Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 25
7MÁNUDAGUR 26. september 2005
220 Hafnarfj.: Verönd úti af stofu með hitalögn
Klettahraun 21: Þriggja herb. einbýlishús á einni hæð með bílskúr og fallegum garði.
Lýsing: Gengið er inn í flísalagða forstofu og inni
af henni er flísalögð gestasnyrting. Innangengt er
í flísalagt þvottahús með sturtu. Þvottahúsið er
með sérinngangi og einnig útgangi á baklóð. Inni
af þvottahúsi er búr. Hol er flísalagt og einnig
eldhús sem er með snyrtilegri eldri innréttingu
og borðkróki. Stofa og borðstofa eru flísalagðar
og útgangur er út á verönd. Sjónvarpsholið er
parkettlagt. Herbergjagangur er parkettlagður
með útgangi í garð. Rúmgott hjónaherbergi og
barnaherbergi eru parkettlögð. Baðherbergi er
flísalagt með innréttingu og glugga.
Úti: Við húsið er hellulögð innkeyrsla og 40,9 fm
bílskúr með hurðaopnara, rafmagni og geymslu-
lofti. Úti af stofunni er falleg steypt verönd með
hitalögn. Garðurinn er fallegur og í góðri rækt.
112 Reykjavík: Raðhúsaíbúð á góðum stað
Fífurimi 48: Fjögurra til fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum og með risi.
Lýsing: Komið er inn í forstofu með ljósum flísum
og fatahengi, þaðan er gengið inn í parkettlagt hol
og inn á stuttan gang. Á ganginum er snyrtilegt
gestasalerni og gegnt því er þvottahús með dúk á
gólfi, hvítri innréttingu og vaski. Vinstra megin við
holið er borðkrókur og inni af honum er gott eld-
hús. Ljós innrétting er í eldhúsinu og gólfið er flísa-
lagt. Á hæðinni er einnig rúmgóð stofa með park-
etti á gólfum og stórum gluggum í skála. Úr stof-
unni er gengið út í garðinn. Milli borðstofu og stofu
er stór viðarstigi upp á aðra hæð. Á efri hæðinni
eru þrjú góð svefnherbergi, öll með dúkum á gólf-
um og fataskápum. Á hæðinni er einnig stórt flísa-
lagt baðherbergi með baði og sturtuklefa. Af stiga-
pallinum er fellistigi upp í rúmgott risherbergi með
parketti og glugga. Í öllum svefnherbergjunum,
nema einu, er tengi fyrir sjónvarp.
Úti: Garður er við húsið bæði að norðan og sunn-
an.
Annað: Stutt er í skóla og alla þjónustu.
Verð 29,9 milljónir Fermetrar 131,2 Fasteignasala: DraumahúsVerð: 42,9 milljónir Fermetrar: 192,8 Fasteignasala: Höfði