Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,61 61,91
110,03 110,57
74,66 75,08
10,004 10,062
9,582 9,638
7,97 8,016
0,5524 0,5556
89,74 90,28
GENGI GJALDMIÐLA 23.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
104,9294
4 26. september 2005 MÁNUDAGUR
Fjárfestingarfélag Hannesar Smárasonar kaupir í auglýsingastofu:
Prímus kaupir helmingshlut í Fíton
VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið
Prímus í eigu Hannesar Smára-
sonar hefur keypt helmingshlut í
Grafít sem á auglýsingaskrifstof-
una Fíton, Máttinn og Dýrðina
auglýsingastofu og Auglýsinga-
miðlun. Með þessum kaupum
hefur Prímus eignast helmings-
hlut í Fíton. Þormóður Jónsson,
einn af eigendum Fítons, segist
ekki geta gefið upplýsingar um
söluverð að svo stöddu. Upphaf-
legir eigendur Fítons skipta jafnt
með sér helmingshlut á Prímus.
Þormóður segir söluna ekki
vera vegna rekstrarerfiðleika
fyrirtækisins. „Kaupin eru ekki
til að bjarga fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins heldur til að styrkja
stöðu þess,“ segir Þormóður, sem
er bjartsýnn á framhaldið. Hann
segir það kost að hafa svo stóran
fjárfesti í auglýsingabransanum.
Þormóður segir enn fremur að
engar breytingar séu fyrirhugað-
ar á rekstri stofunnar í kjölfarið á
sölunni. Hann segir fyrirtækið
dafna vel og áfram verði haldið á
sömu braut. - jóa
Hægriflokkar fá
öruggan meirihluta
Tveir hægriflokkar voru afgerandi sigurvegarar flingkosninga sem fram fóru í
Póllandi í gær. Samkvæmt fyrstu tölum í gær höf›u fleir fengi› rúmt 51
prósent atkvæ›a. Fráfarandi stjórnarflokkur vinstrimanna bei› afhro›.
PÓLLAND, AP Fyrstu tölur í þing-
kosningunum sem fram fóru í Pól-
landi í gær bentu til að spár
gengju eftir um afgerandi sigur
tveggja hægriflokka, sem hafa
boðað stjórnarsamstarf. Vinstri-
flokkarnir, sem sigruðu stórt í síð-
ustu þingkosningum fyrir fjórum
árum, biðu afhroð.
Samkvæmt útgönguspá pólska
ríkissjónvarpsins fékk íhalds-
flokkurinn Lög og réttlæti 27,6
prósent atkvæða en flokkur
frjálshyggjumanna, Borgaravett-
vangur, fékk 24,1 prósent. Fylgi
Lýðræðislega vinstribandalags-
ins, arftaka pólska kommúnista-
flokksins sem fékk um 41 prósent
atkvæða í kosningunum fyrir
fjórum árum, hrapaði niður í rúm
ellefu prósent nú, samkvæmt út-
gönguspánni. Kjörsókn var lítil
eins og reynar í flestum kosning-
um sem fram hafa farið í Póllandi
frá því kommúnisminn féll.
Úrslitin sýna afgerandi vilja
pólskra kjósenda til stjórnar-
skipta. Báðir hægriflokkarnir
eiga rætur í Samstöðu, verkalýðs-
hreyfingunni sem gegndi burðar-
hlutverki í að steypa kommúnista-
stjórninni á níunda áratugnum.
En líkt og þýskir kjósendur
gerðu í þingkosningunum þar í
landi fyrir viku heyktust pólskir
kjósendur á því að veita þeim
sem lengst vildu ganga í efna-
hagsumbótum umboð til að
hrinda þeim í framkvæmd, með
því að veita íhaldsflokknum for-
skot á frjálshyggjuflokkinn, en í
skoðanakönnunum höfðu hlutföll-
in verið alveg á hinn veginn.
Laga- og regluflokkurinn leggur
meiri áherslu á að standa vörð um
velferðarkerfið, þrátt fyrir að
boða efnahagsumbætur með
minni ríkisafskiptum, en í landi
þar sem atvinnuleysi er sam-
kvæmt opinberum tölum tæp
átján prósent eru margir
áhyggjufullir yfir því hvernig
sparnaðaraðgerðir í ríkisrekstr-
inum muni snerta þá sjálfa.
Samkvæmt útgönguspánum
var gert ráð fyrir að hægriflokk-
arnir fengju 303 af 460 þing-
sætum. Það er öruggur meirihluti,
en fjórum þingsætum undir þeim
tveimur þriðju þingsæta sem þeir
þyrftu að ráða yfir til að geta
komið stjórnarskrárbreytingum í
gegn.
Miðað við að þessi úrslit
gengju eftir var líklegast að leið-
togi Laga og réttlætis, Jaroslaw
Kaczinsky, yrði forsætisráðherra.
En hann hefur sagt að hann myndi
ekki gefa kost á sér í embættið ef
svo skyldi fara að eineggja tví-
burabróðir hans, Lech Kaczynski,
yrði kjörinn forseti lýðveldisins.
Forsetakosningar fara fram í
október og Kaczynski er sá fram-
bjóðandi sem mests fylgis nýtur
samkvæmd skoðanakönnunum.
audunn@frettabladid.is
Aron Pálmi Ágústsson:
Í ney›arsk‡li
í Dallas
ÓVEÐUR Aron Pálmi Ágústsson er
nú staddur í neyðarskýli í Dallas
en hann var færður þangað vegna
fellibylsins Ritu.
„Mér líður ágæt-
lega en ástandið
er ekki svo gott.
Það eru þúsundir
manns hér í einu
skýli og þetta er
mjög erfitt,“ sagði
Aron niðurdreg-
inn.
„Ég hef ekki
enn fengið færi á
að hitta fjölskyldu mína og fæ það
ekki í bráð því þau þurftu að fara
aftur til Houston. Þau senda mér
hins vegar peninga og ég er þeim
afar þakklátur.“ Aron segir veðr-
inu hafa slotað en að skemmdirn-
ar séu jafnframt gífurlegar. „Ég
veit ekki hvenær ég kemst heim
og hef enga hugmynd hvort heim-
ili mitt sé óskaddað,“ segir Aron,
sem að eigin sögn lætur sig
dreyma um að komast bráðum til
Íslands. - bog
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Dagur B. Egg-
ertsson notaði 25 tonna beltagröfu við
skóflustungu að nýrri bensínstöð.
Skóflustunga að bensínstöð:
Sjötta stö›
Atlantsolíu
BENSÍNSTÖÐ Skóflustunga var tekin
að nýrri bensínstöð Atlantsolíu í
gær. Þetta verður sjötta bensín-
stöð Atlantsolíu og er áætlað að
hún verði opnuð innan þriggja
mánaða. Stöðin verður með svip-
uðu sniði og þær fyrri. Hugi
Hreiðarsson, markaðsstjóri
Atlantsolíu, segir þetta vera hluta
af auknu samkeppnisafli sem
fyrirtækið vilji veita neytendum
og að forsvarsmenn Atlantsolíu
sæki í að styrkja sig enn frekar á
samkeppnismarkaði.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi og formaður skipulags-
ráðs Reykjavíkurborgar, tók
fyrstu skóflustunguna að nýju
stöðinni, sem meðal annars er ætl-
að að þjóna íbúum Grafarvogs,
Grafarholts og Mosfellsbæjar.
Stöðin mun rísa að Bíldshöfða á
lóð Húsgagnahallarinnar. - jóa
Öryggi, gæði og stíll
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
Y
A
M
2
94
96
7/
20
05
FATNAÐUR
www.yamaha.is
Full búð af Nazran
mótorhjólafatnaði á
ótrúlega hagstæðu
verði.
Yamaha-búðin, Nýbýlavegi 2,
200 Kópavogi, s. 570 5300.
Xtra, Njarðarbraut 19,
260 Reykjanesbæ, s. 421 1888.
Toyota, Baldursnesi 1,
603 Akureyri, s. 460 4300.
ARON PÁLMI
Hann hefur ekki
fengið að hitta
fjölskyldu sína.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst:
N‡tt rann-
sóknarsetur
HÁSKÓLI Fyrsti fundur stjórnar
Rannsóknarseturs vinnuréttar og
jafnréttismála var haldinn á laug-
ardag. Setrið starfar á grundvelli
samstarfssamnings á milli félags-
málaráðherra og Viðskiptaháskól-
ans og er ætlað að vera miðstöð
fræðilegra rannsókna hér á landi
á sviði vinnuréttar og jafnrétt-
islöggjafar. Þá mun rannsóknar-
setrið efla tengsl rannsókna og
kennslu í vinnurétti og veita nem-
endum við Viðskiptaháskólann
faglegan stuðning við eigin rann-
sóknir.
Forstöðumaður er Elín Blön-
dal, dósent við skólann. - jóa
SIGRI FAGNAÐ Kátt var á kosningavöku íhaldsflokksins Lög og réttlæti í Varsjá í gærkvöld.
M
YN
D
/A
P
HANNES SMÁRASON
Prímus fjárfestir í
auglýsingastofu.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
BENEDIKT VILL 7. SÆTIÐ
Benedikt Geirsson hefur ákveðið
að gefa kost á sér í sjöunda sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar. Benedikt starfar hjá
Ístaki en starfaði um langt bil hjá
SPRON. Benedikt hyggst leggja
áherslu á íþrótta- og tómstunda-
mál auk velferðarmála.