Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 6
6 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Skrifstofum góðgerðafélaga á Vesturbakkanum lokað í aðgerðum Ísraelsmanna:
Enn fljarma Ísraelar a› Hamas
GAZA-BORG, AP Ísraelsher hélt áfram
hernaðaraðgerðum sínum í gær
gegn herskáum Palestínumönnum.
Ísraelar segja hörkuna nauðsynlega
en Hamas telur að verið sé að veikja
samtökin í pólitísku tilliti.
Frá því að eldflaugum var skotið
á sunnudaginn frá Gaza yfir landa-
mærin að Ísrael hefur Ísraelsher
ráðist gegn uppreisnarmönnum
með oddi og egg, enda þótt samtök-
in Heilagt stríð og Hamas hafi þeg-
ar sagst ætla að láta af árásum. Síð-
ustu daga hefur eldflaugum verið
skotið á valin skotmörk í Gaza-borg
þannig að rafmagnslaust hefur
verið í borginni og í gær var skotið
úr fallbyssum á hús uppreisnar-
manna. Á sama tíma var skrifstof-
um ýmissa samtaka lokað á Vestur-
bakkanum en þau eru sökuð um að
styrkja fjölskyldur sjálfsmorðs-
sprengjumanna.
Ísraelsk stjórnvöld segja aðgerð-
irnar séu nauðsynlegar til að koma
á reglu í landinu. Í fyrradag gekk
Shaul Mofaz varnarmálaráðherra
svo langt að hóta leiðtogum Hamas
að þeir gætu orðið næstu skotmörk
hersins. Hamas-liðar telja að Ísrael-
ar séu að nota tækifærið og ganga
milli bols og höfuðs á samtökunum
fyrir kosningarnar á palestínsku
heimastjórnarsvæðunum í janúar
en þar er Hamas spáð góðu gengi.
- shg
Álftnesingar deila um leigu húsnæðis fyrir bæjarskrifstofu:
Bæjarskrifstofa á hjúkrunarheimili
SVEITARSTJÓRNARMÁL Meirihluta og
minnihluta bæjarstjórnar Álfta-
ness greinir á um þá fyrirætlan
að leigja húsnæði af hjúkrunar-
heimilinu Eir til fjörtíu ára fyrir
bæjarskrifstofu og bókasafn.
Eir er nú að fara að byggja ör-
yggisíbúðir og þjónustumiðstöð
fyrir eldri borgara.
„Grundvallaratriðið er að
með í þessari vinnu er sam-
nýting húsnæðis með Eir,“ segir
Guðmundur G. Gunnarsson,
bæjarstjóri á Álftanesi. Með
þessum samningi sér hann fram
á að fundaraðstaða, símakerfi,
tölvukerfi og geymslur nýtist
báðum aðilum og því sé þetta
hagkvæmur kostur.
Kristján Sveinbjörnsson,
fulltrúi minnihluta sveitar-
stjórnar á Álftanesi, segir þetta
ekki vera rétt, heldur muni það
kosta bæjarfélagið 240 milljónir
næstu fjörutíu ár að leigja frek-
ar en að byggja sjálft sambæri-
legt húsnæði.
„Miðað við samningsdrögin
er ekki hægt að segja upp þess-
um leigusamningi,“ segir Krist-
ján. Sveitarstjórnin mun taka
ákvörðun um hvort leigt verði á
fundi sveitarstjórnar 11. októ-
ber. - grs
Umbo›sma›ur spyr
forsætisrá›herra
Umbo›sma›ur Alflingis ætlar ekki a› taka fyrir hugsanlegt vanhæfi Halldórs
Ásgrímssonar vi› einkavæ›ingu Búna›arbankans. Engu a› sí›ur hefur hann
sent forsætisrá›herra bréf og vill fá svör vi› nokkrum spurningum.
EINKAVÆÐING Umboðsmaður Al-
þingis hefur ritað forsætisráð-
herra bréf og spurt hann tiltek-
inna spurninga um verklag og
lagaumgjörð einkavæðingar ríkis-
fyrirtækja.
Bréfið er ritað í kjölfar ábend-
inga þingflokksformanna Sam-
fylkingarinnar, Vinstri grænna og
Frjálslynda flokksins til umboðs-
manns í sumar, en þær varða
fyrst og fremst hæfi Halldórs Ás-
grímssonar forsætisráðherra til
þátttöku í söluferli Búnaðarbank-
ans á sínum tíma.
Umboðsmaður telur ekki til-
efni til þess að taka hæfi forsætis-
ráðherra til sérstakrar athugunar
en spyr forsætisráðherra engu að
síður nokkurra almennra spurn-
inga um einkavæðingaferlið.
Umboðsmaður telur að lög-
formleg staða bæði ráðherra-
nefndar og Framkvæmdanefndar
um einkavæðingu sé óljós og spyr hvort áform séu um að bæta þar
úr með lagasetningu.
Í öðru lagi vísar umboðsmaður
til stjórnsýslulaga og óskar eftir
upplýsingum um það hvort ráð-
gert sé að endurskoða efni þeirra
reglna sem gilda um útboð og sölu
ríkisfyrirtækja þannig að staða
þeirra sem að sölunni koma verði
gerð skýrari.
Í þriðja lagi spyr umboðsmað-
ur um mögulegt vanhæfi við
einkavæðinguna og hvort fylgt
hafi verið einhverju verklagi við
upplýsingagjöf um vanhæfis-
ástæður af hálfu þeirra sem
undirbúið hafi einkavæðinguna
og tekið um hana ákvarðanir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir mikilvægt að umboðsmaður
bendi á að aðeins séu í gildi verk-
lagsreglur um einkavæðingu frá
árinu 1996. „Það tíðkast varla í
nokkru siðmenntuðu landi að ekki
skuli vera lögfest eitthvað um
verksvið, vald og ábyrgð ráð-
herranefndarinnar annars vegar
og Framkvæmdanefndar um
einkavæðingu hins vegar. Það
hefði verið betra að geta fylgt lög-
festum reglum um verklag og
gegnsæi.“
johannh@frettabladid.is
Sjálfsmorðsárás konu:
Sex manns
bi›u bana
BAGDAD, AP Ung kona, dulbúin sem
karlmaður, framdi sjálfsmorðs-
sprengjuárás í borginni Tal Afar í
norðanverðu Írak í gær. Árásin var
gerð fyrir utan ráðningarskrifstofu
íraska hersins og biðu sex verðandi
hermenn bana í sprengingunni. Svo
virðist sem konan hafi íklæðst karl-
mannsfötum þegar hún nálgaðist
skrifstofuna til að blandast betur
inn í hópinn. Al-Kaída í Írak hefur
lýst ábyrgð á hendur sér.
Þetta er í fyrsta sinn sem kona
fremur sjálfsmorðsárás eftir að
Írak féll í hendur hernámsliðsins.
Vopna er síður leitað á konum en
körlum og því eiga þær auðveldara
með að komast fram hjá eftirlits-
stöðvum. ■
MANNSKÆTT ÓVEÐUR Rúmlega 70 hafa
farist vegna Damrey.
Fellibylurinn Damrey:
Farinn yfir
til Laos
HANOI, AP 33 lágu í valnum eftir að
fellibylurinn Damrey fór yfir
Víetnam í gær. Alls hafa ríflega
sjötíu manns látist af völdum óveð-
ursins í Suðaustur-Asíu.
Til viðbótar við þá 33 sem létust
slasaðist fjöldi fólks þegar Damrey
gekk á land í Víetnam. Gífurleg úr-
koma fylgdi storminum og kom
víða til flóða í kjölfarið. Varnar-
garðar gáfu sig og hús fóru á
bólakaf. Á meðal þeirra sem létust
var tveggja ára gömul telpa.
Damrey hefur undanfarna daga
farið yfir Filippseyjar og suður-
hluta Kína en í gær hélt hann til
Laos. ■
Stjórnarmyndun í Póllandi:
Vilja hra›a
vi›ræ›um
PÓLLAND, AP Kazimierz Marcinki-
ewicz, sem væntanlega verður
næsti forsætis-
ráðherra Pól-
lands, hét því í
gær að mynda
„sterka og
stöðuga“ ríkis-
stjórn, er hægri-
flokkarnir tveir
sem unnu nýaf-
staðnar þing-
kosningar settu sig
í stellingar til að
hefja formlegar
stjórnarmyndunarviðræður.
Marcinkiewicz er með yngri
forystumönnum íhaldsflokksins
Lög og réttlæti og er þekktur sem
sérfræðingur í efnahagsmálum.
Hann var óvænt tilnefndur sem
forsætisráðherraefni flokksins í
fyrradag. Ákvörðunin virtist miða
að því að flýta fyrir stjórnar-
myndunarviðræðunum við Borg-
aravettvang, flokk frjálshyggju-
manna.
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og veit-
ir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
Ertu sátt(ur) við að Davíð sé
hættur í ríkisstjórn?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt að gera parkódín lyf-
seðilsskylt?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
23,4%
76,6%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Heimdallarkosningar:
Bolli áfram
forma›ur
STJÓRNMÁL Bolli Thoroddsen var á
þriðjudaginn endurkjörinn for-
maður Heimdallar á aðalfundi fé-
lagsins. Yfir þús-
und manns
greiddu atkvæði á
fundinum, sem
mun vera sá fjöl-
mennasti í sögu
félagsins.
Bolli fékk 528
atkvæði í for-
mannskjöri en
Vilhjálmur Þór
Vilhjálmsson 458 atkvæði. 66 at-
kvæðaseðlar voru auðir og ógildir.
Tvær fylkingar tókust á í kjöri
til stjórnar og náðu tíu stuðnings-
menn Bolla kjöri en einn stuðn-
ingsmaður Vilhjálms. - saj
Bolli Thoroddsen
KAZIMIERZ
MARCINKIEWICZ
Væntanlegur for-
sætisráðherra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
GUÐMUNDUR G. GUNNARSSON Hugmyndir hans um að samnýta elliheimili og bæjarskrif-
stofur eru umdeildar.
GÍNANDI BYSSUKJAFTUR Eldflauga- og fallbyssuskothríð hefur dunið á Gaza-ströndinni
undanfarna daga.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, FOR-
MAÐUR SAMFYLKINGARINNAR Hún bendir
á mikilvægi þess að umboðsmaður spyrjist
fyrir um lög og reglur varðandi verklag við
sölu fyrirtækja í eigu almennings.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Hæfi Halldórs hefur verið véfengt vegna
vensla við einstaklinga og félög sem tengjast kaupendum Búnaðarbankans.