Fréttablaðið - 17.09.2005, Page 56

Fréttablaðið - 17.09.2005, Page 56
40 Kvennali› Vals er a› gera gó›a hluti í Evrópukeppninni og nægir jafntefli gegn Alma frá Kasakstan í dag til fless a› tryggja sig inn í átta li›a úrslitin. Margrét Lára veður í tilboðum FÓTBOLTI Valsstúlkur spila í dag þriðja og síðasta leik sinn í riðla- keppni 16 liða úrslita Evrópu- keppni félagsliða. Þær hafa þegar náð sögulegum árangri með því að vera fyrsta liðið til að komast áfram upp úr 1. umferð en núna er liðið aðeins einum leik frá því að komast í átta liða úrslitin. Ár- angur Valsliðsins hefur vakið mikla athygli úti í Svíþjóð. „Svíarnir elta mann á röndum og eru alveg gáttaðir á þessu liði frá Íslandi. Þeir eru búnir að til- kynna mér það að Margrét Lára fái hér samningstilboð í hrönnum frá sænskum liðum sem og fleiri leikmenn. Þeir skilja heldur ekk- ert í því hvar Dóra María sé því það biðu víst allir eftir að sjá hana,“ segir Elísabet Gunnars- dóttir, þjálfari Vals sem er að gera góða hluti í Evrópukeppninni en riðill þeirra í 2. umferð hennar fer nú fram í Stokkhólmi. Val nægir jafntefli í síðasta leiknum gegn Alma frá Kasakstan á morgun og þá kemst Valsliðið í átta liða úrslitin. Dóra María Lárusdóttir gat ekki verið með þar sem hún er farin út í nám til Bandaríkjanna og Valsstúlkur eru því án eins síns besta leikmanns í þessum leik. Það hefur verið nóg að gera hjá Elísabetu sem hefur verið kölluð í hvert sjónvarps- og útvarpsvið- talið á fætur öðru. „Þeir vildu meina það í um- ræddu útvarpsviðtali sem ég fór í að við værum að spila um þriðja til fjórða sætið í sænsku deildinni og að það gætu allir mínir leik- menn spilað í deildinni. Þetta sögðu þeir mér en ég hef ekkert séð þessa deild þannig að ég verð bara að trúa þeim,“ segir Elísabet en þrjú efstu liðin í sænsku deild- inni eru fyrrverandi tvöfaldir Evrópumeistarar: Umeå, Ásthild- ur Helgadóttir og félagar hennar í Malmö FF og svo lið Djurgården/Älvsjö sem vann Valsliðið naumlega með marki í uppbótartíma í fyrsta leiknum í riðlinum. „Þeir eru að dásama okkur út í eitt og ég var beðin um að lýsa hvernig við högum þjálfuninni á Íslandi. Þetta er því góð auglýsing fyrir íslenskan kvennafótbolta. Loksins erum við komin á þennan stall og vonandi fylgja Blikar þessu eftir á næsta ári. Við þurf- um að verða Evrópumeistarar til þess að geta aftur verið með á næsta ári,“ segir Elísabet en að- eins meistarar hvers lands fá þátttökurétt. ooj@frettabladid.is 17. september LAUGARDAGUR Keppni verður í gangi á meðan hátíðinni stendur milli deilda Ármanns, í “tugþraut”, þar sem allar deildir eiga að keppa í grein hinna deildanna. Viðkomandi deild má þó ekki taka þátt í keppni hjá sinni eigin deild. Ármannsdagurinn sunnudaginn 18. september Glímufélagið Ármann heldur Ármannsdaginn hátíðlegan, á morgunn 18. september í Laugardalshöllinni. Allar deildir Ármanns munu vera með kynningu á starfsemi sinni. En deildir Ármanns eru: Almenningsdeild, Fimleikadeild, Frjálsar íþróttir, Glíma, Júdó, Karfa, Lyftingar, Sund, Taekwondo, Handbolti og Skíðadeild. Dagskrá: 14:00 Hátíðin sett. 14:00 Kynningarbásar opna 14:00 Glímukennsla 14:15 Henrik Daníelsen skólastjóri Hróksins teflir fjöltefli. 14:15 Glímukeppni 14:30 Júdó sýning 14:30 Keppni í götu körfubolta (úti) 14:50 Fimleika sýning 15:00 Almenningshlaup, 3 og 5 km 15:15 TaeKwondo sýning 15:45 Verðlauna afhending fyrir almenningshlaup, “tugþrautar” keppni, Glímukeppni og fjölteflis. 16:10 Júdó sýning 16:30 Fimleika sýning 16:45 Taekwondo sýning 17:00 Hátíðarslit ■ ■ LEIKIR  14.00 Grindavík og Keflavík mætast á Grindavíkurvelli í Landsbankadeild karla.  14.00 Valur tekur á móti Þrótti að Hlíðarenda í Landsbankadeild karla.  14.00 ÍA og KR mætast á Akranesvelli í Landsbankadeild karla.  14.00 Fylkir og ÍBV mætast á Árbæjarvelli í Landsbankadeild karla.  14.00 Fram og FH eigast við á Laugardalsvelli í Landsbankadeild karla.  14.15 Haukar og Stjarnan eigast við í Meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki í handbolta að Ásvöllum.  16.00 Fjölnir og ÍS mætast í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik í íþróttahúsi Rimaskóla.  16.15 Haukar og ÍR eigast við í Meistarakeppni HSÍ í karlaflokki í handbolta að Ásvöllum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 14 15 16 17 18 19 20 Laugardagur SEPTEMBER Almennur hluti 1a ÍSÍ mun bjóða upp á hádegisverðarfundi nú í vetur. Fyrsti fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 22. september, en þar verður fjallað um Íþróttamannvirki. Þátttakendur geta verslað hádegisverð hjá Café easy sem staðsett er í Íþróttmiðstöðinni í Laugardal en aðgangur að fundinum sjálfum er ókeypis. Fundurinn er öllum opinn. Frekari upplýsingar um hádegisverðarfundi ÍSÍ má finna á www.isisport.is Þ já lf ar an ám sk ei ð Í S Í Þjálfaranámskeið ÍSÍ www.isisport.is Helgina 23. – 25. september verður Þjálfari 1a – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Lágmarksaldur þátttakenda er 16 ár Námskeiðið er undanfari annara námskeiða sem síðar verður boðið uppá og þannig fyrsta námskeiðið í samræmdu kerfi íþróttahreyfingarinnar. Námskeiðið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjálfarastigs 1a hlýtur réttindi sem aðstoðarmaður eða leiðbeinandi hjá íþróttaskóla eða yngstu flokkum. Verð á námskeiðið er kr. 12.000,- Skráningar þurfa að berast á netfangið namskeid@isisport.is eða í síma 514-4000 í síðasta lagi miðvikudaginn 21. september. Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru gjaldgengir á Almennan hluta 1b. Þeir sem hafa lokið ÍÞF102, ÍÞG1x2 í framhaldsskóla og Skyndihjálpar- námskeiði eru gjaldgengir á Almennan hluta 2a. Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar fæst metin til eininga í framhaldsskólum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Frekari upplýsingar má finna á www.isisport.is Hádegisverðarfundir ■ ■ SJÓNVARP  12.00 Enski boltinn Leikur Preston og Stoke City.  13.40 Landsbankadeildin á Sýn. Fylgst með þremur leikjum: Grinda- vík-Keflavík, Fram-FH og Fylkir-ÍBV.  14.15 Meistarakeppnin í hand- bolta á RÚV. Leikur Hauka og Stjörn- unnar í kvennaflokki sýndur í beinni.  15.50 Íslandsmótið í handbolta á RÚV.  16.00 Enska úrvalsdeildin í knatt- spyrnu á Enska boltanum. Leikur Aston Villa og Tottenham í beinni út- sendingu.  16.15 Meistarakeppnin í hand- bolta á RÚV. Leikur Hauka og ÍR í karlaflokki sýndur í beinni.  17.30 Landsbankamörkin á Sýn.  19.50 Spænski boltinn á Sýn. Leik- ur Real Madrid og Celta Vigo.  20.30 Enska úrvalsdeildin í knatt- spyrnu á Enska boltanum.  22.00 Landsbankadeildin á Sýn. Útsending frá leikjum dagsins endur- sýnd.  23.50 Landsbankamörkin á Sýn. Á LEIÐINNI TIL SVÍÞJÓÐAR Margrét Lára Viðarsdóttir hefur vakið mikla athygli með Val í Evrópukeppn- inni og hrúgast tilboð inn á hennar borð frá liðum í sænsku úrvalsdeild- inni. Styttist í að þjálfaramálin í Árbænum skýrist: Bræ›urnir Eyjólfur og Sverrir næstu fljálfarar Fylkis? FÓTBOLTI Mikill áhugi er fyrir því innan raða Fylkis að ráða bræð- urna Eyjólf og Sverri Sverrissyni í sameiningu sem næstu þjálfara félagsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sverrir tók við Fylkisliðinu af Þorláki Árnasyni og stýrði til sigurs gegn FH í síð- ustu umferð. Eyjólfur stýrir U21 árs lands- liði Íslands en samningur hans rennur út í haust. Eyjólfur er tal- inn koma til greina sem arftaki Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar hjá A-landsliðinu og það gæti sett strik í reikning Fylk- is. Stjórnarskipti verða hjá knatt- spyrnudeild Fylkis í haust en nú- verandi stjórn ætlar að ganga frá þjálfararáðningu áður en hún hættir. Sverrir og Eyjólfur eru þar efstir á blaði eftir að Ólafur Þórðarson endurnýjaði samning sinn við ÍA. Ekki náðist í þá bræð- ur í gær. - þg Ágúst Gylfason: Ekki hættur í fótbolta FÓTBOLTI Ágúst Gylfason, miðju- maður KR-inga, blæs á allar sögu- sagnir þess efnis að hann sé annað hvort að hætta í fótbolta eða að snúa sér að þjálfun. Samningur hans við KR rennur út í haust. „Ég reikna ekki með öðru en að halda áfram að spila, ég á nóg eft- ir og hef sjaldan verið ferskari. Ég sé til hverjir hafa samband í haust en ég gæti alveg hugsað mér að vera áfram í KR. Þar eru spennandi hlutir að gerast með komu Teits Þórðarsonar. Þjálfun bíður betri tíma,“ segir Ágúst. KR mætir ÍA á Akranesi í loka- umferðinni en Ágúst verður fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Hann hefur verið meiddur í hásin og segist þurfa að fara í aðgerð í haust. - þg Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu: FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðið í fótbolta hefur hækkað um eitt sæti á styrkleikalista FIFA, alþjóða knattspyrnusambands- ins, sem gefinn var út í gær. Ís- land er nú í 17. sæti listans og hafði sætaskipti við Holland. Ástralía er í næsta sæti fyrir ofan. Ef einungis Evrópuþjóðir eru skoðaðar er Ísland í 10. sæti. Hækkunina má þakka góðu jafntefli sem lið Íslands náði í Svíþjóð og 3-0 sigrum á Hvít- Rússum í kjölfarið. Þá unnu ís- lensku stúlkurnar lið Skota ytra, 2-0, og töpuðu fyrir liði Banda- ríkjanna, 3-0. Alls eru 124 knattspyrnuþjóð- ir á listanum og því óhætt að segja að staða Íslands á listanum sé með eindæmum góð. - esá Hækkar um eitt sæti hjá FIFA EYJÓLFUR GJAFAR SVERRISSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.