Fréttablaðið - 17.09.2005, Side 60

Fréttablaðið - 17.09.2005, Side 60
15. sýn. sun. 18/9 kl. 14 16. sýn. fim. 29/9 kl. 19 Lau. 17. september Fös. 23. september Fös. 30. september Lau. 1. október STÓRA SVIÐ KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Su 18/9 kl 14 UPPSELT, Su 25/9 kl 14, Lau 1/10 kl. 14, Su 2/10 kl. 14 WOYZECK - 5 FORSÝNINGAR Í SEPT. Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt. Miðaverð á forsýningu aðeins kr. 2.000,- Su 18/9 kl. 21, Fö 23/9 kl 20, Fi 29/9 kl 20 UPPSELT, Fö 30/9 kl 20, Lau 1/10 kl 20 (sýning á ensku) HÍBÝLI VINDANNA Örfáar aukasýningar í haust. Lau 24/9 kl. 20, Su 25/9 kl. 20, Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ MANNTAFL Miðaverð á forsýningar kr. 1.000,- Í dag kl. 14 Forsýning Su 18/9 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELTL Su 25/9 kl. 20, 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20RILLJANT ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Í kvöld kl 20 UPPSELT, Fi 22/9 kl. 20 UPPSELT, Fö 23/9 kl. 20 UPPSELT, Lau 24/9 kl. 20 UPPSELT, Má 26/9 kl. 20, aukasýn. Fi 29/9 kl. 20 UPPSELT, Fö 30/9 kl. 20 UPPSELT, Lau 1/10 kl 16 aukasýn. Lau 1/10 kl. 20 UPPSELT, Fi 6/10 kl. 20 aukasýn. Sími miðasölu 568 8000 midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudag Endurnýjun áskriftarkorta stendur yfir Ef þú gerist áskrifandi fyrir 20. september færðu að auki gjafakort á leiksýningu að eigin vali - Það borgar sig að vera áskrifandi - 44 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 15 16 17 18 19 Laugardagur SEPTEMBER 17. september LAUGARDAGUR „Það eru til sögur af því að menn hafi teflt yfir sig á sama hátt og menn hafa lesið yfir sig. Menn hafa orðið gersamlega helteknir af þessu,“ segir Þór Túliníus leik- ari, sem á morgun frumsýnir í Borgarleikhúsinu einleik sinn eft- ir sögu Stefans Zweig, Manntafli. Þessi fræga smásaga gerist um borð í farþegaskipi þar sem dular- fullur maður etur kappi við heimsmeistarann í skák. Maður- inn hafði haldið styrk sínum í ein- angrunarfangelsi nasista með því að iðka skáklistina, en var fyrir bragðið næstum búinn að missa vitið. Sagan Manntafl kom út um miðja síðustu öld og var fljótlega þýdd á íslensku. Hún hefur haldið fjölmörgum lesendum föngnum og Þór segist hafa heillast af henni strax á unglingsárum. „Þessi saga höfðar til mín á of- boðslega marga vegu. Hún skoðar mannveruna við mjög öfgakennd- ar aðstæður og það er alltaf áhugavert. Hvað gerir maður til dæmis þegar maður er sviptur öll- um samskiptum við annað fólk. Svo er þetta einhver besta lýsing á fíkn sem ég hef nokkurn tímann á ævinni séð. Þetta er maður sem missir stjórn á tilverunni og verð- ur svona ofboðslega heltekinn af skáklistinni.“ Hann segir ýmis tilefni til þess að setja þetta verk á svið núna. Til dæmis eru sextíu ár liðin frá lok- um seinni heimsstyrjaldarinnar, auk þess sem skákáhugi hér á landi hefur varla nokkru sinni verið meiri en einmitt núna. Leikgerðin er eftir Þór sjálfan, sem segist fyrst og fremst reyna að vera trúr sögunni. „Ég geri mitt ítrasta til að flytja þessa sögu á sviðinu og nota þessa gömlu þýðingu hans Þórar- ins Guðnasonar sem er alveg frá- bær. Þessi saga er svo ótrúlega vel uppbyggð og mér finnst líka svo merkilegt að saga um skák skuli vera spennusaga. Maður er gripinn alveg frá byrjun.“ ■ ■ KVIKMYNDIR  16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn- ir amerísku Hollywoodmyndina Charade frá árinu 1962. Myndin er bæði spennumynd og rómantísk gamanmynd og skartar stórstjörnun- um Audrey Hepburn og Cary Grant í aðalhlutverkum. Sýningar Kvik- myndasafnsins fara að vanda fram í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði. ■ ■ TÓNLEIKAR  17.00 Stefán Helgi Stefánsson tenór og Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran halda tónleika í Ketilhúsinu á Akureyri í anda Sigurveigar Hjalte- sted, ömmu Ingibjargar, og Stefáns Íslandi, langafa Stefáns.  19.00 Skurken, Benni B-Ruff, Hermigervill og Twisted Minds Crew koma fram á tónleikum vegna GATA á Íslandi, sem haldnir verða á Prikinu. Á Vegamótastíg verður D.J. De La Rósa að spila frá kl. 14 til 18 á meðan Grafittihópurinn gerir listir sínar á vegginn.  23.00 Tónleikar á Grand Rokk með Severed Crotch, Potentian og Gavin Portlane. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Opið hús verður í Þjóðleik- húsinu þar sem leikárið verður kynnt í tali og tónum. Dagskráin hefst á Stóra sviðinu og er aðgangur ókeypis.  20.00 Önnur sýning á Himnaríki eftir Árna Ibsen í Hafnarfjarðarleik- húsinu. HAMSLAUS VIÐ SKÁKBORÐIÐ Þór Túliníus frumsýnir á morgun einleikinn Manntafl á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Heltekinn af skáklistinni > Ekki missa af ... …fyrstu forsýningu Vesturports á Woyzeck í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Frumsýning á verkinu verður úti í London 12. október og síðan hér í Reykjavík 28. október. ...fyrirlestri Hannesar Jónssonar efna- fræðings í Háskólabíói í dag, þar sem hann skýrir frá leyndardómum nanó- tækninnar og nýtingu hennar í tengslum við orkumál. ...tónleikum Elínar Halldórsdóttur söngkonu í Listasafni Íslands á morgun. Sautjándu aldar dansleikur verður haldinn í Skálholti á morgun í fyrsta sinn á Íslandi í meira en 300 ár. Tilefnið er dagskrá helguð fjögurra alda minningu Brynjólfs Sveinssonar biskups. Í dag heldur áfram í Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík ráðstefna um Brynjólf og samtíma hans, en jafnframt stendur þar yfir sýning þar sem fjallað er um ævi og verk Brynjólfs. Á morgun verður ráðstefnunni síðan haldið áfram í Skálholti þar sem ýmislegt verður gert til þess að minna á sautjándu öldina. Auk fyr- irlestra verða 17. aldar flaututónleikar, 17. ald- ar messa og 17. aldar kvöldverður. Dagurinn endar svo á 17. aldar dansleik sem Ingibjörg Björnsdóttir listdansari leiðir. Líklegt er að slíkum dansleik hafi ekki verið slegið upp á Íslandi í meira en 300 ár. Dagskráin er öllum opin og eru áhugasamir hvattir til að koma. Rútuferð verður frá Þjóð- arbókhlöðunni klukkan 9.15 í fyrramálið. Á mánudaginn verða síðan flaututónleikar í Norræna húsinu þar sem danski flautukórinn Hørsholm Fløjteensemble, sá hinn sami og kemur fram í Skálholti á sunnudaginn, leikur meðal annars verk eftir Haydn, Debussy, Ibert og Brahms. Kl. 14.00. Kristín Ragna Gunnarsdóttir opn- ar sýningu á myndum sínum við ljóð Þórarins Eldjárns, Völuspá, þar sem hin forna gerð kvæðisins er gerð aðgengileg fyrir börn á öll- um aldri, í Grafíksafni Íslands, sal Íslenskrar grafíkur hafnarmegin í Hafnarhúsinu. menning@frettabladid.is Nútímadansveisla í Borgarleikhúsinu !

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.