Fréttablaðið - 26.09.2005, Qupperneq 12
SVISS, AP Svisslendingar sam-
þykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í
gær að borgurum hinna tíu nýju
aðildarríkja Evrópusambandsins
yrði heimilt að leita sér að vinnu í
Sviss, samkvæmt sömu skilmál-
um og öðrum borgurum Evrópska
efnahagssvæðisins.
Um 56 af hundraði svissneskra
kjósenda greiddu atkvæði með til-
lögu ríkisstjórnarinnar um að opna
fyrir frjálsa för vinnuafls milli
Sviss og ríkjanna tíu sem gengu í
Evrópusambandið og EES hinn 1.
maí í fyrra, átta fyrrverandi aust-
antjaldslanda og Miðjarðarhafs-
eyríkjanna Kýpur og Möltu. Í
Sviss var málið mjög umdeilt og
því þykir samþykkt tillögunnar
mikilvægur áfangi að því að tengja
Sviss Evrópusamrunanum nánar.
Fyrir fjórum mánuðum sam-
þykktu Svisslendingar aðild lands-
ins að Schengen-vegabréfasam-
starfinu. Sviss er hvorki aðili að
Evrópusambandinu né Evrópska
efnahagssvæðinu en er nátengt
því með tvíhliða samningum við
ESB. Samningarnir um Schengen-
aðildina og frjálsa för vinnuafls
eru nýjustu viðbæturnar við þessa
tvíhliða samninga. - aa
FRÖNSK BÖRN Franska ríkisstjórnin hvetur Frakka til að eignast fleiri börn.
STRÍÐI MÓTMÆLT Tugþúsundir manna
tóku um helgina þátt í fjöldamótmælum í
Washington gegn stríðsrekstri Bandaríkj-
anna í Írak. Hér er mótmælendagangan
við Hvíta húsið.
12 26. september 2005 MÁNUDAGUR
Borgarar hinna tíu nýju aðildarríkja Evrópusambandsins mega leita sér að vinnu í Sviss:
Opna› fyrir frjálsa för vinnuafls
Mánudagstilboð
stærstu fiskbúða landsins, þar sem úrvalið er mest.
Aðeins eitt verð
890,kr/kg
Allur fiskur á sama verði!!
Skötuselur, lúðusneiðar, lúðuflök, fiskréttir, marineraður
fiskur, siginn fiskur, reyktur fiskur, rauðspretta, steinbítur,
ýsuflök o.fl. Gildir aðeins um nýjan og ferskan fisk.
Gildir aðeins í dag mánudag.
SÝSLUMENN Lárus Bjarnason lætur
af embætti sýslumanns á Seyðis-
firði í næsta mánuði og tekur
hann við starfi hjá Tollstjóranum í
Reykjavík. Ástríður Grímsdóttir,
sýslumaður í Ólafsfirði, verður
sett í embætti sýslumanns á Seyð-
isfirði í stað Lárusar 15. október
næstkomandi og mun Ástríður
flytjast búferlum austur. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
verður nýr sýslumaður ekki skip-
aður í hennar stað í Ólafsfirði, að
minnsta kosti ekki fyrst um sinn,
heldur mun sýslumannsembættið
í Ólafsfirði falla undir Björn Jósef
Arnviðarsson, sýslumann á Akur-
eyri.
Þrjú sýslumannsembætti eru
nú á Eyjafjarðarsvæðinu: Á Akur-
eyri, Siglufirði og í Ólafsfirði.
Sameinist þessi þrjú sveitarfélög,
í kjölfar sameiningarkosninganna
8. október, er ljóst að sýslumanns-
embættin á Siglufirði og í Ólafs-
firði verða lögð niður með sama
hætti og sýslumannsembættið í
Neskaupstað var lagt niður með
sameiningu Eskifjarðar, Reyðar-
fjarðar og Neskaupstaðar.
- kk
Hrókeringar innan sýslumannsembættanna:
Ólafsfir›ingar
missa s‡slumann
SÝSLUMAÐURINN Á AKUREYRI Björn Jósef
Arnviðarson mun sinna embættiskyldum í
Ólafsfirði og á Akureyri.
Frönsk stjórnvöld sporna gegn fólksfækkun:
Frakkar hvattir til a›
eignast flrjú börn
FRAKKLAND, AP Franska ríkis-
stjórnin hvetur landa sína til að
eignast þriðja barnið, en láta
ekki staðar numið eftir tvö eins
og flestar franskar fjölskyldur
gera nú. Hefur stjórnin ákveðið
að bjóða aukna fjárhagslega að-
stoð fyrir fjölskyldufólk.
Foreldrum sem taka sér launa-
laust leyfi eftir fæðingu þriðja
barnsins mun bjóðast 750 evrur,
eða rúmar 56.000 krónur, á mánuði
í eitt ár, tilkynnti Dominique de
Villepin forsætisráðherra í gær.
Foreldrar geta átt von á þess-
ari fjárhagsaðstoð frá og með
júlí 2006.
„Við verðum að gera meira til að
gera frönskum fjölskyldum kleift
að eiga eins mörg börn og þær
vilja,“ sagði forsætisráðherrann.
Að meðaltali eignast hver
frönsk kona 1,9 börn á ævinni.
Hver kona þarf að eiga 2,07 börn
til að ekki verði fólksfækkun í
landinu. Sérfræðingar segja að
fólksfækkun geti leitt til þjóð-
félags- og fjárhagslegra vand-
ræða vegna of margra ellilífeyris-
þega. - smk
VELKOMIÐ VINNUAFL Verkafólk af
ýmsu þjóðerni vinnur að melónu-
uppskeru í Seegräben í Sviss.