Fréttablaðið - 17.09.2005, Page 65
LAUGARDAGUR 17. september 2005 65
Átján nemendur í leiklistaráfanga
við Menntaskólann í Hamrahlíð
ætla að halda spunamaraþon í skól-
anum í dag. Tilefnið er ferðalag
hópsins til London í nóvember þar
sem krakkarnir ætla að kynna sér
leikhús og leiklistarskóla.
„Við ætlum að leika spunaleik í
tólf tíma samfleytt, frá klukkan
átta að morgni til klukkan átta að
kvöldi,“ segir Katrín Björgvins-
dóttir, ein úr leiklistarhópnum.
„Þetta útheimtir mikið ímynd-
unarafl og orku og skemmtileg-
heit.“
Flestir nemendurnir í þessum
leiklistaráfanga hafa lengi verið
virkir í leiklistarstarfinu í MH og
sótt flesta þá leiklistaráfanga sem í
boði hafa verið.
„Við stofnuðum þennan áfanga
sjálf og kennararnir tóku mjög vel
í það. Þeir settu bara inn nýjan
áfanga. Þetta er sérstakur leikhús-
áfangi þar sem við lærum um leik-
húslíf, bæði á Íslandi og erlendis.“
Leikhúsferðin til London er
hluti af þessum áfanga, en spuna-
maraþonið í dag hefur þann tilgang
að afla fjár til ferðarinnar.
„Við höfum fengið áheit frá
fyrirtækjum, þau heita á okkur í
mislangan tíma hvert.“
Sjón verður sögu ríkari í dag
þegar átján ungmenni fara af stað
með spuna sinn í hátíðarsal skól-
ans. Fyrir fram er engin leið að
vita við hverju má búast. ■
Spunameistarar reyna á ímyndunarafli›
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Britney Spears í sk‡junum
Söngkonan Britney Spears segist
vera í skýjunum eftir að hafa alið
sitt fyrsta barn nú á dögunum.
Söngkonan, sem er 23 ára, sagði að
hún og sonur hennar hefðu það
yndislegt. Britney átti drenginn á
spítalanum í Santa Monica aðeins
hálftíma eftir komu hennar á fæð-
ingardeildina. Hún gekk í gegnum
fyrir fram ákveðinn keisaraskurð.
Eiginmaður hennar, Kevin
Federline, hélt í hönd hennar allan
tímann.
Eftir fæðinguna gaf parið út yf-
irlýsingu sem var svohljóðandi:
„Við erum í skýjunum yfir fæðingu
sonar okkar. Allir eru hamingju-
samir og hraustir og líður frábær-
lega. Við viljum þakka öllum fyrir
þá væntumþykju sem okkur hefur
verið sýnd og allar hamingjuósk-
irnar.“ Samkvæmt bandarískum
fjölmiðlum heitir drengurinn fullu
nafni Preston Michael Spears
Federline. Haft er eftir vinkonu
Britney að það sé „ekki hægt að
slíta hana frá barninu. Hún virðist
svo hamingjusöm.“ Söngkonan fór
aldrei leynt með það að hún vildi
eignast börn með Kevin, en hann á
fyrir tvö börn með fyrrverandi
kærustu sinni.
BRITNEY SPEARS Er í sjöunda himni
eftir að sonur hennar kom í heiminn.
Gwyneth Paltrow segist hræddvið að það sama hendi hana og
Díönu prinsessu vegna
ágangs fjölmiðla, en
prinsessan lést í bílslysi
árið 1997 þegar hún var
að flýja undan fjölmiðl-
um. Gwyneth segist líka
óttast um dóttur
sína, Apple. „Þegar
ég er með dóttur
minni í bíl gera
þeir mig oft mjög
stressaða. Ég geri
hvað sem er til
að vernda hana,“
segir leikkonan
ljóshærða.
Þær fréttir berast að söngkonanMariah Carey hafi hug á að
flytja til Englands. Hún hefur fengið
þrjá fasteignasala til að finna land-
svæði fyrir sig og hund sinn Jack
Russell á næsta ári. Vinur söngkon-
unnar segir, „Mariah hefur alltaf haft
mikið álit á Englandi, og síðan
frægðin bankaði á dyrnar hjá henni
hefur hún haft tækifæri til að heim-
sækja England
nokkrum sinnum. Í
hvert sinn sem hún
hefur svo komið
aftur til Banda-
ríkjanna hefur
hún verið
sorgmædd.
Mariah elskar
enska sögu og
menningu og
finnst allir þar
svo kurteisir.“
Anthony Hopkins hefur steinhættað skrifa eiginhandaráritanir því
hann segir að margir aðdáendanna
vilji fá þær til að selja á eBay. Hopk-
ins leikur í myndinni Proof ásamt
Gwyneth Paltrow. Hann sagði ný-
verið í viðtali við New York Post:
„Mér er nokkuð sama um sjón-
varpsþættina sem ég þarf að taka
þátt í. Það er mín vinna að reyna að
selja myndina mína. Ég þoli hins
vegar ekki þegar
það er verið að
reyna að not-
færa sér mann.
Þegar fólk biður
mann um
eiginhandar-
áritanir og
selur þær
svo á eBay.
Það er pirr-
andi og þess
vegna er ég
hættur því.“
Sarah Jessica Parker heldur þvífram að leyndarmál hamingju-
sams hjónabands sé að eyða tíma
saman og hún vill
halda sambandi
sínu við eigin-
mann sinn
Matthew
Broderick á
rómantískum
nótum. Þau
giftu sig
árið
1997 og
hjóna-
band
þeirra
virðist
mjög gott.
Hún segir: „Við
höfum aldrei
eytt meira en
tveimur vikum
í burtu frá
hvort öðru. Það
er það einfalt.“
FRÉTTIR AF FÓLKI
SPUNAMEISTARAR
Átján nemendur við
MH efna til spuna-
maraþons í dag.