Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.09.2005, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 17.09.2005, Qupperneq 48
SOS, Hilmar! SOS! Ég heitiKristín,“ hvíslaði hún skjálf-andi röddu í almenningsím- ann á hádegisbarnum á Óðali, einn laugardag í maí 1977. Símanúmer- ið hafði greypt sig í undirmeðvit- undina. Þrisvar sinnum 69. Hilmar þessi Helgason var ekki óvanur símtölum af þessu tagi, enda fylgdi nafni hans töfraorðið Freeport; lausnarorð drykkju- sjúkra, eins og skemmtanaljónsins “Þarna var ég við dauðans dyr, með annan fótinn í ræsinu. Lang- aði ekki að lifa og gat ekki verið full en ekki edrú heldur,“ segir Kristín, sem komin var í bullandi vandræði með áfengi á þessum af- drifaríka laugardegi. „Frá mínum bæjardyrum séð stöfuðu vandræðin alls ekki af drykkju, en eitthvað varð til þess að mér gekk einstaklega illa að fikra mig áfram í lífinu,“ segir Kristín sem ung fann traustan vinskap í brennivíni sem hjálpaði henni að gleyma. Upparar og aumingjar „Farðu rakleiðis heim. Ég verð kominn eftir klukkutíma,“ voru skilaboðin sem Hilmar færði Kristínu sem hraðaði sér heim af Óðali, vel við skál. „Hilmar vissi sem var, að í hann hringdi enginn nema eitt- hvað mikið væri að. Ég vissi að gamall drykkjufélagi hafði farið á Freeport og fengið sprautu í hand- legginn til að hætta að drekka, en meira vissi ég ekki. Þegar Hilmar kom til mín vældi ég mikið um hvað veröldin væri vond, tilveran hrikaleg og allir væru vondir við mig ,“ segir Kristín, sem var ekki síst niðurlút vegna þess að hún hafði drukkið sig út úr ritarastarfi við Danska sendiráðið, sem hún hafði þráð og beðið eftir lengi. „Á meðan ég beið eftir starfinu hafði ég farið í fimm vikna ferð til Spánar og verið á fylleríi allan tím- ann. Fyrstu vinnudagana kom í ljós að ég hafði enga eirð að bíða þess að komast á barinn, svo vinn- unni klúðraði ég mjög fljótlega. Fór mikið á hádegisbar Óðals og aftur á kvöldin, en Óðal var á þess- um tíma staður þeirra sem kölluðu sig „uppara“, því á Borginni voru þeir sem við álitum fyllibyttur, aumingja og róna,“ segir Kristín, en böggull fylgdi skammrifi þegar Hilmar var búinn að hugga hana og gefa grænt ljós á Freeport. „Það eina sem ég þurfti var að útvega peninga fyrir einum og hálfum farmiða og 400 dollara að auki. Ég saup auðvitað hveljur því ég átti ekki fimm aur með gati,“ segir Kristín sem er þekkt fyrir sjálfsbjargarviðleitni og fann nú leiðina út með sérstökum hætti. Bjargvættur með vodka Kristín var 26 ára þegar þarna var komið sögu og leigði herbergi hjá góðri konu í Reykjavík sem lánaði henni síma til afnota. „Á þessum sama laugardegi hringdi ég heim til félagsmála- stjóra Kópavogs, því lögheimili mitt hafði verið þar lengi. Sagði honum að um líf og dauða væri að tefla; ég yrði barasta að komast á Freeport! Hann tók mér vel en bað mig að hringja á skrifstofu- tíma eftir helgina. Ég æpti að það yrði of seint,“ segir Kristín en varð á endanum að láta í minni pokann fyrir skrifræðinu. „Tíu mínútum síðar kallar leigusalinn að einhver Helga bíði mín í símanum. Það reyndist vera Helga Ágústsdóttir, þá kunn út- varpskona sem einnig starfaði fyrir Félagsmálastofnun Kópa- vogs. „Áttu eitthvað að drekka?“ spyr hún. „Nei,“ mjálmaði ég aumlega. „En áttu pening fyrir leigubíl?“ spyr hún aftur. „Nei,“ vældi ég í símtólið. „Heyrðu, hann sonur minn hleypur út og borgar fyrir þig bílinn. Komdu strax til mín!“ sagði hún og tók á móti mér í baðsloppi með handklæði um höfuðið. Skellir svo vodkaflösku á borðið og segist ekki eiga bland. Sest við símann og hringir til kvölds í allar áttir, milli Pontíusar og Pílatusar, en það eina sem ég heyrði var: „Þessi kona þarf að komast út strax!“,“ segir Kristín sem þakklát kláraði úr vod- kaflöskunni, en Helga hafði feng- ið áhuga á alkóhólisma þegar áfengismeðferð hófst á Vífilsstöð- um árinu áður. „Vaninn var að henda fylliröft- um inn á Tíuna,“ segir Kristín og á við deild 10 á Kleppsspítala, þar sem áður var afvötnunardeild og margir þjóðþekktir einstaklingar létu renna af sér með hjálp lyfja- skápa læknanna. „En þarna hjá Helgu varð ég fyllri og fyllri á meðan hún heimt- aði af Loftleiðum að þeir settu upp víxil svo ég kæmist á Freeport. Því fylgdi geysileg frelsistilfinn- ing,“ segir Kristín, ævinlega þakklát Helgu Ágústsdóttur fyrir hjálp á tólftu stundu. Með síðkjóla og háhæla skó á Freeport Freeport-sjúkrahúsið stóð á Long Island í New York. Eftir að Íslend- ingarnir Hilmar Helgason og frændurnir Hendrik og Edwald Berndsen komu þaðan úr áfengis- meðferð 1975 varð árangur þeirra íslenskum alkóhólistum til fyrir- myndar og eftirbreytni. „En í raun vissum við ekkert um Freeport, fyrir utan að þar var fólki hjálpað að snúa frá brenni- víni. Ég var ekki endilega tilbúin að hætta að drekka, en mín eina hugsun var að komast frá hrylli- lega Íslandi, þeirri hræðilegu eyju sem átti upptök í öllum mín- um sorgum og vanlíðan,“ segir Kristín, sem hélt utan til Freeport 22. maí 1977. „Þá fyllti ég ferðatöskuna af síðkjólum og háhæla skóm; öllu því flottasta sem ég átti. Ég var svo heppin að leigusalinn leit inn í skáp hjá mér og setti efst í tösk- una venjuleg föt. Ég hafði hvorki náttföt né baðslopp meðferðis, enda markmið að hafa það skemmtilegt í heimsborginni,“ segir Kristín sem játar að hafa skvett duglega í sig á leiðinni út. „Á leiðinni var fólki leyft að drekka eins mikið og það vildi, því það minnkaði líkur á því að menn skiptu um skoðun eða strykju þeg- ar þeir lentu á Kennedy-flugvelli. Alkóhólistar eru mestu tækifær- issinnar í veröldinni og komnir til fyrirheitna landsins var viðbúið að menn reyndu að láta sig hverfa,“ segir Kristín alvörugefin en brosmild. Grænn hryllingur og taugastríð Kristín var undir eins klædd í karlmannsnáttföt og háttuð ofan í rúm þegar hún kom á Freeport. Nú átti hún að sofa, en það reynd- ist erfitt því hún svaf stutt og vaknaði á fjögurra tíma fresti. „Þá fékk ég sprautu í rassinn, en líðanin var hryllingur; ég hrist- ist eins og lauf í vindi með taug- arnar í molum. Þegar ég fór að líta í kringum mig morguninn eft- ir brá mér svakalega. Hvert var ég eiginlega komin?! Húsið var eldgamalt, ljótt, með löngum, grænmáluðum göngum og notuð- um hermannabeddum, en græni liturinn átti að vera róandi. Því næst var mér hent niður í kjallara á AA-fund, og hvur andskotinn var nú það? Það bjargaði málum hvað starfsfólkið var yndislegt, tók utan um mann og sagði: „We care for you.“ Innst inni hugsaði ég: „Já, já, þetta er Kaninn. Maður sér þetta nú í bíómyndunum. „They don’t care for me shit!“,“ segir Kristín og minnist hlátra- skalla þegar teknir voru upp úr tösku hennar ballkjólar og dans- skór. „Fljótlega sá ég að Íslendingar voru stór hluti sjúklinganna; alls 27 Íslendingar, en ég var númer 111 af þeim sem fóru frá Íslandi á Freeport. Það var víst nóg af efni- legum kandidötum í áfengismeð- ferð héðan, en þeir Hilmar og Hendrik báru út fagnaðarerindið, þótt Hilmar hefði ekki náð því að vera edrú nema í stuttan tíma og lést fyrir aldur fram úr alkóhól- isma, eftir að hafa samt sem áður bjargað hundruðum Íslendinga, sem sýnir og sannar hversu hræðilegur og blekkjandi sjúk- dómur alkóhólisminn er,“ segir Kristín döpur í bragði. Rónar og illa statt fólk Fyrstu tvær vikur áfengismeð- ferðirnar fóru fram á Freeport- spítalanum, en næstu fjórar í Ver- itas Villa í upphéruðum New York-fylkis. Það var rekið af Sankti Fransiskusar-nunnum í gömlum, niðurníddum skóla. 32 17. september 2005 LAUGARDAGUR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ÞJÓÐARVAKNING FRUMKVÖÐLANNA A lls fóru um 700 Íslendingar í áfengismeðferð á Freeport-sjúkrahúsið áLong Island í New York á áttunda áratugnum. Í framhaldi var SÁÁstofnað á Íslandi og í kjölfarið fylgdi gífurlegur vöxtur AA-samtakanna í landinu. Reyndar er leitun að jafn víðtæku átaki og þekkingu á alkóhólisma og þekkist hér á Íslandi, en hérlendis er boðið upp á svokallaða Minnesote- aðferð, bæði hjá hinu opinbera, SÁÁ og nokkrum trúarsamfélögum. Hilmar Helgason var meðal þeirra fyrstu sem fór í meðferð á Freeport í ágúst 1975. Hann kom heim í september sama ár og dreif þá frændurna Hendrik og Edwald Berndsen út til Freeport. Árangur þremenninganna varð öðrum fljótt til eftirbreytni, en þeir Hilmar og Hendrik urðu skjótt mjög af- kastamiklir við að aðstoða fólk við að komast í meðferð á Freeport og fylgdu þeim gjarnan alla leið út. Síðar urðu þeir aðalmennirnir í að stofna SÁÁ og komu af stað þjóðarvakningu í áfengismálum og viðhorfsbreytingu til áfeng- issjúkra, sem Íslendingar búa enn að í dag. Nú þegar þrjátíu ár eru liðin frá fyrstu ferðum Íslendinga á Freeport, er að- eins einn þremenninganna á lífi; Hendrik Berndsen. Hann var fyrsti varafor- maður SÁÁ og gengdi því embætti uns hann varð formaður á árunum 1984 til 1988. Hendrik stóð að því að flytja SÁÁ-meðferðina til Grænlands, Fær- eyja og Danmerkur, og hefur bjargað mörgum vímuefnafíklinum þar. Heimildir: SÁÁ, Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann. Íslendingur nr. 111 á Freeport Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . SENDU SMS SKEYTIÐ BTC BGF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ. 9. HVER VINNUR! VINNINGAR ERU: BÍÓMIÐAR FYRIR TVO • DVD MYNDIR • COCA COLA “NIGHT WATCH IS F***ING COOL!”(Quentin Tarantino) SIGURVEGARINN KRISTÍN SNÆFELLS Mætti grimmum örlögum í bernsku og var misnotuð kynferðislega af nánum fjölskyldumeð- limi frá unga aldri. Sótti huggun hjá Bakkusi og var ein af 700 Íslendingum sem tóku fyrstu skrefin í átt að heilbrigðu líferni með hjálp Tólf spora kerfisins á Freeport-spítalanum í New York. Á flessu ári eru flrír áratugir frá flví fyrstu Íslending- arnir héldu til Freeport í Bandaríkjunum í áfengis- me›fer›. Alls fóru um 700 manns vestur flar á me›al Kristín Snæfells sem nota›i áfengi til fless a› drekkja sorgum og gera lífi› ögn bærilegra eftir a› hafa veri› fórnarlamb kynfer›islegrar misnotkunar í æsku. fiórdís Lilja Gunnarsdóttir rifja›i upp Freeport-árin me› Kristínu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.