Fréttablaðið - 17.09.2005, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 17. september 2005 37
fia› styttist ó›um í a› tökur á næstu James Bond myndinni hefjist. fia› er a›eins eitt vandamál:
fia› vantar sjálfan Bond. Freyr Gígja Gunnarsson fór yfir söguna endalausu.
Broccoli – fjölskyldan, MGM ogSony-fyrirtækið standa frammifyrir heldur óvenjulegu vanda-
máli. Handritið er tilbúið, fjármagnið
er klárt og allir helstu aukaleikarar
snúa aftur í sín hlutverk. Það vantar
bara einhvern til að leika James Bond.
Enski leikarinn Matthew Macfayden
lýsti því nýlega yfir að honum hefði
verið boðið hlutverkið. Hann sagðist
vera að íhuga málið en var ekki mjög
spenntur. Hlutverk Bonds breytir líka
öllu í lífi leikarans sem fer í þjónustu
hennar hátignar.
Brosnan kveður með látum
Eitt sinn gekk sú saga fjöllum hærra í
Hollywood að Bond-myndin Tomor-
row Never Dies hefði verið farin að
skila gróða áður en hún komst í kvik-
myndahúsin. BMW, Smirnoff og fleiri
stórfyrirtæki höfðu lagt svo mikla
peninga í myndina enda sáu þeir sem
var að Bond var að komast í hæstu
hæðir á ný.
Það var ekki síst Pierce Brosnan að
þakka hversu vinsæll breski leyniþjón-
ustumaðurinn varð aftur. Eftir mögur
ár hafði honum tekist að vinna aftur trú
„almennings“ á að Bond gæti bjargað
heiminum með hjálp fagurra kvenna.
Eftir að síðasta myndin um Bond, Die
Another Day, vakti ekki mikla lukku
töldu margir að dagar Brosnans í hlut-
verkinu væru taldir. Gagnrýnendur töl-
uðu um að hann væri orðinn of gamall
en Brosnan er kominn á sextugsaldur-
inn.
Eftir að ákveðið var að nýjasta kvik-
myndin í Bond flokknum ætti að vera
byggð á fyrstu skáldsögu Ians Fleming,
Casino Royale, sögðu margir að með
þeirri ákvörðun hefði Brosnan verið
rekinn óopinberlega. Sú staðreynd að
Bond er 28 ára í Casino Royal en Brosn-
an er kominn á sextugsaldurinn segði
allt sem segja þyrfti. En þrátt fyrir að
valið á Brosnan hefði verið augljós
„sögufölsun“ er vitað að Broccoli og
MGM reyndu að fá Brosnan til að end-
urtaka leikinn. Launakröfur leikarans
voru hins vegar, að þeirra mati, „sví-
virðilegar“. Vegna þessa er Bond-deil-
an komin í þennan rembihnút. Í sumar
hefur gengið á ýmsu. Meðleikarar
Brosnans hafa lýst yfir stuðningi við
hann sem Bond og margir markaðssér-
fræðingar halda því fram að framleið-
endurnir hafi gert mistök með því að
halda ekki í Brosnan.
„Margir krakkar sjá James Bond
sem vörumerki foreldra sinna. Ef
Bond fer að verða of ungur þá er hugs-
anlegt að hugmyndin um hann fjar-
lægist aðalaðdáendahópinn sem er
karlmenn 25 ára og eldri,“ sagði ónafn-
greindur heimildamaður við afþrey-
ingartímartið Hollywood Reporter.
Campbell verður leikstjóri
Framleiðendur Bonds eru staðráðnir í
að láta Bond lifa sem lengst. Myndirn-
ar hafa líka yfirleitt gengið vel í kvik-
myndahúsagesti. Fjölmargir leik-
stjórar hafa verið kallaðir til að glæða
goðsögnina lífi á ný og gefa henni
ferskt yfirbragð í anda nútímans.
Leikstjórinn Matthew Vaughn var
kallaður til fundar við MGM auk leik-
arans Daniels Craig vegna áhuga
kvikmyndafyrirtækisins á að fá þá til
að vinna saman ekki síst vegna
ánægju með afrakstur samstarfs
þeirra í Layer Cake. Ekkert varð þó úr
neinum samningarviðræðum.
Leikstjórarnir Quentin Tarantino og
John Woo lýstu báðir yfir áhuga sínum
á verkefninu. Það hefði vissulega verið
forvitnilegt að sjá hvernig Tarantino
hefði afgreitt Bond en hann hefur
sjálfur sagst vera mikill aðdáandi
leyniþjónustumannsins. Þrátt fyrir
ákafa Broccoli-fjölskyldunnar að vilja
endurnýja 007 sem mest ákváð hún þó
að tefla ekki á tvær hættur hvað varð-
ar karlinn í brúnni. Leikstjórinn Mart-
in Campbell var kallaður til verksins.
Þessi Ný-Sjálendingur var fenginn til
að lyfta Bond upp á nýtt plan eftir að
Timothy Dalton hafði nánast drepið
spjæjarann ódrepandi með túlkun
sinni. Það má segja að það herbragð
hafi heppnast fullkomlega með mynd-
inni GoldenEye sem var einmitt fyrsta
myndin með Pierce Brosnan. Campbell
gerði í kjölfarið Mask of Zorro og Vert-
ical Limit. Campbell er að leggja loka-
höndina á Legend of Zorro og mun síð-
an hella sér út í Bond-verkefnið af full-
um krafti.
Áhætta sem borgar sig?
Ljóst er að Bond-fyrirtækið ætlar að
taka mikla áhættu og velja ungan leik-
ara í staðinn fyrir hinn reynda.
Jonathan Rhys Meyers, sem lék í
Bend it Like Beckham, var einn
þeirra sem nefndur var en hann segist
sjálfur aldrei hafa falast eftir því. „Að
leika svalasta ofurspæjara sem hefur
gengið á þessari jörðu er eitthvað sem
alla langar til að gera en minn tími er
ekki kominn.“ Þetta viðhorf endur-
speglar eflaust spár markaðssérfræð-
inga. Fáir ungir leikarar vilja festast í
rullu sem hingað til hefur einkennst
af heldri, virðulegum mönnum. „Bond
verður alltaf að líta vel út í jakkaföt-
um,“ sagði einn heimildamaður
Hollywood Reporter.
Julian McMahon, sem
þekktastur er fyrir leik sinn
í Nip/Tuck, lét nýlega mynda
sig fyrir auglýsingu þar sem
hann stóð í Bond „stelling-
unni“ með byssu í hendi. Það
var altalað að McMahon
hefði aldrei samþykkt þessa
myndatöku ef hann renndi
ekki hýru auga til hlutverks-
ins. Honum hefur þó ekki
verið boðið að samningaborð-
inu. Vafalaust hefur misjafnt
gengi Fantastic Four haft eitt-
hvað með það að gera.
Kvikmyndavefir hafa verið
duglegir við að leyfa lesendum
sínum að láta skoðun sína í
ljós. Total Film Magazine,
birti í sumar niðurstöður
sínar og þar kom í ljós að
flestir vilja Jude Law í
hlutverkið. Það verður þó
að teljast ólíklegt enda er
hann af þeirri stærð-
argráðu að hann myndi
ekki hætta ferli sínum
með því að taka hlut-
verkið að sér.
Af því sem hefur verið rit-
að og rætt í Hollywood að
undanförnu má ætla að ein-
hver stærsta stjarna kvik-
myndanna sé í kreppu og ekki
seinna vænna að leysa hana.
Aðstandendur Bond-mynd-
anna þurfa að fara að öllu með
gát því eins og Brosnan sagði
sjálfur að þau þrjú orð sem
honum hefði fundist erfið-
ast að segja í kvikmynd
væru:„Bond, James Bond.“
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
94
88
09
/2
00
5
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Toppur
Verð 3.990kr.
Bolir
Verð frá 1.990kr.
Ræktaðu sjálfa þig!
Toppur
Verð 2.990kr.
Toppur
Verð 3.490kr.
Buxur
Verð 5.990kr.
Jakki
Verð 5.990kr.
Buxur
Verð 4.990kr.
Haustlínan er komin!
Hver er nógu gó›ur fyrir James Bond?