Fréttablaðið - 26.09.2005, Qupperneq 87
MÁNUDAGUR 26. september 2005 27
410 4000 | landsbanki.is
Launavernd
Hvað treysta
margir á þig?
Ertu búinn að tryggja þér og fjölskyldunni
áframhaldandi laun komi til tekjumissis vegna
fráfalls, sjúkdóma eða starfsloka vegna aldurs?
Skynsemin segir þér hvað er rétt að gera.
Ekki hugsa málið – kláraðu það!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
28
24
9
0
9/
20
05
Hilmir Snær Guðnason fer á kost-
um sem Charlotte von Mahlsdorf í
nýju bandarísku leikriti, sem
frumsýnt verður í Iðnó á föstu-
daginn kemur. Hann leikur þar að
auki 34 önnur hlutverk í einleikn-
um, sem heitir Ég er mín eigin
kona og er eftir Doug Wright.
Leikritið hefur hlotið fjölda
verðlauna vestra, þar á meðal
bæði Pulitzer-verðlaunin og Tony-
verðlaunin sem besta leikrit árs-
ins 2004. Leikritið byggir á sann-
sögulegum atburðum og er aðal-
persónan hin þýska Charlotte von
Mahlsdorf, sem fæddist drengur
en ákvað að lifa lífi sínu sem
kona.
Höfundur verksins, Doug
Wright, er jafnframt ein af aðal-
persónum verksins en alls birtast
á sviðinu 35 persónur, allar leikn-
ar af Hilmi Snæ.
Leikstjóri sýningarinnar er
Stefán Baldursson og er þetta
fyrsta sýningin sem nýtt leikhús
þeirra Stefáns og Hilmis, leikhús-
ið Skámáni, stendur fyrir.
Þýðandi er Guðni Kolbeinsson,
leikmynd gerir Gretar Reynisson,
lýsingu hannar Björn Bergsteinn
Guðmundsson og búninga gera
Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Mar-
grét Einarsdóttir.
Sýningin er unnin í samvinnu
við Menningar- og listastofnun
Kormáks og Skjaldar og verður
sýnd í Iðnó fram eftir hausti.
Ég er mín eigin kona
HILMIR SNÆR Leikur Charlotte von Mahlsdorf í einleiknum Ég er mín eigin kona, sem
frumsýndur verður í Iðnó á föstudagskvöld.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Ítalski harmonikuleikarinn
Renzo Ruggieri heldur tónleika í
Salnum í Kópavogi ásamt Eyþóri
Gunnarssyni, Róbert Þórhallssyni
og Erik Ovick.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.30 Hrafnkell Sigurðsson mynd-
listarmaður flytur fyrirlestur um eigin
verk í Listaháskólanum í Laugarnesi,
stofu 024.
17.15 Doktor Leó Kristjánsson,
jarðeðlisfræðingur á Jarðvísinda-
stofnun Háskólans, flytja erindi sem
hann nefnir "Silfurberg, raunvísindi
og Albert Einstein" á fræðslfundi
Hins íslenska náttúrufræðifélags í
Öskju.
■ ■ SAMKOMUR
20.00 Á evrópska tungumáladag-
inn verður ljóðakvöld í Alþjóðahús-
inu á 1. hæð. Yfirskriftin er "Uppá-
halds ljóðið mitt". Öllum er velkomið
að flytja ljóð á hvaða tungumáli sem
er og segja frá því.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
23 24 25 26 27 28 29
Mánudagur
SEPTEMBER