Fréttablaðið - 29.09.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
ÞYKKNAR UPP sunnan og vestan til
þegar líður á daginn og fer að rigna í kvöld.
Skúrir eða slydduél á Norður- og Austur-
landi. Hvassviðri í kvöld sunnan og vestan
til. Hlýnandi veður. VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
29. september 2005 - 262. tölublað – 5. árgangur
Flugvöllinn áfram
Ólafur F. Magnúson borgarfulltrúi seg-
ir að í stað þess að flytja innanlands-
flugið frá Reykjavík sé skynsamlegra
að haga málum þannig að hófleg upp-
bygging eigi sér stað í
norðurhluta Vatns-
mýrarinnar og halda
eftir flugvelli í suður-
hlutanum.
UMRÆÐAN 26
Ástarfleyið trekkir að
Um 400 manns sóttust
eftir því að komast að
sem farþegar á Ástar-
fleyinu. Verið er að velja
keppendur.
FÓLK 54
Fékk hrærivél í
sjötugsafmælisgjöf
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
Í MIÐJU BLAÐSINS
• tíska • heilsa • heimili
▲
Matargúru ritst‡rir n‡rri
heimasí›u Gestgjafans
NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR
MATUR 46
▲
VEÐRIÐ Í DAG
ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Nýr
Faxe
Fjölmiðlar skipta um andlit
Mannabreytingar á fjölmiðlum
landsins, þar sem RÚV og
Stöð 2 berjast um bestu
bitanna, minna helst á
félagaskipti
knattspyrnumanna.
FÓLK 48
Dýraverndunarsinnar:
Gruna›ir um
líkfljófna›
BRETLAND Lögregla í Bretlandi
hefur handtekið fimm manns í
tengslum við rán á líki hinnar 82
ára gömlu Gladys Hammond.
Líkinu var rænt úr kirkju í Staf-
fordskíri í október 2004. Þrír
karlar og kona eru grunuð um
samsæri og önnur kona er sökuð
um að hafa ráðist á lögreglu-
menn.
Hammond var ættingi fólks
sem rak eldisstöð fyrir naggrísi
sem seldir voru til tilraunastofa
víðs vegar um Bretland.
Mikla athygli vakti þegar lík-
inu var stolið og voru þá
dýraverndunarsinnar strax
grunaðir. Enda kom fljótlega í
ljós til að tilgangurinn með því
að stela líkinu var tilraun til að
kúga eigendur eldisstöðvarinn-
ar til að hætta rekstrinum.
Eldisstöðinni var svo lokað í
ágúst síðastliðnum eftir að
eigendunum hafði borist fjöl-
margar hótanir frá öfgasinnuð-
um dýraverndunarhópum. ■
Sigurjón Sighvatsson í viðræðum um meirihlutakaup á dönsku fasteignafélagi:
Átta milljar›a fasteignafélag
VIÐSKIPTI Fasteignafélag í eigu Sig-
urjóns Sighvatssonar mun, ef
samningar nást þar um, kaupa
meirihluta í dönsku fasteignafélagi
sem á um 150 íbúðir, verslunar- og
skrifstofuhúsnæði og byggingar-
land í Kaupmannahöfn. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er Sigur-
jón nú í Kaupmannahöfn þar sem
viðræður vegna kaupanna eru á
lokastigi en gert er ráð fyrir því að
gengið verði endanlega frá þeim
um helgina. Danska félagið, sem er
í eigu einstaklinga, er metið á um
átta milljarða íslenskra króna og er
ekki skráð á markað.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru það Íslandsbanki í Lúx-
emborg og Íslandsbanki hér heima
sem vinna að fjárfestingunni með
Sigurjóni en félag Sigurjóns og fjöl-
skyldu hans, Heimiliskaup ehf.,
mun fjárfesta í danska félaginu.
Eignir danska félagsins eru einkum
í hjarta Kaupmannahafnar.
Íslendingar hafa að undan-
förnu verið umsvifamiklir í Kaup-
mannahöfn og er skemmst að
minnast kaupanna á verslunar-
miðstöðvunum Magasin Du Nord
og Illums auk raftækjaverslan-
anna Merlin. - hb
FRÁ KAUPMANNAHÖFN Sigurjón Sighvatsson vill kaupa danskt fasteignafélag með eignir í
Kaupmannahöfn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN
S
.
LEIKSKÓLAMÁL „Vandamál við að
manna leikskólana okkar eru
óþekkt og enginn þeirra hefur
staðið frammi fyrir því að þurfa
að loka deildum,“ segir Margrét
Pála Ólafsdóttir, formaður Sam-
taka sjálfstæðra skóla. Samtök
sjálfstæðra skóla eru regnhlífar-
samtök sjálfstætt rekinna leik- og
grunnskóla. Innan þeirra starfa 26
leikskólar á höfuðborgarsvæðinu
sem sinna um 1500 nemendum.
Margrét Pála telur að ekki sé
um teljandi launamun að ræða
milli starfsmanna á leikskólum
samtakanna og leikskólum sem
reknir eru af Reykjavíkurborg.
„Við búum við ákveðið rekstrar-
legt sjálfstæði sem gerir okkur
kleift að hafa frumkvæði í starfs-
mannahaldinu,“ segir Margrét.
Hún telur að nútímaleg starfs-
mannastjórnun sé lykillinn að vel-
gengni skóla innan samtakanna.
„Borgaryfirvöld og leikskólastjór-
ar hjá borginni hafa góðan vilja til
þess að leita lausna en búa ekki
við sama frjálsræði og við,“ bætir
Margrét við. Hún segir að reynt
sé að veita starfsfólki umbun sem
ekki sé þó alltaf í formi peninga.
Viðvarandi vandi blasir við á
mörgum leikskólum á höfuðborg-
arsvæðinu. Dæmi eru um að ein-
staka leikskóla vanti sjö starfs-
menn til þess að geta sinnt eðli-
legu starfi. Fundur var í fyrra-
kvöld í leikskólanum Laufskálum
í Grafarvogi þar sem foreldrar,
kennarar og borgarfulltrúar hitt-
ust til þess að ræða stöðu mála.
Guðlaugur Þór Þórðarson borgar-
fulltrúi sat fundinn. „Það er aug-
ljóst að hér er um neyðarástand að
ræða sem við verðum að vinna
bug á hið fyrsta,“ segir Guðlaug-
ur. Hann segir stjórnmálamenn
hafa gert of lítið úr vandanum og
brugðist of seint við. Hann ítrekar
að þessi gagnrýni beinist ekki að
starfsfólki skólanna, sem nú um
stundir vinni gott starf undir erf-
iðum kringumstæðum.
- saj
Sjálfstæ›ir leikskólar
eru fullmanna›ir
Leikskólar Reykjavíkurborgar búa vi› skort á starfsfólki og lokanir á deildum.
Á sama tíma hefur sjálfstætt reknum leikskólum tekist a› halda sínu starfs-
fólki og ekki hafa or›i› truflanir á starfi fleirra.
Þingforseti brýtur lög:
Sekur um
samsæri
WASHINGTON, AP „Ég hef ekkert
gert af mér. Ég er saklaus,“ sagði
repúblikaninn og þingmaðurinn
Tom DeLay á blaðamannafundi í
Hvíta húsinu í Washington í gær.
DeLay þurfti að yfirgefa stöðu
sína sem forseti fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings í gær eftir að
kviðdómur í Texas úrskurðaði
hann sekan um samsæri og lög-
brot í fjármögnun kosninga-
baráttu sinnar.
DeLay gagnrýndi saksóknar-
ann Ronnie Earle harðlega og
kallaði hann meðal annars öfga-
mann. „Okkar verk í Texas er að
ákæra þá sem gerast brotlegir
um misnotkun á valdi sínu og
upplýsa almenning um þess hátt-
ar mál,“ var svar Earles við gagn-
rýninni. Delay er fyrsti deildar-
forseti sem þarf að segja af sér í
meira en hundrað ár.
- saj
TOM DELAY FYRRVERANDI ÞINGFORSETI DeLay gengur til fundar við flokksfélaga sína í Repúblikanaflokknum í Washington í gærkvöld
eftir að hafa tilkynnt afsögn sína á blaðamannafundi. Kviðdómur í Texas úrskurðaði DeLay sekan um samsæri og lögbrot við fjármögnun
kosningabaráttu.
M
YN
D
/A
P
Svona á að spila vörn
Fylkismenn, undir stjórn Sigurðar Vals
Sveinssonar, eru að spila bestu
vörnina í DHL-deild karla ef
marka má stöðu
mála eftir þriðju
umferðina sem fór
fram í gær. Fram er eina
taplausa liðið.
ÍÞRÓTTIR 35