfer›ami›stö›varinnar og Vest- fjar›alei›ar í sérleyfi fer›a til Su›urnesja frá Reykjavík vera mistök. Kært hefur veri› vegna skilyr›a sem flykja brjóta samkeppnisreglur. SAMGÖNGUR „Það kom okkur veru- lega á óvart hvað menn eru tilbún- ir að greiða fyrir sérleyfisferðina,“ segir Þráinn Vigfússon, fram- kvæmdastjóri Kynnisferða. Í fyrradag voru opnuð tilboð í Ríkis- kaupum í skóla- og áætlunarakstur á nokkrum sérleyfisferðum. At- hygli vöktu svokölluð mínustilboð en nokkur fyrirtæki voru reiðu- búin að greiða Vegagerðinni tugi og allt að 469 milljónir með leyfinu fyrir akstur frá Reykjavík til Suðurnesja. „Við buðum 27 milljónir og það er alveg á mörkunum að það borgi sig samkvæmt okkar útreikningum svo ég veit ekki hvernig þeir ætla að fara að sem vilja borga 469 milljónir fyrir það. Þetta hljóta að vera einhver mistök og ég á ekki von á því að Vegagerðin taki þessu boði,“ bætir hann við. Bjarni Björnsson, sem á sæti í stjórn Hópferðamiðstöðvarinnar og Vestfjarðaleiðar sem bauð 460 milljónir, vildi ekki tjá sig um út- reikninganna sem liggja að baki til- boðinu eða hvort um einhver mis- tök væri að ræða. Þórir Garðarsson hjá Allra- handa, sem bauð 103 milljónir, segir að sérleyfið fyrir Suðurnes sé með margfalt meiri meðalnýtingu en flestar aðrar leiðir, sem geri það að verkum að fyrirtækið sé tilbúið að greiða slíka upphæð fyrir það. Félag hópferðaleyfishafa og Þingvallaleið hafa kært til kæru- nefndar útboðsmála vegna þeirra skilmála sem fylgja útboðinu en í því felst að þjónusta við Umferðar- miðstöðina sé notuð og greitt sé fyrir hana til rekstraraðila hennar en það er fyrirtækið Kynnisferðir sem jafnframt á tilboð í útboðinu. Einnig greiða samkeppnisaðilarnir aðstöðugjöld til Kynnisferða, segir Björn, sem einnig er í stjórn Félags hópferðaleyfishafa, og það gefi þeim betri stöðu þegar kemur að tilboðinu. Þráinn segir að Kynnisferðir hafi samið um jafnan aðgang allra að Umferðarmiðstöðinni, sem sé í raun eina boðlega endastöðin, og því eigi kæran ekki við rök að styðjast. Einhver verði að reka hana og Kynnisferðir hafi fengið beiðni frá sérleyfishöfum um að gera það og hafi kostað miklu til að standa undir því. jse@frettabladid.is Rembrandt-málverk fannst: Meti› á um flrjá milljar›a SVÍÞJÓÐ Málverk eftir Rembrandt sem rænt var úr sænska Þjóðminjasafninu fyrir fimm árum fannst í Kaup- mannahöfn í gær. Verkið er eitt af þremur sem rænt var á sínum tíma en hin tvö sem eru eftir Renoir eru ófundin. Danska lögreglan komst á snoðir um að málverkið væri að finna á hóteli í Kaupmannahöfn og handtók fjóra menn á staðn- um með dýrgripinn í fórum sínum. Málverkið er sjálfsmynd af Rembrandt og er metið á um þrjá milljarða króna að lág- marki. - sþs Nýtt afl íhugar framboð: Bara í Reykja- vík ef af ver›ur STJÓRNMÁL Á fundi Nýs afls á fimmtudagskvöld var rætt um framboð stjórnmálaflokksins til sveitarstjórnarkosninga. Ákveðið var að skoða framboð og hefja undirbúning. Ákvörðun um hvort farið verður í framboð bíður aðal- fundar Nýs afls sem haldinn verður 12. október. Jón Magnússon lögfræðingur, sem verið hefur í forsvari fyrir flokkinn, segir að skiptar skoðanir hafi verið um framboð. Félagar hafi verið harla ánægðir og glaðir með ákveðna sveitarstjórnarmenn í sveitarfélögunum á höfuðborgar- svæðinu utan Reykjavíkur. „Höfuð- athyglin beinist að Reykjavík og ef til kemur munum við bara bjóða fram þar.“ - ss Og Vodafone og Neyðarlína: Sta›setning beint til 112 FJARSKIPTI Gengið hefur verið frá samningi Og Vodafone og Neyðar- línunnar um að upplýsingar um staðsetningu Og Vodafone farsíma berist beint til 112. Stefnt er að því að ljúka tæknilegri útfærslu sem fyrst og að þjónustan verði orðin virk innan tveggja mánaða. Deilt hefur verið um hver skuli greiða fyrir uppsetningu hugbúnað- ar til að þetta sé mögulegt en Gísli Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Og Vodafone, segir að aðilar hafi kom- ist að samkomulagi um að ræða ekki frekar útfærslu samningsins. - ss Eiga Íslendingar að sækjast eftir sæti í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna? SPURNING DAGSINS Í DAG: Þarf að fækka sveitarfélögum á landinu? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 74,8% 25,2% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN 17. september 2005 LAUGARDAGUR VIÐ UNDIRSKRIFT SAMNINGS Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar hf., og Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Vodafone. FYRIRHUGAÐ ÍÞRÓTTAHÚS Stærð nýrrar íþróttahallar í Fjarðabyggð ákvarðast að líkindum af sameiningu Reyðarfjarðar, Eskifjarðar og Neskaupstaðar árið 1998. Alltaf einfalt www.ob.is 14 stöðvar! JÓN MAGNÚSSON Í forsvari fyrir stjórn- málaflokkinn Nýtt afl. LÖGREGLUFRÉTTIR HRAÐAKSTUR Í KEFLAVÍK Lög- reglan í Keflavík gómaði ökuþór á 130 kílómetra hraða á Reykjanes- braut í fyrrakvöld. Annar var gripinn skömmu seinna á 122 kíló- metra hraða. Snemma í gærmorg- un voru svo tveir ökumenn teknir fyrir að aka á 78 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Allir mega þeir búast við sektum. LOK ÞEYTTIST Á VEGFARANDA Strætó ók yfir brunnlok á Skot- húsvegi í Reykjavík með þeim af- leiðingum að lokið þeyttist upp á gangstétt og lenti á gangandi vegfaranda. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild og voru áverkar hans minniháttar að sögn lögreglu. Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna brunnlokið hrökk af sínum stað. Kjarnorkumál Norður-Kóreu: fiurfa a› s‡na sveigjanleika PEKING, AP Enn hefur enginn árang- ur náðst í viðræðum sex ríkja um framtíð kjarnorkuáætlunar Norður- Kóreu. Krafa Norður-Kóreumanna um að byggður verði kjarnakljúfur til raforkuframleiðslu gegn því að þeir láti af auðgun úrans hafa ekki hlotið hljómgrunn meðal hinna ríkjanna. Fulltrúi Suður-Kóreu hefur þó látið hafa eftir sér að þessi ágrein- ingur sé ekki óyfirstíganlegur. Til þess að árangur náist þurfi þó bæði Bandaríkin og Norður-Kórea að sýna talsverðan sveigjanleika. ■ Á UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI Kynnisferðir reka Umferðarmiðstöðina og eru jafnframt með sérleyfisferðina til Keflavíkur. Nú eru fyrirtæki til í að greiða allt að 469 milljónir fyrir þá sérleyfisferð, sem jafnframt gefur leyfi fyrir ferðum til Grindavíkur og Bláa lónsins. FARÞEGAFJÖLDI Í NOKKRUM LEIÐUM Á SÍÐASTA ÁRI Kílómetrar Heildarfjöldi ferða Heildarfjöldi farþega Fjöldi farþega á ferð Reykjavík-Leifsstöð 53 9.636 226.605 23,5 Reykjavík-Hveragerði-Selfoss 61 2.111 31.752 15 Reykjavík-Akureyri 389 460 14.206 30,9 Seyðisfjörður-Egilsstaðir 30 620 1.329 2,1 Könnun Gallup á trausti Reykvíkinga í garð borgarstjóraefna Sjálfstæðisflokksins: Fleiri segjast treysta Vilhjálmi BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR Reyk- víkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni betur en Gísla Marteini Baldurssyni til þess að gegna starfi borgarstjóra, samkvæmt niðurstöðum úr nýrri skoðana- könnun sem unnin var á vegum Gallup. Alls treysti 57,1 prósent að- spurðra Vilhjálmi mjög vel eða frekar vel til þess að gegna starf- inu en 42,3 prósent treystu Gísla Marteini. Þá voru fleiri sem sögð- ust treysta Gísla Marteini frekar illa eða mjög illa fyrir starfinu, eða 38,8 prósent á móti 22,8 sem treystu ekki Vilhjálmi. Könnunin var gerð á tímabilinu 1.-12. september og var úrtakið 1.200 Reykvíkingar. Svarhlutfall var fimmtíu prósent. Í niðurstöðum sömu könnunar kom fram að ef val á borgarstjóra stæði milli þeirra tveggja sögðust 57,3 prósent kjósa Vilhjálm en 42,7 prósent Gísla Martein. Þá sögðust tæp 54 prósent aðspurðra ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en næst- flestir sögðust ætla að kjósa Sam- fylkinguna, 26,3 prósent. - sda VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON 57,1 prósent treystir Vilhjálmi. GÍSLI MARTEINN BALDURSSON 42,3 prósent treysta Gísla Marteini.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.